Fara í efni

Sveitarstjórn

176. fundur 24. júní 2014 kl. 16:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Björgvin Helgason oddviti
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti
  • Jónella Sigurjónsdóttir vararitari
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Ása Helgadóttir aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður
Fundargerð ritaði: Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
Björgvin Helgason oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gegnið til áður boðaðar dagskrár.

1.Sveitarstjórn - 174

1406001F

AH tók til máls varðandi 4 lið og 12 lið. Vildi upplýsa um að bæði málin eru í vinnslu.
Fundargerðin framlögð.

2.Sveitarstjórn - 175

1406002F

Fundargerðin framlögð.

3.Fundargerð Kjörstjórnar, 2. júní 2014.

1406030

Fundargerðin framlögð.

4.Aðalfundur Faxaflóahafna sf., föstudaginn 27. júní 2014.

1406017

Frá Faxaflóahöfnum dagsett 11. júní 2014.
BH ræddi erindið og lagði til að Arnheiður Hjörleifsdóttir fari með umboð Hvalfjarðarsveitar á fundinum.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

5.Varðandi afreksstyrks eða styrks vegna æfingaferðar erlendis.

1406028

Erindi frá Ingvari Matthíassyni, fyrir hönd Loga Arnar Matthíassonar, dagsett 11. júní 2014.
BH ræddi erindið og lagði til að vísa erindinu til fræðslu- og skólanefndar á grundvelli þeim reglna sem eru í gildi.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

6.Fjármálastjórn sveitarfélaga.

1406021

Erindi frá innanríkisráðuneytinu (eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga) dagsett 12. júní 2014.
Erindið framlagt

7.Skipulagsskrá Snorrastofu.

1406026

Frá Snorrastofu, dagsett 11. júní 2014.
BH ræddi erindið og nefndi að eftir á að tilnefna fulltrúa frá Hvalfjarðarsveit í stjórn Snorrastofu í samráði við Skorradalshrepp. Tilnefningunni var frestað á síðasta fundi sveitarstjórnar.
Erindið framlagt

8.Fasteignamat 2015.

1406031

Frá Þjóðskrá Íslands, dagsett 13. júní 2014.
Breyting á fasteignamati í Hvalfjarðarsveit er 4 % milli ára á húseignum og 3,2 % á landmati en 7,7 % hækkun að meðaltali á húseignum á landsvísu.
Erindið framlagt

9.108. fundur stjórnar SSV, 10. júní 2014.

1406024

Fundargerðin framlögð

10.78. stjórnarfundur í Sorpurðun Vesturlands.

1406025

Fundargerðin framlögð

11.40. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.

1406027

Fundargerðin framlögð

12.121. fundur stjórnar Faxaflóahafna sf.

1406029

Fundargerðin framlögð

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar