Fara í efni

Sveitarstjórn

151. fundur 25. júní 2013 kl. 16:00 - 16:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Sigurður Sverrir Jónsson oddviti
  • Ása Helgadóttir varaoddviti
  • Sævar Ari Finnbogason ritari
  • Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Halldóra Halla Jónsdóttir vararitari
Fundargerð ritaði: Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.
Að auki sat sveitarstjóri fundinn og ritaði fundargerð.

1.Sveitarstjórn - 150

1306001F

ÁH ræddi lið 2 mál 1306012. Lagði fram samantekt og merkt trúnaðarmál. SSJ óskaði eftir að slökkt verði á upptökunni. Kveikt á upptökunni. HV óskaði eftir fundarhléi til þess að lesa samantektina. Fundargerðin framlögð

2.Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 25

1306003F

SAF ræddi efnisatriði fundargerðarinnar. Fundargerðin framlögð

3.Kosningar skv. II kafla 15. og 16.gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar 48/2009 með síðari breytingum

1306033

A) Kosning oddvita. B) Varaoddvita. C) Skrifara. D) Varaskrifara sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
SSJ óskaði eftir hvort óskað væri eftir skriflegri atkvæðagreiðslu. Samþykkt.
a) oddviti; Sigurður Sverrir Jónsson 4 atkvæði, Hallfreður Vilhjálmsson 1 og 2 seðlar eru auðir.
Sigurður Sverrir Jónsson telst rétt kjörinn oddviti.
B) Varaoddviti; Ása Helgadóttir 5 atkvæði, 2 seðlar eru auðir. Ása Helgadóttir telst rétt kjörinn varaoddviti.
C) Skrifari; Sævar Ari Finnbogason 5 atkvæði, 2 seðlar eru auðir. Sævar Ari Finnbogason telst rétt kjörinn ritari.
D) Varaskrifari; Arnheiður Hjörleifsdóttir 4 atkvæði, Halldóra Halla Jónsdóttir 3 atkvæði. Arnheiður Hjörleifsdóttir rétt kjörin vararitari.

4.Kosningar.

1306034

A) Kjörstjórn: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. B) Til eins árs. Vatnsveitufélag Hvalfjarðar sf.: Kosið er í stjórn félagsins í samræmi við ákvæði sameignarfélagssamnings. 2 aðalmenn og 2 til vara.
A) Kjörstjórn: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Tillaga um óbreytta kjörstjórn. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0
B) Stjórn Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar;
Tillaga um að aðalmenn verði. Haraldur Magnússon, Guðjón Jónasson. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0
Tillaga um að varamenn verði, Sigurður Sverrir Jónsson, Stefán Ármannsson. Tillagan samþykkt samhljóð 7-0

5.Aðalfundur Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar sf.

1306036

Umboð á aðalfund Vatnsveitufélagsins.
SSJ lagði til að Ása Helgadóttir fari með umboð á fundinum. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

6.Ljósleiðari í Hvalfjarðarsveit.

1211014

Minnisblað sveitarstjóra, dags. 20. júní 2013.
LJ ræddi erindið og lagði fram eftirfarandi bókun;
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar auglýsti formlega eftir áhugasömum aðilum til þess að koma að fjárfestingu og/eða samstarfi um ljósleiðarvæðingu í Hvalfjarðarsveit.
Fjórir aðilar sýndu verkefninu áhuga og að afloknum viðræðum við þessa aðila var óskað eftir að þeir gerðu nánar grein fyrir með hvaða hætti þeir hygðust koma að verkinu.
Þrír aðilar; Míla, Gagnaveita Reykjavíkur og Rafteymi skiluðu inn gögnum 7, júní. Verkfræðistofan EFLA hefur verði ráðgjafi Hvalfjarðarsveitar og yfirfór gögnin sem bárust.

Það er niðurstaða sveitarstjórnarinnar að hafna öllum tillögum sem bárust. Megin ástæðan er kostnaðarþátturinn með vísan til þess að uppbygging og kostnaðarþátttaka Hvalfjarðarsveitar í verkefninu er mun meiri en sveitarstjórn telur ásættanlegt að leggja fjármagn í án þess að halda eignarhaldi á kerfinu.

Framangreindum aðilum er þakkaður áhugi þeirra á verkefninu, en að öðru leyti vísast til meðfylgjandi greiningar EFLU verkfræðistofu á tillögum þátttakenda.
Bókun samþykkt samhljóða 7-0.

7.Úrsögn úr sveitarstjórn.

1306035

Erindi frá Magnúsi Inga Hannessyni, dagsett 15. júní 2013.
SSJ lagði til að samþykkja úrsögnina. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

8.Ráðning byggingarfulltrúa.

