Sveitarstjórn
Dagskrá
Andrea Ýr Arnarsdóttir, oddviti, bauð fundarfólk velkomið og setti fund skv. fyrirliggjandi dagskrá.
1.Sveitarstjórn - 436
2602002F
Fundargerðin framlögð.
2.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59
2601009F
Fundargerðin framlögð.
ÁH fór yfir helstu atriði fundarins.
ÁH fór yfir helstu atriði fundarins.
-
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir eftirfarandi breytingu á bókun nefndarinnar við umfjöllu um erindi Skipulagsstofnunar úr Skipulagsgátt á 54. fundi sínum þann 15.10.2025.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd hefur yfirfarið matsskyldufyrirspun sem gerir grein fyrir helstu umhverfisþáttum framkvæmdar er varðar áform um aukna efnistöku við Litlu-Fellsöxl. Framkvæmdin samræmist þeirri stefnu varðandi námur sem sett er fram í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, m.a. að efnistaka verður takmörkuð við núverandi staði. Sveitarfélagið vill árétta mikilvægi mótvægisaðgerða til að draga eins og hægt er úr neikvæðum áhrifum og að gengið verði jafnóðum frá þeim hlutum námunnar þar sem vinnslu er lokið. USNL-nefnd telur að ágætlega sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum og mótvægisaðgerðum. Þó vill nefndin árétta að í frágangsáætlun í kafla 2.7 er sett fram hefðbundin áætlun m.a. um nýtingu svarðlags, um samvinnu við landeigendur og sveitarfélag og telur USNL-nefnd mikilvægt að gerð verði góð grein fyrir frágangi námunnar og hvernig svæðið muni líta út eftir að námuvinnslu líkur. Í ljósi framlagðra gagna landeiganda og námuréttarhafa, telur USNL-nefnd að framkvæmdin skuli ekki háð umhverfismati að teknu tilliti til viðmiða í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Gera þarf breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og setja inn stækkað efnistökusvæði áður en sótt er um framkvæmdaleyfi en efnistaka er framkvæmdaleyfisskyld. Einnig leggur nefndin áherslu á að gert verði deiliskipulag af svæðinu.
Endanlegri afgreiðslu er vísað til sveitarstjórnar.
Sæmundur Víglundsson vék af fundi undir umræðu og afgreiðslu málsins.
Bókun fundar Með erindi dags. 21.07.2025 óskaði Skipulagsstofnun eftir umsögn Hvalfjarðarsveitar vegna fyrirspurnar um matsskyldu málsnr. 1268/2025. Borgarverk ehf. áætlar stækkun á námu í landi Litlu-Fellsaxlar sem nemur um 299.000 m3 á um 10 ha lands. Náman er staðsett í landi Litlu-Fellsaxlar. Efnisvinnsla hefur farið fram á hluta svæðisins og má áætla að þegar hafi verið unnið um það bil 185.000 m3 á um 13 ha, af efni á svæðinu. Áætlað er að um 10-15.000 m3 af efni séu enn til staðar í námunni og stendur til að fullvinna allt það efni sem til staðar er. Náman hefur ekki farið í gegnum hefðbundin umhverfismatsferli. Því nær fyrirspurn þessi til þeirrar efnisvinnslu sem áður hefur farið fram auk fyrirhugaðrar stækkunar. Fyrirspurnin nær því til um 499.000 m3 efnistöku á um 23 ha landi.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir eftirfarandi breytingu á bókun sveitarstjórnar við umfjöllun um erindi Skipulagsstofnunar.
Sveitarfélagið hefur yfirfarið matsskyldufyrirspurn sem gerir grein fyrir helstu umhverfisþáttum framkvæmdar er varðar áform um aukna efnistöku við Litlu-Fellsöxl. Framkvæmdin samræmist þeirri stefnu varðandi námur sem sett er fram í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, m.a. að efnistaka verður takmörkuð við núverandi staði.
Hvalfjarðarsveit vill árétta mikilvægi mótvægisaðgerða til að draga eins og hægt er úr neikvæðum áhrifum og að gengið verði jafnóðum frá þeim hlutum námunnar þar sem vinnslu er lokið. Sveitarfélagið telur að ágætlega sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum og mótvægisaðgerðum. Þó er vert að árétta að í frágangsáætlun í kafla 2.7 er sett fram hefðbundin áætlun m.a. um nýtingu svarðlags, um samvinnu við landeigendur og sveitarfélag og telur sveitarfélagið mikilvægt að gerð verði góð grein fyrir frágangi námunnar og hvernig svæðið muni líta út eftir að námuvinnslu líkur.
Í ljósi framlagðra gagna landeiganda og námuréttarhafa, telur sveitarfélagið að framkvæmdin skuli ekki háð umhverfismati að teknu tilliti til viðmiða í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Gera þarf breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og setja inn stækkað efnistökusvæði áður en sótt er um framkvæmdaleyfi en efnistaka er framkvæmdaleyfisskyld. Einnig leggur sveitarfélagið áherslu á að gert verði deiliskipulag af svæðinu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59 Það er mat umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar Hvalfjarðarsveitar að í matsáætluninni sé gerð fullnægjandi grein fyrir því hvernig staðið verði að umhverfismati. Því telur nefndin ekki tilefni til að gera athugasemdir við matsáætlunina. Í samræmi við í 12. gr. rgl. um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 1381/2021, minnir nefndin á að framkvæmdin er háð framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar, mannvirki á framkvæmdasvæðinu eru háð byggingarleyfi og framkvæmdin kallar á breytingar á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar og deiliskipulagi iðnaðar- og hafnarsvæðis á Grundartanga, vestursvæði.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Með erindi dags. 12.01.2026, óskaði Skipulagsstofnun eftir umsögn Hvalfjarðarsveitar vegna máls nr. 63/2026 í Skipulagsgátt, er varðar umhverfismat fyrirhugaðrar magnesíumframleiðslu/magnesíumverksmiðju á Grundartanga, þar sem Njörður Holding ehf. áformar að framleiða 50.000 tonn af magnesíum úr sjó sem verður fullunnið í magnesíummálmblöndur. Kynning matsáætlunar var kynnt í Skipulagsgátt, kynningartími var frá 19.1.2026 til 17.2.2026. Sveitarfélagið fékk frest til að svara erindinu til 27. febrúar 2026.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Það er mat Hvalfjarðarsveitar að í matsáætluninni sé gerð fullnægjandi grein fyrir því hvernig staðið verði að umhverfismati. Því telur sveitarfélagið ekki tilefni til að gera athugasemdir við matsáætlunina. Í samræmi við í 12. gr. rgl. um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 1381/2021, minnir sveitarfélagið á að framkvæmdin er háð framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar, mannvirki á framkvæmdasvæðinu eru háð byggingarleyfi og framkvæmdin kallar á breytingar á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar og deiliskipulagi iðnaðar- og hafnarsvæðis á Grundartanga, vestursvæði.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
-
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59 Í umhverfismatsskýrslunni kemur fram að vatnsból fyrir landeigendur sé innan efnistökusvæðisins og að það verði fært. Um er að ræða vatnsból sem merkt er „VB30“ á skipulagsuppdrætti, en því er ætlað að þjóna Geldingaá og Björk skv. skipulaginu. Að mati USNL-nefndar hefði verið æskilegt að útskýra fyrirhugaða færslu vatnsbólsins nánar í umhverfismatsskýrslunni, svo sem með því að tilgreina nýja staðsetningu og fjalla um fýsileika hennar út frá tiltækum gögnum. Gildir þá einu þótt eigendur Geldingaár séu jafnframt eigendur efnistökusvæðisins að hluta eða öllu leyti. Í þessu sambandi skiptir máli að samkvæmt gildandi aðalskipulagi verða engar framkvæmdir eða starfsemi sem ógnað geta brunnsvæðum leyfðar í nágrenni þeirra. Einnig ber að hafa í huga að rennslisleiðir vatns undir yfirborði eru ekki sýnilegar og því erfitt, án undangenginna rannsókna, að fullyrða um áhrif rasks á einum stað á vatnsstreymi annars staðar. Afmörkun vatnsverndarsvæða í skipulagi byggir ekki endilega á slíkum rannsóknum og því varhugavert að slá neinu föstu að lítt athuguðu máli um áhrif efnistöku á vatnsbúskap á svæðinu. Áður en ákvörðun er tekin er að mati nefndarinnar þörf á nánari skoðun á vatnsbúskap svæðisins í heild.
Í umhverfismatsskýrslunni kemur fram að framkvæmdir af því tagi sem áætlaðar eru á svæðinu muni óhjákvæmilega koma niður á fuglalífi þess. Fuglar muni væntanlega hverfa að mestu af svæðinu og sömuleiðis muni framkvæmdirnar og aukin umferð hafa fælandi áhrif sem ná út fyrir röskunarsvæðið. Áhrif framkvæmda á fuglalíf eru þó talin staðbundin og að mestu bundin við svæði þar sem fuglalíf er þegar takmarkað. Ekki sé talið líklegt að breyting verði á svæðisbundnum einkennum fuglalífs. Þegar þetta er skoðað er ástæða til að hafa í huga að víða um land standa til aðrar framkvæmdir sem rétt eins og þessi framkvæmd eru taldar hafa nokkuð neikvæð áhrif á fuglalíf. Jafnvel þótt áhrifin á hverjum stað séu tiltölulega lítil geta samanlögð heildaráhrif á landsvísu verið afgerandi, sérstaklega þegar haft er í huga að helstu mólendisfuglum landsins hefur fækkað árvisst og verulega undanfarin ár. Þetta á m.a. við um tegundir sem flokkast sem ábyrgðartegundir á Íslandi, þ.e. tegundir sem Íslendingum ber alþjóðleg skylda til að standa vörð um. Að því er fram kemur í umhverfismatsskýrslunni verpa fjórar slíkar tegundir á svæðinu sem um ræðir, þ.e.a.s. stelkur, jaðrakan, spói og lóuþræll. Með þetta í huga kann að vera ástæða til að skoða áhrif framkvæmda á borð við þá sem hér um ræðir á fuglalíf nánar og í víðara samhengi.
Í umhverfismatsskýrslunni kemur fram að fyrirhugað efnistökusvæði sé skilgreint sem landbúnaðarsvæði í flokki 2 í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Reiðleið liggi um svæðið samkvæmt gildandi aðalskipulagi, en sé ekki til staðar í dag. Framkvæmdin sé ekki í samræmi við gildandi skipulag og kalli á aðalskipulagsbreytingu þar sem efnistöku- og efnislosunarsvæði (E) verði afmarkað, ásamt því að breyta eða fella út reiðleiðina.
Í umhverfismatsskýrslunni kemur fram að markmiðið með efnistökunni sé að mæta vaxandi þörf fyrir jarðefni í Hvalfjarðarsveit og nágrenni og fram kemur í skýrslunni að mikil uppbygging sé fyrirhuguð á næstu árum og áratugum þar sem heildarefnisþörf sé áætluð yfir 3,3 milljónir rúmmetra. Nefndin leggur ekki mat á þessa útreikninga sem slíka, en eðlilegt er að líkleg efnisþörf sé einn þeirra þátta sem taka þarf í umræðuna, ef og þegar breyting verður á stefnumótun aðalskipulagsins en eins og komið hefur fram er stefna sveitarfélagsins skv. aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 að efnistaka verði „takmörkuð við núverandi staði til að vernda sem mest lítt raskað land í sveitarfélaginu“.
Núverandi heimildir skv. aðalskipulagi ásamt þeim breytingum sem samþykktar hafa verið að undanförnu, er um 10 milljón rúmetrar á um 200 hektara svæði. Ljóst er að af þeim landeigendum og námuréttarhöfum sem þegar eru með skilgreindar námur skv. aðalskipulagi, hafa nokkrir þeirra verið í viðræðum við sveitarfélagið um stækkun á sínum námum og/eða eru með umsóknir í gangi í þeim efnum. USNL-nefnd tekur því ekki undir með skýrsluhöfundum um að sú uppbygging sem fyrirhuguð sé á næstu árum og áratugum á svæðinu, geti ekki rúmast innan þeirra heimilda sem núverandi námur hafa skv. aðalskipulagi, einnig í ljósi þess að ýmsir landeigendur og námuréttarhafar huga að stækkun sinna náma í náinni framtíð.
Í umhverfismatsskýrslunni kemur fram að umferð í tengslum við efnistöku sé áætluð miðað við heildarefnistökumagn sem ræðst af eftirspurn eftir efnistöku á svæðinu sem getur þar af leiðandi verið í skorpum en búast má við að umferð frá svæðinu gæti verið umtalsverð og er það mat USNL-nefndar að betur megi gera grein fyrir áhrifum þessarar miklu umferðar á innviði sveitarfélagsins s.s. þjóðveg 1.
USNL-nefnd minnir á að framkvæmdin sem um ræðir er háð framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar. Eins og fram kemur í umhverfismatsskýrslunni kallar framkvæmdin enn fremur á breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar, þar sem svæðið sem um ræðir er skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Stefna Hvalfjarðarsveitar skv. aðalskipulaginu er að efnistaka verði „takmörkuð við núverandi staði til að vernda sem mest lítt raskað land í sveitarfélaginu“. Af þessu leiðir að umrædd breyting á aðalskipulagi er veigameiri en ella og ákvörðun um hana verður ekki tekin nema að undangenginni heildarúttekt á efnisþörf og mögulegum efnistökusvæðum í sveitarfélaginu.
Það er mat USNL-nefndar að umhverfismatsskýrslan sé að öðru leyti fullnægjandi í aðalatriðum, sé byggð á traustum gögnum, að úrvinnsla gagna hafi verið vönduð og að mat á vægi og eðli umhverfisáhrifa sé allvel rökstutt og skipulega fram sett. Skýrslan ber það með sér að tekið hafi verið tillit til ábendinga sem fram komu við kynningu á matsáætlun, svo sem með því að láta gera sérstakar rannsóknir á vistgerðum og fuglalífi.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Með erindi dags. 12.01.2026, óskaði Skipulagsstofnun eftir umsögn Hvalfjarðarsveitar vegna máls nr. 0036/2026 í Skipulagsgátt, sem varðar umhverfismatsskýrslu vegna fyrirhugaðrar efnistöku í landi Gandheima, þar sem áætlað er að vinna 4.800.000 m3 af malarefni á um 52 ha svæði. Árleg efnistaka getur verið um 200.000 m3 og miðað við þær forsendur getur efnistakan staðið í allt að 24 ár. Kynning matsáætlunar var kynnt í Skipulagsgátt, kynningartími var frá 12.1.2026 til 23.2.2026. Sveitarfélagið hefur frest til að svara erindinu til 27. febrúar 2026.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Í umhverfismatsskýrslunni kemur fram að vatnsból fyrir landeigendur sé innan efnistökusvæðisins og að það verði fært. Um er að ræða vatnsból sem merkt er „VB30“ á skipulagsuppdrætti, en því er ætlað að þjóna Geldingaá og Björk skv. skipulaginu. Að mati Hvalfjarðarsveitar hefði verið æskilegt að útskýra fyrirhugaða færslu vatnsbólsins nánar í umhverfismatsskýrslunni, svo sem með því að tilgreina nýja staðsetningu og fjalla um fýsileika hennar út frá tiltækum gögnum. Gildir þá einu þótt eigendur Geldingaár séu jafnframt eigendur efnistökusvæðisins að hluta eða öllu leyti. Í þessu sambandi skiptir máli að samkvæmt gildandi aðalskipulagi verða engar framkvæmdir eða starfsemi sem ógnað geta brunnsvæðum leyfðar í nágrenni þeirra. Einnig ber að hafa í huga að rennslisleiðir vatns undir yfirborði eru ekki sýnilegar og því erfitt, án undangenginna rannsókna, að fullyrða um áhrif rasks á einum stað á vatnsstreymi annars staðar. Afmörkun vatnsverndarsvæða í skipulagi byggir ekki endilega á slíkum rannsóknum og því varhugavert að slá neinu föstu að lítt athuguðu máli um áhrif efnistöku á vatnsbúskap á svæðinu. Áður en ákvörðun er tekin er að mati Hvalfjarðarsveitar þörf á nánari skoðun á vatnsbúskap svæðisins í heild.
Í umhverfismatsskýrslunni kemur fram að framkvæmdir af því tagi sem áætlaðar eru á svæðinu muni óhjákvæmilega koma niður á fuglalífi þess. Fuglar muni væntanlega hverfa að mestu af svæðinu og sömuleiðis muni framkvæmdirnar og aukin umferð hafa fælandi áhrif sem ná út fyrir röskunarsvæðið. Áhrif framkvæmda á fuglalíf eru þó talin staðbundin og að mestu bundin við svæði þar sem fuglalíf er þegar takmarkað. Ekki sé talið líklegt að breyting verði á svæðisbundnum einkennum fuglalífs. Þegar þetta er skoðað er ástæða til að hafa í huga að víða um land standa til aðrar framkvæmdir sem rétt eins og þessi framkvæmd eru taldar hafa nokkuð neikvæð áhrif á fuglalíf. Jafnvel þótt áhrifin á hverjum stað séu tiltölulega lítil geta samanlögð heildaráhrif á landsvísu verið afgerandi, sérstaklega þegar haft er í huga að helstu mólendisfuglum landsins hefur fækkað árvisst og verulega undanfarin ár. Þetta á m.a. við um tegundir sem flokkast sem ábyrgðartegundir á Íslandi, þ.e. tegundir sem Íslendingum ber alþjóðleg skylda til að standa vörð um. Að því er fram kemur í umhverfismatsskýrslunni verpa fjórar slíkar tegundir á svæðinu sem um ræðir, þ.e.a.s. stelkur, jaðrakan, spói og lóuþræll. Með þetta í huga kann að vera ástæða til að skoða áhrif framkvæmda á borð við þá sem hér um ræðir á fuglalíf nánar og í víðara samhengi.
Í umhverfismatsskýrslunni kemur fram að fyrirhugað efnistökusvæði sé skilgreint sem landbúnaðarsvæði í flokki 2 í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Reiðleið liggi um svæðið samkvæmt gildandi aðalskipulagi, en sé ekki til staðar í dag. Framkvæmdin sé ekki í samræmi við gildandi skipulag og kalli á aðalskipulagsbreytingu þar sem efnistöku- og efnislosunarsvæði (E) verði afmarkað, ásamt því að breyta eða fella út reiðleiðina.
Í umhverfismatsskýrslunni kemur fram að markmiðið með efnistökunni sé að mæta vaxandi þörf fyrir jarðefni í Hvalfjarðarsveit og nágrenni og fram kemur í skýrslunni að mikil uppbygging sé fyrirhuguð á næstu árum og áratugum þar sem heildarefnisþörf sé áætluð yfir 3,3 milljónir rúmmetra. Sveitarfélagið leggur ekki mat á þessa útreikninga sem slíka, en eðlilegt er að líkleg efnisþörf sé einn þeirra þátta sem taka þarf í umræðuna, ef og þegar breyting verður á stefnumótun aðalskipulagsins, en eins og komið hefur fram er stefna sveitarfélagsins skv. aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 að efnistaka verði „takmörkuð við núverandi staði til að vernda sem mest lítt raskað land í sveitarfélaginu“. Núverandi heimildir skv. aðalskipulagi ásamt þeim breytingum sem samþykktar hafa verið að undanförnu, er um 10 milljón m3 á um 200 ha svæði. Ljóst er að af þeim landeigendum og námuréttarhöfum sem þegar eru með skilgreindar námur skv. aðalskipulagi, hafa nokkrir þeirra verið í viðræðum við sveitarfélagið um stækkun á sínum námum og/eða eru með umsóknir í gangi í þeim efnum. Sveitarfélagið tekur því ekki undir með skýrsluhöfundum að sú uppbygging sem fyrirhuguð sé á næstu árum og áratugum á svæðinu, geti ekki rúmast innan þeirra heimilda sem núverandi námur hafa skv. aðalskipulagi, einnig í ljósi þess að ýmsir landeigendur og námuréttarhafar huga að stækkun sinna náma í náinni framtíð.
Í umhverfismatsskýrslunni kemur fram að umferð í tengslum við efnistöku sé áætluð miðað við heildarefnistökumagn sem ræðst af eftirspurn eftir efnistöku á svæðinu sem getur þar af leiðandi verið í skorpum en búast má við að umferð frá svæðinu gæti verið umtalsverð og er það mat Hvalfjarðarsveitar að betur megi gera grein fyrir áhrifum þessarar miklu umferðar á innviði sveitarfélagsins s.s. þjóðveg 1.
Sveitarfélagið minnir á að framkvæmdin sem um ræðir er háð framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar. Eins og fram kemur í umhverfismatsskýrslunni kallar framkvæmdin enn fremur á breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar, þar sem svæðið sem um ræðir er skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Stefna Hvalfjarðarsveitar skv. aðalskipulaginu er að efnistaka verði „takmörkuð við núverandi staði til að vernda sem mest lítt raskað land í sveitarfélaginu“. Af þessu leiðir að umrædd breyting á aðalskipulagi er veigameiri en ella og ákvörðun um hana verður ekki tekin nema að undangenginni heildarúttekt á efnisþörf og mögulegum efnistökusvæðum í sveitarfélaginu.
Það er mat Hvalfjarðarveitar að umhverfismatsskýrslan sé að öðru leyti fullnægjandi í aðalatriðum, sé byggð á traustum gögnum, að úrvinnsla gagna hafi verið vönduð og að mat á vægi og eðli umhverfisáhrifa sé allvel rökstutt og skipulega fram sett. Skýrslan ber það með sér að tekið hafi verið tillit til ábendinga sem fram komu við kynningu á matsáætlun, svo sem með því að láta gera sérstakar rannsóknir á vistgerðum og fuglalífi.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa skipulagslýsingu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032,skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Sæmundur Víglundsson vék af fundi undir umræðu og afgreiðslu málsins. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að auglýsa skipulagslýsingu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd gefur jákvæða umsögn með stofnun lögbýlis en tryggja skal að föst búseta sé á svæðinu í samræmi við ákvæði aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020-2032.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir og staðfestir bókun nefndarinnar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa skipulagslýsingu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, fyrir Fellsenda L133625, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að auglýsa skipulagslýsingu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, fyrir Fellsenda L133625, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59 Að mati umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar víkur tillagan óverulega frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis og því er að mati nefndarinnar um óverulega breytingu að ræða. Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa óverulega breytingu á deiliskipulagi svæðisins sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan verði grenndarkynnt meðal aðliggjandi landeigenda þ.e. Leirá, L133774.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að auglýsa óverulega breytingu á deiliskipulagi svæðisins sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan verði grenndarkynnt meðal aðliggjandi landeigenda þ.e. Leirá, L133774."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir með áorðnum breytingum og fyrir sitt leyti merkjalýsinguna og þær breytingar sem í henni felast.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir og staðfestir bókun nefndarinnar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir grenndarkynna byggingarleyfið að nýju skv.1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir aðliggjandi lóðarhöfum og landeiganda þ.e. Hjallholt 27 L133584, Hjallholt 30 L133587, Hjallholt 1B L239458, Hjallholt 1 L133558, Hjallholt L133560, Hjallholt 4 L133561, Hjallholt 25 L133582 og Þórisstaðir 2 L233003.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfið að nýju skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir aðliggjandi lóðarhöfum og landeiganda þ.e. Hjallholt 27 L133584, Hjallholt 30 L133587, Hjallholt 1B L239458, Hjallholt 1 L133558, Hjallholt L133560, Hjallholt 4 L133561, Hjallholt 25 L133582 og Þórisstaðir 2 L233003."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir erindið og felur Umhverfis- og skipulagsdeild að breyta heiti lóðarinnar Narfastaðaland 1 no.1 í Narfatún.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir og staðfestir bókun nefndarinnar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59 Umhverfis-, skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfi fyrir geymslu á lóðinni Hæðarbyggð 4, á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar sem framkvæmd var skv. 44. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir og staðfestir bókun nefndarinnar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir erindið að undangenginni skoðun byggingarfulltrúa á málinu. Erindið samræmist ákvæðum Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020-2032.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir og staðfestir bókun nefndarinnar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir erindið að undangenginni skoðun byggingarfulltrúa á málinu. Erindið samræmist ákvæðum Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020-2032.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir og staðfestir bókun nefndarinnar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 59 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að tilnefna Sæmund Víglundsson sem fulltrúa Hvalfjarðarsveitar í raflínunefnd.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að tilnefna Sæmund Víglundsson sem fulltrúa Hvalfjarðarsveitar í raflínunefnd."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
3.Bókasafnsþjónusta - samstarf sveitarfélaganna.
2502021
Málið var áður á dagskrá sveitarstjórnarfundar nr. 434 þann 14.janúar sl.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að ganga til samningaviðræðna við Akraneskaupstað um bókasafnsþjónustu. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra, oddvita og formanni Menningar- og markaðsnefndar að vinna málið áfram. Þegar samningsdrög liggja fyrir verði þau lögð fyrir sveitarstjórn. Málinu er vísað inn til kynningar í Menningar- og markaðsnefnd."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að ganga til samningaviðræðna við Akraneskaupstað um bókasafnsþjónustu. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra, oddvita og formanni Menningar- og markaðsnefndar að vinna málið áfram. Þegar samningsdrög liggja fyrir verði þau lögð fyrir sveitarstjórn. Málinu er vísað inn til kynningar í Menningar- og markaðsnefnd."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
4.Reiðvegasamningur.
2511006
Erindi frá Hestamannafélaginu Dreyra.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa erindinu inn í USNL nefnd."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
Birkir Snær Guðlaugsson vék af fundi undir umræðu og afgreiðslu málsins.

5.Umsagnarbeiðni - rekstur gististaðar í flokki II,-C, Brekka Retreat.
2602028
Erindi frá Sýslumanni Vesturlands.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar felur sveitarstjóra að veita umbeðna umsögn í samræmi við ákvæði 10. gr. laga nr. 85/2007 og í samráði við aðra umsagnaraðila. Metið verði hvort starfsemin sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála á svæðinu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar felur sveitarstjóra að veita umbeðna umsögn í samræmi við ákvæði 10. gr. laga nr. 85/2007 og í samráði við aðra umsagnaraðila. Metið verði hvort starfsemin sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála á svæðinu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
6.Umsagnarbeiðni - rekstur gististaðar í flokki II-H, Hlíð.
2602034

7.Styrkumsókn - Verkefnið sterkari út í lífið.
2602044
Erindi frá Sálfræðistofunni.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa erindinu inn í Velferðar- og fræðslunefnd."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa erindinu inn í Velferðar- og fræðslunefnd."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
8.Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga.
2602029
Erindi frá Lánasjóði sveitarfélaga.
Erindi framlagt.
9.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Heilbrigðisnefnd Vesturlands.
2602042
Fundargerð 200. fundar ásamt fylgigögnum.
Fundargerðin ásamt fylgigögnum framlögð.
Fundi slitið - kl. 15:47.