Fara í efni

Sveitarstjórn

204. fundur 22. september 2015 kl. 16:30 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Björgvin Helgason oddviti
  • Jónella Sigurjónsdóttir vararitari
  • Ása Helgadóttir aðalmaður
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður
  • Brynja Þorbjörnsdóttir 2. varamaður
Fundargerð ritaði: Skúli Þórðarson sveitarstjóri
Dagskrá
Björgvin Helgason, oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til fundar og síðan var gengið til áður boðaðrar dagskrár.

Oddviti leitaði afbrigða um að taka á dagskrá fundarins mál nr. 1509040 "Þjóðarsáttmáli um læsi" og var það samþykkt með 7 atkvæðum.

1.Sveitarstjórn - 203

1509001F

Fundargerð framlögð.

2.Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 59

1509003F

Fundargerð framlögð.
ÓIJ fór yfir og skýrði einstök atriði fundargerðarinnar.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 59 USN nefnd samþykkir að beina því til sveitarstjórnar að verða við umsókn bréfritara og styrkja framkvæmdina um 500.000 kr í samræmi við reglur sveitarfélagsins um "styrktarsjóð vegna endurbóta á vatnsveitum tengdum íbúðarhúsum".
    USN nefnd felur skipulags - og umhverfisfulltrúa ásamt sveitarstjóra að fylgja málinu eftir.
    Bókun fundar ÁH tók til máls og lýsti yfir vanhæfi sínu til að taka þátt í afgreiðslu erindisins og vék af fundi.
    Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir tillögu USN-nefndar og felur sveitarstjóra og fjármálastjóra að útbúa viðauka og leggja fyrir næsta fund sveitarstjórnar.
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum.
    SÁ sat hjá við afgreiðslu tillögunnar.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 59 Skipulagsfulltrúi hefur rætt við bréfritara og skoðað málið. Skipulagsfulltrúi leggur til að bæta þurfi merkingar í samræmi við ábendingar bréfritara.
    USN nefnd samþykkir tillögu skipulagsfulltrúa og felur honum að ljúka málinu.

    USN nefnd telur mikilvægt að merkingar í sveitarfélaginu séu góðar og því leggur USN nefnd til við sveitarstjórn að gert sé ráð fyrir fjármagni í áframhaldandi vinnu við verkefnið árið 2016.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir tillögu USN-nefndar."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 59 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita umbeðið framkvæmdaleyfi."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 59 USN nefnd telur að nafnabreyting þessi sé í samræmi við lög um örnefni nr. 22/2015 og gerir því ekki athugsemdir við breytinguna. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir, að fenginni umsögn USN-nefndar, breytingu á nafni íbúðarhúsalóðarinnar Stóri-Lambhagi 2 Kringlumelur. Nýtt nafn verði Stóri-Lambhagi 5."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 59 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna byggingarleyfi skv. 3. mgr. 44. gr skipulaga nr.123/2010 fyrir eigendum:
    Litli Lambhagi (lnr 133639), Lambhagi 2 (lnr 192687), Stóri Lambhagi 4 (lnr 133659), Stóri Lambhagi 2 (21) (lnr 219307), Stóri Lambhagi 2 (lnr 133657), Stóri Lambhagi 2b (lnr 175751), Stóri Lambhagi 1a (lnr 222783), Stóri Lambhagi 1b (lnr 175641), Stóri Lambhagi 1 (lnr 133653), Stóri Lambhagi 2 Hlaðbúð (lnr 133631), Stóri Lambhagi vélaverkstæði (lnr 176024), Stóri Lambhagi 1d vélaverkstæði (lnr 133654)
    Litli Melur (lnr 133643), Stóri Lambhagi 3 (lnr 133658).
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir tillögu USN-nefndar um grenndarkynningu byggingarleyfisins skv. 3. mgr. 44. gr skipulaga nr.123/2010 fyrir eigendum:
    Litli Lambhagi (lnr 133639), Lambhagi 2 (lnr 192687), Stóri Lambhagi 4 (lnr 133659), Stóri Lambhagi 2 (21) (lnr 219307), Stóri Lambhagi 2 (lnr 133657), Stóri Lambhagi 2b (lnr 175751), Stóri Lambhagi 1a (lnr 222783), Stóri Lambhagi 1b (lnr 175641), Stóri Lambhagi 1 (lnr 133653), Stóri Lambhagi 2 Hlaðbúð (lnr 133631), Stóri Lambhagi vélaverkstæði (lnr 176024), Stóri Lambhagi 1d vélaverkstæði (lnr 133654)
    Litli Melur (lnr 133643), Stóri Lambhagi 3 (lnr 133658)."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

3.32. fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.

1509020

Fundagerð framlögð.
JS fór yfir og skýrði einstaka liði fundargerðarinnar.

4.Samstarfssamningar við Akraneskaupstað.

1412019

Endurskoðun samninga.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við fulltrúa Akraneskaupstaðar um endurskoðun tiltekinna samstarfssamninga.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fela oddvita, varaoddvita og sveitarstjóra að annast viðræður við fulltrúa Akraneskaupstaðar um endurskoðun samstarfssamninga um félagsstarf aldraðra, rekstur tónlistarskóla og ýmiss málefni á sviði félags- og íþróttamála og önnur möguleg samstarfsverkefni."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Fyrirspurn vegna innflytjenda.

1509024

Erindi frá Fjölmenningarsetrinu, dagsett 11. september 2015.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fela sveitarstjóra og félagsmálastjóra að svara fyrirspurnum sem fram koma í erindinu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

6.Stefnumótun fræðslu- og skólanefndar.

1506010

Drög að stefnumótun í æskulýðs- og tómstundarmálum ásamt ábendingum fjölskyldunefndar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa drögum að stefnumótun í æskulýðs- og tómstundamálum ásamt ábendingum fjölskyldunefndar til áframhaldandi umræðu og meðferðar hjá fræðslu- og skólanefnd."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Launauppbót almennra starfsmanna.

1409046

Frá sveitarstjóra.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að framlengja samþykkt sinni frá 11. nóvember 2014 um launauppbót til ófaglærðra starfsmanna í leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar þar til nýir kjarasamningar sveitarfélaga við stéttarfélög viðkomandi starfsmanna liggja fyrir. Þá verður ákvörðun um framhald þessara greiðslna tekin til endurskoðunar.
Viðauki 10 - vegna framangreindrar tillögu að fjárhæð kr. 380.000- á 04012 (leikskóli) og kr. 720.000- á 04022 (grunnskóli), samtals kr. 1.100.000-. Kostnaði verði mætt af fasteignagjaldatekjum 00006-0010." Tillagan ásamt viðauka 10 borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Þjóðarsáttmáli um læsi.

1509040

Erindi frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að taka þátt í verkefninu "Þjóðarsáttmáli um læsi". Sveitarstjórn leggur áherslu á mikilvægi þess að faglegt sjálfstæði skóla og sveitarfélaga sé tryggt hvað varðar val á aðferðarfræði í lestrarkennslu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Rekstraryfirlit janúar - júlí 2015.

1509031

Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.
Rekstraryfirlit framlagt.

10.Boð á IX. Umhverfisþing 9. október 2015.

1509025

Bréf frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.
Bréfið lagt fram til kynningar.

11.Haustþing SSV 2015.

1509026

Þingið fer fram á Hótel Glym, 7. október n.k. Þema þingsins verður samgöngumál.
Tilkynning um haustþing SSV 2015 lagt fram til kynningar.
Fulltrúar Hvalfjarðarsveitar á haustþingi SSV eru Ása Helgadóttir og Björgvin Helgason.
Til vara Daníel Ottesen og Skúli Þórðarson.

12.Tímabundin breyting á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

1509028

Bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dagsett 16. september 2015.
Bréfið lagt fram til kynningar.

13.Fjárhagsáætlun Faxaflóahafna sf. 2016 og samþykkt stjórnar, 14. september 2015.

1509029

Frá Faxaflóahöfnum sf., dagsett 17. september 2015.
Fjárhagsáætlun Faxaflóahafna sf. fyrir árið 2016 lögð fram til kynningar.

14.118. og 119. fundir SSV, 30. júní og 26. ágúst 2015.

1509021

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

15.53. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.

1509022

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

16.136. fundur stjórnar Faxaflóahafna sf.

1509023

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

17.829. og 830. fundir Sambands íslenskra sveitarfélaga.

1509027

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

18.Skýrsla sveitarstjóra.

1502013

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá síðasta fundi sveitarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar