Fara í efni

Sveitarstjórn

383. fundur 27. september 2023 kl. 15:24 - 15:42 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Andrea Ýr Arnarsdóttir oddviti
  • Helga Harðardóttir varaoddviti
  • Helgi Pétur Ottesen ritari
  • Elín Ósk Gunnarsdóttir vararitari
  • Birkir Snær Guðlaugsson aðalmaður
  • Inga María Sigurðardóttir aðalmaður
  • Ómar Örn Kristófersson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Helga Harðardóttir varaoddviti
Dagskrá

1.Sveitarstjórn - 382

2309003F

Fundargerðin framlögð.

2.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 24

2309004F

Fundargerðin framlögð.
ÓÖK fór yfir helstu atriði fundarins.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 24 USNL nefnd telur erindið einnig eiga heima hjá sveitarstjórn og í mannvirkja- og framkvæmdanefnd sveitarfélagsins og leggur til við sveitarstjórn að því verði vísað þangað til kynningar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa erindinu inn til kynningar í Mannvirkja- og framkvæmdanefnd."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 24 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd gerir athugasemd við að veitt verði undanþága fyrir fjarlægð umræddra byggingarreita frá sjó. Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar vísar erindinu aftur inn til USNL nefndar og óskar eftir umsögn nefndarinnar vegna beiðnar um undanþágu frá ákvæði 5., 3., 2. og 14. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90-2013."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 24 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemd við nýjan valkost við Holtavörðuheiðarlínu 1, svokallaða Hallarmúlaleið. Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir og staðfestir bókun nefndarinnar að gera ekki athugasemd við nýjan valkost við Holtavörðuheiðarlínu 1, svokallaða Hallarmúlaleið."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

3.Fræðslunefnd - 52

2309005F

Fundargerðin framlögð.
IMS fór yfir helstu atriði fundarins.
  • 3.4 2204059 Frístundastefna.
    Fræðslunefnd - 52 Fræðslunefnd samþykkir drög að aðgerðaráætlun Frístundastefnu Hvalfjarðarsveitar 2023-2026 með áorðnum breytingum, og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagða aðgerðaráætlun Frístundastefnu Hvalfjarðarsveitar 2023-2026."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

4.Menningar- og markaðsnefnd - 44

2309002F

Fundargerðin framlögð.
BSG fór yfir helstu atriði fundarins.
  • Menningar- og markaðsnefnd - 44 Menningar- og markaðsnefnd leggur til við sveitarstjórn að umræða um endurnýjun leiktækja við Miðgarð verði tekin við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að umræða um endurnýjun leiktækja við Miðgarð verði tekin við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Skólasetursvegur 6 - rekstrarleyfi.

2309032

Erindi frá Sýslumanninum á Vesturlandi.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar felur sveitarstjóra að veita umbeðna umsögn í samræmi við ákvæði 10.gr. laga nr. 85/2007 og í samráði við aðra umsagnaraðila. Metið verði hvort starfsemin sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála á svæðinu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

6.Sundabraut - aðalskipulagsbreyting og umhverfismat.

2309031

Erindi frá Reykjavíkurborg.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa erindinu inn til USNL nefndar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Aðalfundur fulltrúaráðs Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands.

2309035

Aðalfundarboð ásamt kosningu varamanns.
Framlagt aðalfundarboð fulltrúaráðs Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 6. október nk.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að skipa Andreu Ýr Arnarsdóttur sem varafulltrúa í fulltrúaráð EBÍ, skv. lögum nr. 68/1994 um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Sjálfseignarstofnun - Nýsköpunarnet Vesturlands - Nývest.

2203029

Skýrsla stjórnar Nývest 2022-2023 ásamt fundargerð 7. stjórnarfundar.
Fundargerð framlögð ásamt skýrslu stjórnar.

9.Umsögn um tillögu til þingsályktunar um réttlát græn umskipti, 3. mál.

2309034

Erindi frá Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis.
Erindið framlagt.

10.932. og 933. fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

2309022

Fundargerðir.
Fundargerðirnar framlagðar.

Fundi slitið - kl. 15:42.

Efni síðunnar