Fara í efni

Sveitarstjórn

143. fundur 26. febrúar 2013 kl. 16:00 - 16:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Sigurður Sverrir Jónsson oddviti
  • Ása Helgadóttir varaoddviti
  • Sævar Ari Finnbogason ritari
  • Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Halldóra Halla Jónsdóttir vararitari
  • Björgvin Helgason 1. varamaður
Fundargerð ritaði: Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár. SSJ leitaði afbrigða að taka lið 7 mál 1302060 fyrst á dagskrá. Samþykkt samhljóða.
KHÓ sat fundinn undir lið 7. HHK sat fundinn undir 2 og 5 lið. Að auki sat sveitarstjóri(LJ) fundinn ritaði fundargerð.
KHÓ vék af fundi kl. 16.15. HHK vék af fundi kl. 16.47

1.Sveitarstjórn - 142

1301003F

Fundargerðin framlögð.

2.Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 19

1301001F

HHV fór yfir efnisatriði fundargerðarinnar. SÁ lagði til að taka undir bókun USN nefndar varðandi lið 4, samgöngumál og lagði til að sveitarstjóri fylgdi verkefninu eftir. Spurðist fyrir varðandi umhverfisviðurkenningar. SAF tekur undir varðandi lið 4 og ræddi lið 8 og lagði til við sveitarstjórn að taka undir bókun nefndarinnar. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum. SSJ lagði til að taka undir bókun í lið 8. mál 1302040. Tillagan samþykkt 7-0.
Fundargerðin framlögð.
  • 2.1 1211030 Hrafnabjörg 1. Stofnun lóðar í fasteignaskrá.
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 19 Frestað mál frá 18. fundi nánari upplýsingar liggja fyrir ásamt leiðréttum uppdrætti. Nefndin samþykkir erindið að því gefnu að fyrir liggi yfirlýsing um að neysluvatn sé tryggt. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • 2.2 1212031 Ölver. Stofnun lóðar í fasteignaskrá
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 19 Frestað mál frá 18. fundi, nánari upplýsingar liggja fyrir um stofnun lóðarinnar. Nefndin samþykkir erindið. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • 2.4 1302045 Samgöngumál.
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 19 Á vef vegagerðarinnar eru auglýst fyrirhuguð útboð á árinu 2013. Þar eru tilgreind tvö verkefni sem stendur til að bjóða út á árinu í Hvalfjarðarsveit. Annars vegar er Svínadalsvegur (502), Leirársveitarvegur Kambshóll og hins vegar Melasveitarvegur (505), Hringvegur- Bakki.
    USN-nefnd fagnar fyrirhuguðum framkvæmdum á þessum tengivegum í sveitarfélaginu, enda er hér um að ræða umferðarþunga tengivegi. Samkvæmt umferðartölum 2011 sem birtar eru á vef vegagerðarinnar, kemur fram að Svínadalsvegur er með meðal sólarhringsumferð yfir sumarmánuðina 164 bíla en Melasveitarvegur er með 177.
    Nefndin andmælir þeim hugmyndum sem komið hafa fram að Melasveitarvegur verði byggður upp í einni vegbreidd, þar sem um sambærilega vegi er að ræða og vill beina því til veghaldara að báðir þessir vegir verði byggðir upp í þeirri breidd að bílar geti mæst án erfiðleika (6 -6,5 m).
    Jafnframt vill nefndin benda á mikilvægi þess að bregðast við þeim miklu þungaflutningum sem eiga sér stað um Melasveitarveg að svínabúi Stjörnugríss að Melum.
    Bókun fundar SSJ lagði fram bókun; Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur undir bókun USN nefndar. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar andmælir þeim hugmyndum sem komið hafa fram að Melasveitarvegur 505 verði byggður upp í einni vegbreidd. En verði byggður eins og vegur 502 Svínadalsvegur þar sem um sambærilega vegi er að ræða. Jafnframt vill sveitarstjórn beina því til veghaldara að bæði 505-Melasveitavegur og 502-Svínadalsvegur verði byggðir upp í þeirri breidd að bílar geti mæst án erfiðleika (6 -6,5 m).
    Jafnframt vill sveitarstjórn benda á mikilvægi þess að bregðast við þeim miklu þungaflutningum sem eiga sér stað um Melasveitarveg að svínabúi Stjörnugríss að Melum. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • 2.5 1302047 Höfn. Skipting lands
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 19 Nefndin samþykkir erindið. Bókun fundar Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • 2.8 1302048 Fundur með hagsmunaaðilum Hótel Glym
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 19 Nefndin hvetur til þess að sótt verði um í Framkvæmdarsjóð Ferðamannastaða fyrir 1.mars nk. Bókun fundar LJ ræddi erindið. SAF ræddi erindið. Erindið framlagt.

3.Fyrirmynd að samþykkt um stjórn sveitarfélags og augl. um ritun fundargerða.

1211054

Drög að samþykktum, síðari umræða.
LJ fór yfir að erindið er komið frá IRR og að um er að ræða samræmt módel og að fyrirmyndin er byggð á grundvelli 9. gr sveitarstjórnarlaga 138/2011. Bráðabirgðaákvæði nr IV í lögunum um sveitarstjórnarmál 138/2011 (en það fjallar um heimild til að láta fyrri samþykktir standa óbreyttar þar til samþykktir taka gildi) en þetta ákvæðið féll úr gildi 1. janúar 2013.
SÁ óskaði eftir að fá vinnuskjalið aftur sent og að erindinu verði frestað. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. SAF ræddi fram komnar athugasemdir og lagði til að fresta afgreiðslu. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. Tillaga um að fresta afgreiðslu til næsta fundar sveitarstjórnar 12. mars. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

4.Til umsagnar frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórna, 537. mál.

1302056

Frá Alþingi, dagsett 20. febrúar 2013. Þegar sent sveitarstjórn.
Erindið framlagt

5.Uppbygging reiðvega í Hvalfjarðarsveit. Reiðvegur við Kúludalsá.

1302028

Frá Ragnheiði Þorgrímsdóttur, dagsett 22. febrúar 2013. Upplýsingar vegna reiðvega í landi Kúludalsár.
SSJ ræddi erindið. SAF ræddi erindið. SÁ ræddi erindið og býður fram að formaður hestamannafélagsins Dreyra komi að málinu.
Tillaga um að fela skipulags- og byggingarfulltrúa, sveitarstjóra og formanni hestamannafélagsins Dreyra að kanna með samþykki landeigenda, samþykki Vegagerðarinnar um uppbyggingu á reiðvegi. Jafnfram að kanna hvort umræddur vegur er samkvæmt gildandi skipulagi. SAF ræddi erindið. SÁ fór yfir erindið. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

6.Samstarf varðandi umsókn um styrk í framkvæmdasjóð ferðamannastaða vegna uppbyggingar við fossinn Glym.

1302061

Erindi frá Markaðsstofu Vesturlands, dagsett 22. febrúar 2013.
LJ fór yfir erindið. Lagði fram eftirfarandi bókun; Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að taka upp viðræður við landeigendur varðandi mögulegt samstarf er varðar hugsanlega uppbyggingu vegna ferðaþjónustu á svæðinu. SSJ ræddi erindið. HV ræddi erindið og lagði til að sækja um í framkvæmdasjóð ferðamála með fyrirvara um samþykki landeigenda. SAF ræddi erindið og tók undir að sækja um í sjóðinn. SÁ ræddi fram komið erindi og lagði til að sækja um í sjóðinn. BH ræddi erindið og lagði til að sækja um. Tillagan samþykkt samhljóða 6-0. SÁ situr hjá við afgreiðsluna og gerði grein fyrir atkvæði sínu. SAF gerir grein fyrir atkvæði sínu.

7.Rekstraryfirlit jan. - des. 2012.

1302060

Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.
KHÓ fór yfir erindið. ÁH ræddi yfirlitið. Erindið framlagt.

8.Minnisblað vegna ljósleiðaravæðingar fyrir Hvalfjarðarsveit

1211064

Minnisblað frá sveitarstjóra.
LJ fór yfir erindið og mun vinna áfram að gagnaöflun. SAF ræddi erindið. Ræddi minnisblað Mílu. Ræddi leyfisveitingar varðandi erindi til Póst- og fjarskiptastofnunar. Hvort sækja þurfi um leyfi. Ræddi næstu skref hvort fara eigi leið Mílu eða halda áfram óbreytta fyrri leið. Fór yfir minnisblað GD um teikningar Eflu og kostnaðaráætlun.
SAF: Leggur til að ljósleiðarahópur fari yfir minnisblað Mílu, og síðan haldi sveitarstjórn vinnufund um málið og fjalli um hvort það gefi tilefni til einhverrar stefnubreytingar, ekki verði fundað með Mílu eða öðrum aðilum á fjarskipamarkaði fyrr en sveitarstjórn hefur fjallað um þetta mál. Erindið framlagt.

9.Minnisblað vegna umræðu um bókasöfn.

1302051

Frá Sveitarstjóra.
LJ fór yfir erindið. Erindið framlagt.

10.Minnisblað varðandi fund með stjórn Hitaveitufélags Hvalfjarðar og fl.

1302054

Minnisblað frá sveitarstjóra.
LJ fór yfir erindið. Erindið framlagt.

11.XXXVII. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.

1302043

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 14. febrúar 2013.
LJ gerði grein fyrir að á fundi sveitarstjórnar þann 15. júní 2010 var eftirfarandi bókað; Tillaga um að aðalmaður verði Sigurður Sverrir Jónsson. Samþykkt samhljóða. Varamaður tillaga, Ása Helgadóttir. Samþykkt samhljóða. Að auki á sveitarstjóri seturétt að landsþingi með málfrelsi og tillögurétt. Erindið framlagt.

12.Auglýst eftir umsóknum um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 28. Landsmót UMFÍ 2017 og 29. Landsmót UMFÍ 2021.

1302031

Frá Ungmennafélagi Íslands, dagsett 7. febrúar 2013.
Erindið framlagt

13.Auglýst eftir umsóknum frá Sambandsaðilum UMFÍ um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 19. Unglingalandsmóts UMFÍ.

1302030

Frá Ungmennafélagi Íslands, dagsett 7. febrúar 2013.
Erindið framlagt

14.Auglýst eftir umsóknum um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 5. Landsmóts UMFÍ +50 árið 2015.

1302029

Frá Ungmennafélagi Íslands, dagsett 7. febrúar 2013.
Erindið framlagt

15.Afgreiðsla frá 38. sambandsráðsfundi Ungmennafélags Íslands.

1302049

Frá Ungmennafélagi Íslands.
Erindið framlagt

16.21. desember sl. voru afgreidd frá Alþingi lög, nr. 139/2012, um breytingu á III. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr 4/1995 með síðari breytingum.

1302055

Frá Jöfnunarsjóði, dagsett 15. febrúar 2013.
Erindið framlagt

17.Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.

1302057

Frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., dagsett 18. febrúar 2013.
Erindið framlagt

18.Til umsagnar frumvarp til laga um búfjárhald, 282. mál.

1302033

Frá Alþingi, dagsett 8. febrúar 2013. Þegar sent form. landbúnaðarnefndar.
Erindið framlagt

19.Til umsagnar frumvarp til laga um velferð dýra (heildarlög), 283. mál.

1302034

Frá Alþingi, dagsett 8. febrúar 2013. Þegar sent form. landbúnaðarnefndar.
Erindið framlagt

20.Boð á afhendingu styrkja til þeirra verkefna er hæstu styrki hlutu í ár.

1302044

Frá Menningarráði Vesturlands.
Erindið framlagt

21.Fjölskyldustefna og framkvæmd hennar.

1302058

Frá velferðarvaktinni, dagsett 20. febrúar 2013. Þegar sent form. fjölskyldunefndar og félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar.
Erindið framlagt

22.Tillaga frá E-lista, íbúaþing.

1204035

Á dagskrá að beiðni Arnheiðar Hjörleifsdóttur.
HV lagði fram tillögu frá AH um að halda íbúaþing laugardaginn 13. apríl og tímasetning verði uþb kl. 10 -15. SAF ræddi fram komna tillögu. SSJ fór yfir erindið og lagði til að þeir aðilar sem tilnefndir voru (SAF, AH og LJ) komi með hugmyndir og útfærslur að íbúaþingi á næsta fund sveitarstjórnar. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

23.106. fundur Faxaflóahafna.

1302050

Fundargerðin framlögð

Fundi slitið - kl. 16:00.

Efni síðunnar