Fara í efni

Sveitarstjórn

224. fundur 01. september 2016 kl. 13:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Björgvin Helgason oddviti
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti
  • Hjördís Stefánsdóttir ritari
  • Jónella Sigurjónsdóttir vararitari
  • Ása Helgadóttir aðalmaður
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
Fundargerð ritaði: Skúli Þórðarson sveitarstjóri
Dagskrá
Björgvin Helgason, oddviti bauð fundarmenn velkomna og setti fund skv. fyrirliggjandi dagskrá.
Oddviti lagði fram tillögu um að taka með afbrigðum á dagskrá fundarins sem lið nr. 1 "Fundargerð 12. fundar Landbúnaðarnefndar" og var það samþykkt með 7 atkvæðum.

1.12. fundur landbúnaðarnefndar.

1609002

Fundargerð framlögð.
DO kynnti einstök atriði fundargerðarinnar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir tillögur Landbúnaðarnefndar um skipan leitarstjóra, réttarstjóra, marklýsingarmanna og skilamanna. Þá samþykkir sveitarstjórn tillögu Landbúnaðarnefndar um að kaffiveitingar og salernisaðstaða verði við þær réttir þar sem óskað er eftir og jafnframt tillögu nefndarinnar um meðferð ályktunar frá Búnaðarþingi 2016."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

2.Starfsmannamál.

1608018

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að umræða og afgreiðsla þessa dagskrárliðar fari fram fyrir luktum dyrum þar sem um persónuleg einkamálefni er að ræða."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Bókað í trúnaðarbók.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar