Fara í efni

Sveitarstjórn

163. fundur 28. janúar 2014 kl. 16:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Sigurður Sverrir Jónsson oddviti
  • Ása Helgadóttir varaoddviti
  • Sævar Ari Finnbogason ritari
  • Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir vararitari
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Halldóra Halla Jónsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

Að auki sat fundinn sveitarstjóri og ritaði fundargerð. SÁ óskaði eftir að mál nr. 13 og 14. verði tekin til afgreiðslu í stað kynningar. Oddviti bendir á að málin verði afgreiðslumál. SÁ gerir athugasemd við fundarboðið og afgreiðslumálum sé ekki rétt raðað í fundarboði og að mál til afgreiðslu séu flokkuð sem mál til kynningar í fundarboðinu.

1.Ljósleiðari - fyrirspurn um framkvæmdaleyfi.

1401042

Hallfreður, Arnheiður og Stefán óska eftir upplýsingum um framkvæmdaleyfi vegna ljósleiðaralagningar. Áður hefur verið spurt en misræmi er í svörum. Óskað eftir skriflegu svari frá sveitarstjóra.
LJ lagði fram minnisblað vegna fyrirspurnarinnar. AH ræddi erindið og að ljósleiðari þurfi framkvæmdaleyfi og fór yfir erindið. AH bendir á að enginn svaraði fyrirspurnum sem fram komu á fundinum.

2.Innleiðing spjaldtölva í skólastarfi í Hvalfjarðarsveitar.

1401043

Stefán, Hallfreður og Arnheiður óska eftir upplýsingum um stöðu spjaldtölvuvæðingar í skólum Hvalfjaðrarsveitar. A) Hver er staðan á verkefninu og kostnaður við það. B) Einnig upplýsingar um tryggingar á tölvunum og ábyrgð.
LJ lagði fram minnisblað vegna fyrirspurnarinnar ásamt samantekt skólastjóra. SAF ræddi erindið og svör skólastjóra ánægju foreldra með spjaldtölvuvæðingu. ÁH ræddi erindið og lýsti yfir ánægju með verkefnið og framkvæmdina. SÁ þakkaði greinargóðar upplýsingar. AH ræddi erindið og tók undir þakkir fyrir samantekt.

3.Skólaakstur grunnskóla.

1103050

Beiðni um upplýsingar varðandi stöðuna á skólaakstursútboði saman ber 147. fundi sveitarstjórnar, frá Stefáni, Hallfreði og Arnheiði.
LJ gerði grein fyrir undirbúningi vegna skólaaksturs. SÁ ræddi erindið.

4.Gjaldskráhækkanir.

1401021

Erindi frá Alþýðusambandi Íslands. Áður sent til sveitarstjórnar 14. janúar.
SÁ ræddi erindið. LJ ræddi erindið. SAF ræddi erindið og samningamál. LJ ræddi erindið. Tillaga um að erindið sé framlagt. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

5.Stöndum saman gegn verðbólgu en með stöðugleika og auknum kaupmætti launafólks.

1311025

Frá Stéttarfélagi Vesturlands. Áður sent sveitarstjórn 14. janúar 2014.
Tillaga um að erindið sé framlagt. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

6.Starfsemi Menningarráðs Vesturlands og menningarfulltrúa Vesturlands.

1401038

Erindi frá Elísabetu Haraldsdóttur, menningarfulltrúa Vesturlanda.
Erindið framlagt

7.Boð um þátttöku í samráðsvettvangi vegna mótunar landsskipulagsstefnu 2015-2026.

1401033

Frá Skipulagsstofnun, dagsett 20. janúar 2014. Þegar sent byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa Hvalfjarðarsveitar.
Erindið framlagt. Vísað til USN nefndar.

8.Tilkynning um orlofsstarfsemi árið 2014 að Svarfhóli.

1401039

Frá G.J. Hafur ehf., dagsett 13. janúar 2014.
Erindið framlagt

9.Til umsagnar frumvarp til laga um útlendinga (EES-reglur og kærunefnd), 249. mál.

1401026

Frá Alþingi, dagsett 17. janúar 2014. Þegar sent form. fjölskyldunefndar og félagsmálastjóra.
Erindið framlagt

10.Aðalfundur Hitaveitufélags Hvalfjarðar, 26. apríl 2013 kl. 20:30.

1304003

Fundargerðin framlögð

11.Fundargerðir Hitaveitufélags Hvalfjarðar, fyrir árið 2012.

1401032

Voru sendar rafrænt 20. janúar 2014. Fundargerðir dagsettar: 27. febrúar, 19. mars, 11. apríl, 24. apríl, 17. ágúst, 16. október, 29. október, 3. desember 2012.
Fundargerðirnar framlagðar

12.116. fundur Faxaflóahafna.

1401019

Fundargerðin framlögð

13.35. og 36. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.

1401037

Fundargerðirnar framlagðar

14.Sveitarstjórn - 162

1312002F

Fundargerðin framlögð

15.Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 33

1401001F

SAF fór yfir efnisatriði fundargerðarinnar og lagði til að samþykkja afgreiðslur nefndarinnar.
Fundargerðin framlögð
  • 15.2 1312039 Beiðni um umsögn sveitarstjórnar vegna fyrirhugaðrar stofnunar lögbýlis.
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 33 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði jákvæð umsögn um stofnun lögbýlis í landi Leirárskóga. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0
  • 15.3 1309012 Gjaldskrárhækkun - Skipulags- og byggingarfulltrúi
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 33 Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingar og auglýsa í B-deild Stjórnartíðinda. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0
  • 15.4 1311071 Hólslundur - Stofnun lóðar
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 33 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila stofnun lóðar Hólslundar þegar búið er að gera grein fyrir aðkomu og vatnsöflun Hólskots. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • 15.6 1401004 Könnun varðandi landnotkun í dreifbýli
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 33 USN nefnd samþykkir svör við könnun ráðuneytisins. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • 15.7 1310030 Samantekt frá íbúaþingi.
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 33 AH og SAF kynntu hugmyndir. Nefndin felur AH að gera minnisblað um málið sem nefndin vinnur með. Bókun fundar Lagt fram.
  • 15.8 1401015 Saurbær - Lindamelur - Stofnun lóðar
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 33 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila stofnun lóðar Lindamelur í landi Saurbæjar. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • 15.10 1401017 Steinsholt,gestahús
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 33 Nefndin leggur til við sveitarstjórn að leitað verði meðmæla Skipulagsstofnunar í samræmi við 1. mgr. bráðabirgðaákvæðis Skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem ekki er í gildi deiliskipulag á umræddu svæði. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • 15.13 1308017 Tillaga L og H lista: Breytingar á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020.
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 33 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að leitað verði umsagnar um lýsinguna og hún kynnt íbúum sveitarfélagsins sbr. 4.2.4. gr. skipulagsreglugerðar 90/2013. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • 15.14 1312019 Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir losun efnis í flæðigryfju á Grundartanga.
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 33 USN nefnd leggur til að framkvæmdaleyfi verði veitt til Elkem fyrir losun efnis í flæðigryfju á Gundartanga sbr. fyrirkomulagi sem lýst er í bréfi dags. 2. desember 2013 til Umhverfisstofnunar frá Elkem Ísland ehf. og Norðuráli Grundartanga ehf.. Framkvæmdaleyfi gildir þar til afmarkað svæði Elkem í flæðigryfju er full nýtt. Gerð verður áfangaúttekt að hálfu sveitarfélagsins einu sinni á ári og skal framkvæmdaaðili greiða tilheyrandi kostnað vegna hennar skv. gjaldskrá sveitarfélagsins. Kostnaður við framkvæmdaleyfi er ákveðið kr. 73.400,- Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0. Skipulagsfulltrúa falið að ganga frá framkvæmdaleyfi til Elkem.
  • 15.15 1312018 Umsókn um framkvændaleyfi fyrir losun efnis í flæðigryfju á Grundartanga.
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 33 USN nefnd leggur til að framkvæmdaleyfi verði veitt til Norðuráls Grundartanga ehf. fyrir losun efnis í flæðigryfju á Gundartanga sbr. fyrirkomulagi sem lýst er í bréfi dags. 2. desember 2013 til Umhverfisstofnunar frá Elkem Ísland ehf. og Norðuráli Grundartanga ehf. Að því gefnu að Norðurál leggi fram leiðrétt gögn. Framkvæmdaleyfi gildir þar til afmörkuð svæði Norðuráls Grundartanga ehf. í flæðigryfju er full nýtt. Gerð verður áfangaúttekt að hálfu sveitarfélagsins einu sinni á ári og skal framkvæmdaaðili greiða tilheyrandi kostnað vegna hennar skv. gjaldskrá sveitarfélagsins. Kostnaður við framkvæmdaleyfi er ákveðið kr. 73.400,- Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0. Skipulagsfulltrúa falið að ganga frá framkvæmdaleyfi til Norðuráls.

16.1. sameiginlegi fundur fjölskyldunefndar og fræðslu- og skólanefndar.

1401022

Fundargerðin framlögð

17.17. fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.

1401036

SSJ ræddi lið 3. LJ ræddi erindið og þakkaði Jóhönnu Harðardóttur fyrir höfðinglega gjöf af efni sem hún hefur gert og lagði til að fela aðalbókara að gera ráð fyrir að efnið verði aðgengilegt á heimasíðu sveitarfélagsins. AH ræddi erindið. Sveitarstjórn færir Jóhönnu Harðardóttur þakkir fyrir gjöfina til íbúa Hvalfjarðarsveitar.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
Fundargerðin framlögð

18.Faghópur til starfa með menningarfulltrúa.

1401001

Frestað á síðasta fundi sveitarstjórnar.
SSJ lagði til að tilnefna Hörð Helgason sem aðalmann og Önnu Leif Elídóttur varamann sem fulltrúa í faghópinn. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

19.Afsláttur á fasteignagjöldum aldraðra.

1401025

Erindi frá Magnúsi Ólafssyni, dagsett 14. janúar 2014.
LJ benti á að sveitarstjórn hefur hækkað viðmiðunarmörk vegna fasteignagjalda til 67 ára og eldri og örorkulífeyrisþega um 30% frá síða ári. Með þessari breytingu hefur þeim sem fá afslátt fjölgað um 50% á milli ára. AH ræddi erindið lagði fram tillögu; AH leggur til að fjármálastjóri sveitarfélagsins taki saman þær upplýsingar sem vitnað er til í erindinu. Þá sé gerður samanburður á því fyrirkomulagi sem er við lýði í Hvalfjarðarsveit í dag og var fyrir breytingu á tekjumörkum sem gerð var við síðustu fjárhagsáætlun.
SSJ lagði til að skoða alla fjóra hreppana sem nú mynda Hvalfjarðarsveit. SSJ áréttar að frítekjumörk afsláttar á fasteignagjalda voru hækkuð hjá eldriborgurum og öryrkjum við afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlunar og leggur til að ekki verði orðið við erindinu.
SAF ræddi álagningu og afslætti.
Tillaga AH; samþykkir eru; AH, SÁ, HV. SSJ, SAF, HHJ ÁH greiða atkvæði gegn tillögunni. Tillagan er felld.

Tillaga SSJ samþykkt með 4 atkvæðum SSJ ÁH SAF HHJ. SÁ, AH og HV sitja hjá við afgreiðsluna.

20.Þorrablót að Hlöðum.

1401034

Erindi frá Baldvin Björnssyni, Skorholti, dagsett 23. janúar 2014.
LJ gerði grein fyrir að á árinu 2013 hafi verið veittur styrkur. Árin 2010, 2011 og 2012 voru ekki veittir styrkir vegna þorrablóts að Hlöðum fór yfir erindið. SSJ fór yfir erindi varðandi greiðslur vegna þorrablóts. AH ræddi erindið og óskaði eftir upplýsingum varðandi fyrri afgreiðslur. HV fór yfir afgreiðslur vegna þorrablóts á árinu 2013. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum og lagði til að fá heimild til þess að fara yfir erindið með bréfritara.
SAF ræddi erindið og lagði til að samþykkja að fela sveitarstjóra að hafa samband við bréfritara og fara yfir erindið í samræmi við umræður á fundinum. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

21.Starfsemi djáknans á Dvalarheimilinu.

1401041

Beiðni um að Hvalfjarðarsveit muni greiða fyrir þjónustu djáknans á Dvalarheimilinu Höfða út þetta ár. Þar sem mikill niðurskurður er núna yfirstandandi á Höfða, hefur verið ákveðið að starfsemi djáknans muni leggjast af frá og með fyrsta apríl 2014, allavega tímabundið. Erindi frá fyrrverandi íbúum Hvalfjarðarsveitar sem dvelja á Höfða.
LJ ræddi erindið og lagði til að sveitarstjórn samþykki að fela sveitarstjóra að taka erindið upp við bæjarstjóra Akraneskaupstaðar og framkvæmdastjóra Höfða varðandi möguleika á áframhaldandi starfi djákna við Dvalarheimilið Höfða. ÁH ræddi erindið og lagði til að samþykkja að fela sveitarstjóra að taka upp viðræður við framkvæmdastjóra og bæjarstjóra. SAF ræddi erindið. Tillagan samþykkt 7-0

22.Fyrirspurn vegna framkvæmda við vegamót Melahverfis og Þjóðvegar 1.

1401040

Erindi frá Hallfreði, Arnheiði og Stefáni. A) Hvaða framkvæmd er þarna í gangi, hefur verið gefið út framkvæmdarleyfi vegna þessarar framkvæmdar, og ef svo er samræmist það því skipulagi sem í gildi er á svæðinu ? B) Hver er framkvæmdaraðilinn ? C) Hver kostar framkvæmdina.
LJ lagði fram minnisblað vegna fyrirspurnarinnar. SAF fór yfir erindið. HV fór yfir erindið og benti á að enginn stórbílaeigandi muni nota stæðið. Kvartaði undan að sveitarstjórn hafi ekki verið upplýst. SSJ svaraði fyrirspurnum. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum. AH ræddi erindið. SÁ ræddi erindið og lýsti yfir að hann er ósáttur við málsmeðferðina. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. SSJ ræddi erindið. SÁ svaraði athugasemdum SSJ. AH ræddi hver ákvað að þetta væri bráðabirgðastæði og skipulag, verðkönnun. HV ræddi verklag og framkvæmdir. Spurðist fyrir varðandi jarðvegsframkvæmdir fyrir framan leikskólann? Gerir athugasemdir við vinnubrögð. LJ svaraði fyrirspurnum og óskaði eftir að AH sendi fyrirspurnirnar skriflega og mun svara þeim.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar