Fara í efni

Sveitarstjórn

157. fundur 08. október 2013 kl. 16:00 - 16:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Sigurður Sverrir Jónsson oddviti
  • Ása Helgadóttir varaoddviti
  • Sævar Ari Finnbogason ritari
  • Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir vararitari
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Halldóra Halla Jónsdóttir aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri, ritar fundargerð.
Fundargerð ritaði: Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.
Að auki sat sveitarstjóri fundinn og ritaði fundargerð.

1.Sveitarstjórn - 156

1309004F

SÁ ræddi lið 2f spurðist fyrir varðandi frétt í Skessuhorni sem vísað er í fund með sveitarstjórn. SSJ svaraði að slíkur fundur hafi ekki verið haldinn með sveitarstjórn. Fundargerðin framlögð

2.16. fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.

1309032

SAF ræddi efnisatriði fundargerðarinnar. Lagði til að vísa erindum fundargerðarinnar til nefndarinnar aftur og að nefndin komi með nánari útfærslur og hugmyndir við fjárlagagerðina fyrir árið 2014. AH ræddi hugmyndir nefndarinnar og að um væri að ræða sama verklag og áður, ræddi uppsetningar og viðhald skilta samanber 3ja lið fundargerðarinnar. SAF ræddi efnisatriði fundargerðarinnar. AH ítrekaði fyrri afstöðu sína. SAF svaraði fram kominni fyrirspurn. SSJ lagði til að vísa fundargerðinni til fjárlagagerðar fyrir árið 2014. Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum, SSJ SAF HHJ og ÁH en HV, AH og SÁ sitja hjá við afgreiðsluna.
Fundargerðin framlögð.

3.103. fundur fræðslu- og skólanefndar.

1310003

ÁH ræddi efnisatriði fundargerðarinnar. Ræddi lið 3 lagði til að fela skólastjóra að koma með drög að öryggisreglum fyrir leikskólann. Leggur til að nefndin yfirfari reglurnar í lið 7, styrkir vegna ferða ungmenna og í íþrótta- og tómstundastarfi aftur. AH ræddi fundargerðina, öryggisreglur, styrkveitingar. ÁH svaraði fram komnum fyrirsprunum. LJ svaraði framkomnum fyrirspurnum. SAF ræddi efnisatriði fundargerðarinnar. SSJ ræddi fram komnar reglur um ferðastyrki til ungmenna í íþrótta- og tómstundastarfi. SÁ ræddi fram komnar reglur um ferðastyrki. AH ræddi reglur um ferðastyrki til ungmenna og fyrirkomulag styrkveitinga. SSJ ræddi fram komnar reglur um ferðastyrki. SAF ræddi reglurnar og lagði fram svohljóðandi tillögu;
Fyrsta málsgrein orðast svo:
Reglur þessar gilda um styrkveitingar vegna iþrótta- og tómstundaiðkunar barna og ungmenna allt að 18 ára aldri og skal miðað við almanaksár, og er ætlað að vera hvatning til frekari framfara og til að mæta útlögðum kostnaði
Styrkupphæð til afreksfólk til keppnisferða erlendis verður 35.000 í stað 100.000 og miða við skilgreiningu ÍSÍ til viðmiðunar.
AH ræddi erindið og að nefndin hafi haft reglur ÍSÍ um afreksfólk til viðmiðunar. SÁ ræddi afreksíþróttir og upphæðir. HV ræddi erindið og lagði til að vísa fram komnum hugmyndum og tillögum til umfjöllunar í fræðslu- og skólanefnd. Tillagan samþykkt samhljóða 5-0, SAF og HHJ sitja hjá við afgreiðsluna.
Fundargerðin framlögð.

4.Útivistarstígur að skógræktarsvæði Skilmannahrepps og að Heiðarskóla.

1309030

Minnisblað sveitarstjóra, varðandi verðkönnun á stígagerð í Melahverfi.
ÁH óskaði eftir að víkja af fundi. Samþykkt, ÁH vék af fundi.LJ fór yfir að verðkönnun var gerð og er yfirferð yfir gögn er að ljúka. Ræddi að gert hafi verið ráð fyrir olíumöl í verklýsingu og að leyft hafi verið að gera frávik með malbikslögn. Lagði til að semja við lægstbjóðanda og að fenginni umsögn byggingarfulltrúa er lagt til að velja malbik sem yfirlag. AH ræddi framkvæmd við verðkönnun. HV spurðist fyrir verklagi við framkvæmd verðkönnunar og ræddi framkvæmd við fegrun Melahverfis. SAF ræddi fyrirkomulag varðandi heiti á málum og verklag. HV ræddi framkvæmd við fegrun Melahverfis. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum og ábendingum. SÁ ræddi erindið og framkvæmdina. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum. HV ræddi fyrirkomulag við stórbílastæði og gerð göngustíga skv aðalskipulagi. SSJ lagði til að samið verði við lægstbjóðanda þegar yfirferð yfir boðin er lokið og að lægsta boð standist. Tillagan samþykkt með 6 atkvæðum. ÁH tekur aftur þátt í fundinum.

5.Tillaga um sameiningu sveitarfélaga.

1309033

A) tillaga um sameiningu. Erindi frá bæjarstjórn Akraneskaupstaðar, dagsett 25. september 2013.
B) samantekt frá sveitarstjóra Hvalfjarsveitar, nokkrar lykiltölur.
a) SSJ lagði fram svohljóðandi bókun;
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar afþakkar boð bæjarstjórnar Akraness um viðræður um sameiningu sveitarfélaganna Akraness, Borgarbyggðar, Skorradalshrepps og Hvalfjarðarsveitar. Sveitarstjórn telur slíkar viðræður ekki tímabærar þar sem skammt er síðan sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit varð til við sameiningu fjögurra sveitarfélaga.
AH benti á að þetta væri tillaga sem kæmi frá meirihluta sveitarstjórnar. HV ræddi fram komna bókun og mun sitja hjá við afgreiðsluna.
Tillaga SSJ samþykkt með 4 atkvæðum, SSJ ÁH, SAF og HHJ. HV SÁ og AH sitja hjá við afgreiðsluna.

b) lagt fram.

6.Reglur og tillögur.

1310007

Erindi frá Skógræktarfélagi Skilmannahrepps.
LJ fór yfir erindið og að erindið hafi áður verið á dagskrá sveitarstjórnar í júní sjá mál; 1306014. Fór yfir að hún og oddviti hafi hitt stjórn félagsins. Beiðni stjórnar er að fá að skerða höfuðstólinn. LJ lagði til að heimila skerðingu sem nemur 5,6 miljónum samtals og að stjórn sé heimil ráðstöfun fjárins samtals, næstu fjögur árin í verkefni sem hún telur brýnust. SSJ ræddi erindið og lagði til að samþykkja að heimila þeim ráðstöfun fjárins næstu fjögur ár. Reglur sjóðsins eru óbreyttar.Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

7.Óskað ertir tilnefningu til nýsköpunarverðlauna í opinberri þjónustu og stjórnsýslu.

1310006

Erindi frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Sveitarstjóra falið að svara erindinu. Samþykkt 7-0.

8.Afskrift á þing- og sveitasjóðsgjöldum.

1310009

Erindi frá Sýslumanninum í Borgarnesi, dagsett 2. október 2013.
LJ fór yfir erindi og lagði til að samþykkja afskriftirnar kr 81.934 auk áfallins kostnaðar samtals kr 154.178. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

9.Rekstraryfirlit janúar-júlí 2013.

1310004

Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.
Erindið framlagt

10.Fjárrekstur í gegnum Hafnarsel.

1310001

Erindi frá eigendum sumarhúsalóða og landeiganda í Hafnarseli, dagsett 21. september 2013.
SAF ræddi erindið. Erindið framlagt

11.Ljósleiðari í Hvalfjarðarsveit.

1211014

Verksamningur við Þjótanda ehf.
LJ gerði grein fyrir stöðu verkefnisins. SAF ræddi erindið og fagnar því að verkið er að hefjast spurðist fyrir varðandi eftirlitsmann. HV fagnaði því að verkið er að hefjast. Spurðist fyrir varðandi lagnaleiðir og endanleg samþykki um lagnaleiðir. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. AH ræddi að fyrirtæki hafi ekki fengið endanlegar upplýsingar. LJ svaraði fram komum fyrirspurnum. SÁ ræddi að kanna hvort eftirlitsmaður sé innan svæðis eða hvort ætti að auglýsa. Erindið framlagt.

12.Fundir sveitarstjórna með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2013.

1309036

Erindi frá Alþingi, dagsett 26. september 2013.
LJ gerði grein fyrir að áætlað er að funda með þingmönnum kjördæmisins í kjördæmaviku og áætlaður fundardagur er 25. október. Erindið framlagt.

13.Kynning á embættinu "umboðsmaður barna"

1310002

Erindi frá umboðsmanni barna, dagsett 23. september 2013. Skýrsla umboðmanns barna 2012, liggur frammi.
Erindinu vísað til kynningar í leik- og grunnskóla, fræðslu- og skólanefnd og til fjölskyldunefndar. Erindið framlagt

14.Skýrsla um fasteigamat og brunabótamat.

1310008

Frá Þjóðskrá Íslands, dagsett 25. september 2013. Skýrslurnar liggja frammi.
Erindið framlagt

15.Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og tekjum af orkuauðlindum, 44. mál.

1309038

Erindi frá Alþingi, dagsett 23. september 2013. Þegar sent form. menningar- og atvinnuþróunarnefndar.
Erindið framlagt

16.31. og 32. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.

1310005

Fundargerðirnar framlagðar.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Efni síðunnar