Fara í efni

Sveitarstjórn

203. fundur 08. september 2015 kl. 16:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Björgvin Helgason oddviti
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti
  • Jónella Sigurjónsdóttir vararitari
  • Ása Helgadóttir aðalmaður
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður
  • Brynja Þorbjörnsdóttir 2. varamaður
Fundargerð ritaði: Skúli Þórðarson sveitarstjóri
Dagskrá
Björgvin Helgason, oddviti setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna til fundar og síðan var gengið til áður boðaðrar dagskrár.

Daníel Ottesen og Hjördís Stefánsdóttir boðuðu forföll.

1.Sveitarstjórn - 202

1508003F

Fundargerð framlögð.

2.Fræðslu- og skólanefnd - 120

1508002F

Fundargerð framlögð.
BH fór yfir fundargerðina.
  • Fræðslu- og skólanefnd - 120 Fræðslu- og skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja styrkumsóknina að því gefnu að staðfesting um þátttöku liggi fyrir. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita Sylvíu Mist Bjarnadóttur umbeðinn styrk úr íþróttasjóði."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Fræðslu- og skólanefnd - 120 Fræðslu- og skólanefnd samþykkir starfsáætlun Heiðarskóla fyrir skólaárið 2015-2016. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir starfsáætlun Heiðarskóla 2015-2016."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

3.31. fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.

1509006

Fundargerð framlögð.
JS fór yfir og kynnti einstaka liði fundargerðarinnar.

4.Fjárhagsáætlun 2016-2019.

1509002

Forsendur og verkáætlun fjárhagsáætlunargerðar 2016
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri kynnti og fór yfir forsendur og verkáætlun fjárhagsáætlunargerðar 2016.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagðar forsendur og verkáætlun. Þá samþykkir sveitarstjórn að tilnefna Ásu Helgadóttur, Björgvin Helgason og Daníel Ottesen í starfshóp um gerð fjárhagsáætlunar 2016."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Tillaga frá Skorradalshreppi, um að fá áheyrnarfulltrúa til setu á fundum Faxaflóahafna-Tillögunni var vísað til eigenda fyrirtækisins.

1509004

Erindi frá Faxaflóahöfnum.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemd við tillöguna en áréttar þó að verði hún samþykkt, óskar Hvalfjarðarsveit einnig eftir heimild til að skipa áheyrnarfulltrúa í stjórn Faxaflóahafna."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

6.10. fundur landbúnaðarnefndar.

1508015

Tilnefning á skilamanni í Oddstaðarétt, í stað Jóns Ottesens.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að tilnefna Guðbjart Stefánsson sem skilamann í Oddsstaðarétt í stað Jóns Ottesens sem beðist hefur lausnar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Ósk um fjárstuðning vegna reksturs Hernámssetursins á Hlöðum.

1509007

Erindi frá Guðjóni Sigmundssyni.
BÞ tók til máls og greindi frá þeirri afstöðu sinni að ekki væri rétt að veita rekstrar- eða fjárfestingarstyrk til safnsins eða annars reksturs í sveitarfélaginu og kallaði eftir því að sveitarstjórn mótaði stefnu um nýtingu félagsheimila með hagsmuni íbúa að leiðarljósi.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fresta afgreiðslu erindisins en samþykkir jafnframt að fela oddvita, sveitarstjóra og Jónellu Sigurjónsdóttur, formanni menningar- og atvinnuþróunarnefndar að fara yfir erindið og ræða við bréfritara."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum. BÞ sat hjá við afgreiðsluna.

8.Tölvubúnaður leik- og grunnskólans og fartölvukostur kennara.

1509008

Erindi frá skólastjóra Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar ársins 2016."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Rekstraryfirlit janúar-júní 2015.

1509001

Frá fjármálastjóra.
Rekstraryfirlit framlagt.

10.134. og 135. fundur stjórnar Faxaflóahafna sf.

1509005

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

11.Skýrsla sveitarstjóra.

1502013

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri kynnti nokkur af helstu verkefnum sínum frá síðasta sveitarstjórnarfundi.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar