Fara í efni

Sveitarstjórn

180. fundur 09. september 2014 kl. 16:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Björgvin Helgason oddviti
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti
  • Hjördís Stefánsdóttir ritari
  • Jónella Sigurjónsdóttir vararitari
  • Ása Helgadóttir aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður
Fundargerð ritaði: Skúli Þórðarson sveitarstjóri
Dagskrá
Björgvin Helgason oddviti, setti fundinn og bauð fólk velkomið til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár. Stefán G. Ármannsson boðaði forföll.

1.Varðandi ráðningu í starf framkvæmdastjóra Höfða.

1309031

Bréf frá umboðsmanni Alþingis, dagsett 26. ágúst 2014.
Erindi framlagt til kynningar.

2.Ályktun um varðveislu landbúnaðarlands.

1409014

Aðalfundur Samtaka ungra bænda haldinn í Úthlíð 22. mars 2014 hvetur sveitarstjórnarfulltrúa til að kynna sér og nýta heimildir í skipulagslögum við gerð aðal- og deiliskipulags til að varðveita landbúnaðarland. Einnig verður að skilgreina mismunandi undirflokka landbúnaðarlands, svo sem land til skógræktar, jarðræktar, beitarland og fleira.
Erindi framlagt til kynningar.
Erindið hefur verið sent USN nefnd og landbúnaðarnefnd.

3.Tillögur Mannvirkjastofnunnar að reglugerð um starfsemi slökkviliða.

1409015

Erindi frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, dagsett 1. september 2014.
Erindi framlagt til kynningar.
Erindið hefur verið sent til USN nefndar.

4.42. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.

1409011

Fundargerð lögð fram til kynningar.

5.Sveitarstjórn - 179

1408001F

Fundargerðin framlögð.

6.Fræðslu- og skólanefnd - 110

1408005F

Fundargerðin framlögð.

Hjördís Stefánsdóttir, Ása Helgadóttir og Arnheiður Hjörleifsdóttir tóku til máls undir þessum lið.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2014:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun ársins að fjárhæð 700.000 kr. samkvæmt 1. málsg. 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Kostnaðarauka skal mætt með fjárveitingu af fjárhagsliðnum óviss útgjöld 21-85-5971."
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

7.Kaup á Staðarhöfða.

1409012

Erindi frá Nínu Ólafsdóttur og Steinþóri Bjarna Ingimarssyni.
Erindið lagt fram
Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að afla gagna vegna erindisins.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

8.Ósk um framlag til tækjakaupa.

1409009

Erindi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands, dagsett 29. ágúst 2014.
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og samþykkir að vísa því til gerðar fjárhagsáætlunar ársins 2015.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

9.Eineltisstefna Hvalfjarðarsveitar.

1409010

Drög til samþykktar, frá félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar.
Oddviti leggur til að afgreiðslu erindisins verði frestað þar til kynning á eineltisstefnu hefur farið fram fyrir starfsmönnum sveitarfélagsins sbr. bókun sveitarstjórnar frá síðasta fundi.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

10.Hvalfjarðarsveit hvött til að halda lúpínu í skefjum.

1404036

Erindi frá Margréti Thorlacius og Ólafi Helga Ólafssyni lagt fram. Þar lýsa þau vonbrigðum með afgreiðslu USN nefndar frá 39. fundi á erindi sem þau höfðu sent sveitarfélaginu þar sem hvatt var til stefnumótunar um aðgerðir til að halda útbreiðslu lúpínu í skefjum.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur undir eftirfarandi bókun USN frá 39. fundi:
"USN nefnd telur ekki forsendur fyrir því að sveitarfélagið móti stefnu gegn útbreiðslu lúpínu í einkalöndum í Hvalfjarðarsveit."
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

11.Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands.

1409016

a) kosning tveggja aðalmanna, b) kosning tveggja varamanna.
Fyrir fundinum liggur að tilnefna fulltrúa til setu í fulltrúaráði Fjölbrautaskóla Vesturlands 2014-2018;
Framlögð tillaga um skipan eftirtalinna aðila:
Hjördísi Stefánsdóttur og Þórdís Þórisdóttir, aðalmenn.
Ólafur Jóhannesson og Eyrún Reynisdóttir, varamenn.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

12.Tónlistarskólinn, fagnefnd.

1409018

Kosning áheyrnarfulltrúa.
Fyrir fundinum liggur að tilnefna áheyrnarfulltrúa í fagnefnd Tónlistarskóla Akraness 2014-2018.
Fram lögð tillaga um skipan Ólafs Jóhannessonar.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

13.Siðareglur kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og ráðum á vegum Hvalfjarðarsveitar.

1409019

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum 138/2011:
29. gr. Siðareglur og góðir starfshættir.
Sveitarstjórn skal setja sér siðareglur sem sendar skulu ráðuneytinu til staðfestingar. Ef siðareglur eru í gildi skal ný sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til endurskoðunar þeirra. Ef niðurstaðan er sú að siðareglur þarfnist ekki endurskoðunar halda þær gildi sínu. Tilkynna skal ráðuneytinu um þá niðurstöðu.
Framlögð eftirfarandi tillaga:
"Sveitarstjórn samþykkir framlagðar siðareglur fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og ráðum á vegum Hvalfjarðarsveitar. Sveitarstjórn samþykkir að vísa siðareglunum til kynningar í fastanefndum sveitarfélagsins og til staðfestingar innanríkisráðherra."
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

14.Endurskoðun aðalskipulags.

1409020

Samkvæmt skipulagslögum 123/2010:
Að loknum sveitarstjórnarkosningum skal sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið. Skal sú ákvörðun m.a. taka mið af því hvort landsskipulagsstefna kalli á endurskoðun aðalskipulagsins. Um málsmeðferð á endurskoðaðri áætlun fer sem um gerð nýs aðalskipulags sé að ræða. Ef niðurstaða sveitarstjórnar er að aðalskipulagið þarfnist ekki endurskoðunar heldur það gildi sínu. Tilkynna skal Skipulagsstofnun um þá niðurstöðu, innan 6 mánaða frá sveitarstjórnarkosningum.
Oddviti leggur til að leitað verði umsagnar USN-nefndar um það hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

15.Leitarstjóri í Akrafjalli.

1409021

Skipun leitarstjóra.
Oddviti leggur til að Bjarni Rúnar Jónsson verði skipaður leitarstjóri á leitarsvæði Reynisréttar haustið 2014.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

16.Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, 28. mars 2014.

1403011

Framhaldsaðalfundur SSV og málþing að hausti verður haldið í Dalabyggð 18. september n.k.
Erindi framlagt.
Ása Helgasóttir tók til máls undir þessum dagskrárlið.
Samþykkt að Ása Helgadóttir, sveitarstjórnarfulltrúi og Skúli Þórðarson, sveitarstjóri fari með umboð Hvalfjarðarsveitar á fundinum.
Jónella Sigurjónsdóttir og Daníel Ottesen séu varafulltrúar þeirra.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar