Fara í efni

Sveitarstjórn

443. fundur 27. maí 2026 kl. 15:13 - 15:20 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Andrea Ýr Arnarsdóttir oddviti
  • Helga Harðardóttir varaoddviti
  • Helgi Pétur Ottesen ritari
  • Elín Ósk Gunnarsdóttir vararitari
  • Birkir Snær Guðlaugsson aðalmaður
  • Inga María Sigurðardóttir aðalmaður
  • Ása Hólmarsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Helga Harðardóttir varaoddviti
Dagskrá

1.Sveitarstjórn - 442

2605003F

Fundargerðin framlögð.

2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Nónholt 192290 - Grenndarkynning

2603030

Kynningartími í Skipulagsgátt var frá 1. maí 2026 og bárust 2 umsagnir. Í ljósi þess að þeir aðilar sem hagsmuna höfðu að gæta og grenndarkynningin beindist að, hafa lýst yfir skriflega, áður en kynningartími var liðinn, að þeir geri ekki athugasemdir við fyrirhuguð áform. Því hefur verið tímabil grenndarkynningar verið stytt.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar sem framkvæmd var skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, gerir Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar fyrir sitt leyti ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis fyrir viðbyggingu á lóðinni Nónholt L192290.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

3.Réttarhagi I og II - Umsókn um óverulega deiliskipulagsbreytingu

2605009

Kynningartími í Skipulagsgátt var frá 19. maí 2026 og bárust 8 umsagnir. Í ljósi þess að þeir aðilar sem hagsmuna höfðu að gæta og grenndarkynningin beindist að, hafa lýst yfir skriflega, áður en kynningartími var liðinn, að þeir geri ekki athugasemdir við fyrirhuguð áform. Því hefur verið tímabil grenndarkynningar verið stytt.

Breytingin felst í því að mænisstefna skuli vera samsíða eða hornrétt á hús á lóð, þakhalli verður 10° - 35° og að frágangur húsa skal vera vandaður og litaval falla vel að nærliggjandi umhverfi.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir deiliskipulagsbreytingu á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Réttarhaga I og II sem framkvæmd var skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

4.Aðalfundur Faxaflóahafna sf 2026.

2605021

Aðalfundarboð.
Áður auglýstum aðalfundi, sem fara átti fram föstudaginn 5. júní næstkomandi, verði fundinn nýr tími að beiðni Reykjavíkurborgar.

5.Staða húsnæðisuppbyggingar í Hvalfjarðarsveit.

2605020

Yfirlit frá HMS.
Erindið framlagt og vísað til kynningar á fyrsta fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar.

6.Barnvæn sveitarfélög-Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

2002048

Sveitarfélagið vinnur að innleiðingu á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með það að markmiði að verða Barnvænt sveitarfélag. Aðgerðaáætlun hefur verið samþykkt af sveitarstjórn og kynnt af ungmennaráði fyrir öllum nemendum í Heiðarskóli. Unnið hefur verið að þeim aðgerðum sem þar koma fram og stefnir í að sveitarfélagið fái viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag, á 20 ára afmælisdegi sveitarfélagsins, þann 1 júní 2026.
Lokaskýrsla framlögð. Sveitarstjórn fagnar þessum merka áfanga og óskar íbúum innilega til hamingju.

7.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Samband íslenskra sveitarfélaga.

2602001

Fundargerð 998. fundar.
Fundargerðin framlögð.

8.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Heilbrigðisnefnd Vesturlands.

2602042

Fundargerð 202. fundar.
Fundargerðin framlögð.

9.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Faxaflóahafnir sf.

2602017

Fundargerð 267. fundar.
Fundargerðin framlögð.
Þar sem þetta er síðasti fundur sveitarstjórnar á þessu kjörtímabili vill sveitarstjórn færa íbúum í Hvalfjarðarsveit, sveitarstjóra, starfsfólki sveitarfélagsins, landeigendum og frístundahúsaeigendum, sem og öðrum samstarfsaðilum bestu þakkir fyrir samstarfið á kjörtímabilinu. Einnig er nýrri sveitarstjórn óskað velfarnaðar og farsældar á komandi kjörtímabili.

Fundi slitið - kl. 15:20.

Efni síðunnar