1306001

Gögn lögð fram á fundinum.
HHJ óskar eftir að víkja af fundi.
LJ ræddi erindið og lagði fram eftirfarandi bókun;
Á grundvelli bókunarinnar frá síðasta fundi sveitarstjórnar höfum við þrjú farið yfir umsóknirnar og tekið viðtöl. Hópurinn samþykkti einróma á fundi sínum að leggja til við sveitarstjórn að ráða Guðnýju Elíasdóttur í starf byggingarfulltrúa.
Gerð er tillaga um að fela sveitarstjóra að gera ráðningarsamning við Guðnýju Elíasdóttur.
HV ræddi starfshlutfall. SÁ spurðist fyrir varðandi verkefnastjórnun sem viðkomandi hefur komið að. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. SAF tók undir með sveitarstjóra og svaraði fram komnum fyrirspurnum. Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að gera ráðningarsamning við Guðnýju Elíasdóttur í starf byggingarfulltrúa. Tillagan samþykkt samhljóða 6-0. HHJ tekur aftur þátt í fundinum.

9.Umsóknir um starf skipulags- og byggingarfulltrúa.

1304014

Frestað af 150. fundi sveitarstjórnar.
LJ lagði fram samningsdrög við Landlínur. Óskaði eftir heimild sveitarstjórnar til þess að ganga frá samkomulagi við Landlínur. AH ræddi fram komin samningsdrög. HV ræddi starf og starfsumhverfi skipulags- og byggingarfulltrúa. SAF ræddi samninginn og taldi að tekið hafi verið tillit til athugasemda. AH ræddi fundafyrirkomulag skipulagsfulltrúa og samninginn. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. HV ræddi fundarstjórn. AH spurðist fyrir varðandi samninginn við Landlínur. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum.
Sveitarstjórn samþykkir að heimila sveitarstjóra að ganga frá samningi við Landlínur. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

10.Húsnæði fyrir grasrótar- og félagsamtök.

1306016

Erindi frá Lýðræðisfélaginu Öldu, áður send gögn.
Sveitarstjórn þakkar ábendingar félagsins og minnir á að félagsheimili sveitarfélagsins standa að öllu jöfnu opin hvers konar félögum og samtökum íbúanna til fundarhalda gegn hóflegu gjaldi. Bókunin samþykkt samhljóða 7-0.

11.Styrkbeiðni vegna Youth Camp í Noregi.

1306021

Erindi frá Arnóri Huga Sigurðarsyni, dagsett 14. júní 2013.
SSJ ræddi erindið. Lagði til að vísa erindi Arnórs Huga Sigurðarsonar til fræðslu- og skólanefndar. SÁ ræddi erindið.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

12.Úttekt á umhverfisáhrifum á Grundartanga-skýrsla.

1305010

Bókun af fundi Faxaflóahafna sf. varðandi umhverfisúttekt á Grundartanga. Þegar sent skipulagsfulltrúa og form. USN nefndar.
SSJ ræddi erindið og lagði til að taka undir bókun Faxaflóahafna. SAF ræddi erindið og mun fjalla um erindið í USN nefndinni. AH ræddi fram komna bókun. SAF ræddi fram komna bókun.
Tillaga SSJ samþykkt samhljóða 7-0.

13.Breyting á aðalskipulagi í landi Eystra Miðfells og Kalastaðakots.

1306038

Erindi frá Borealis Data Center ásamt fylgigögnum.
SSJ ræddi erindið og vísaði til fyrri samþykktar sveitarstjórnar varðandi erindið frá 140. fundi sveitarstjórnar; en þar segir m.a. " 1211025 - Land undir gagnaver og annan léttan umhverfisvænan iðnað í landi Eystra-Miðfells og Kalastaðakots.
SAF ræddi erindið. HV ræddi erindið og bendir á bókun USN nefndar. SSJ ræddi erindið og leggur til að Borealis kynni erindið fyrir íbúum Hvalfjarðarsveitar. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0."
Sveitarstjórn ítrekar fyrri afgreiðslu varðandi að kynna erindið fyrir íbúum Hvalfjarðarsveitar. SSJ lagði til að vísa erindinu til kynningar í USN nefnd. SAF ræddi erindið. HV ræddi verkefnið. SAF ræddi erindið. Bókunin samþykkt samhljóða 7-0

14.Styrktarsjóður EBÍ 2013.

1306024

Erindi frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands, dagsett 11. júní 2013.
SSJ ræddi erindið og lagði til að vísa erindinu til kynningar í menningarmála- og atvinnuþróunarnefndar, til fræðslu- og skólanefndar og til stjórnar nýsköpunarsjóðs, tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

15.Námsferð til Skotlands 3.-5. september nk.

1306023

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 6. júní 2013.
Erindið framlagt

16.Yfirnefnd fjallskilamála.

1202064

Afgreiðsla bæjarstjórnar Akraness, sem haldinn var þann 11. júní 2013.
HV ræddi erindið. SÁ ræddi erindið. HV ræddi erindið og ítrekar fyrri bókun sveitarstjórnar. SSJ ræddi erindið. Erindið framlagt

17.25. og 26. stjórnarfundur Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar sf.

1306032

Fundargerðirnar framlagðar

18.75. fundur Sorpurðunar Vesturlands, 10. júní 2013.

1306020

Fundargerðin framlögð

19.29. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.

1306022

Fundargerðin framlögð

Fundi slitið - kl. 16:00.

Efni síðunnar