Fara í efni

Sveitarstjórn

201. fundur 11. ágúst 2015 kl. 16:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Björgvin Helgason oddviti
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti
  • Hjördís Stefánsdóttir ritari
  • Jónella Sigurjónsdóttir vararitari
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður
Fundargerð ritaði: Skúli Þórðarson sveitarstjóri
Dagskrá
Björgvin Helgason, oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til fundar og síðan var gengið til áður boðaðrar dagskrár.

Ása Helgadóttir boðaði forföll.

1.Sveitarstjórn - 200

1507004F

Fundargerð framlögð.

2.Breyting á rekstri Kratusar, Grundartanga. Beiðni um umsögn.

1508001

Erindi frá Skipulagsstofnun, dagsett 28. júlí 2015.
Sveitarstjórn samþykkir að vísa erindinu til umsagnar USN-nefndar.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

3.Glammastaðir - Landamerki - Landsskipti

1303047

Erindi frá Land Lögmönnum, dagsett 6. júlí 2015.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að hafa samband við lögmann sveitarfélagsins í þessu máli en óskað hefur verið álits hans á erindinu.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

4.Endurnýjun starfsleyfis fyrir alifuglabúið Fögrubrekku.

1508002

Erindi frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu starfsleyfisins en gildistími þess er til og með 31. desember nk.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

5.Byggðasafnið í Görðum - skipulagsskrá.

1508005

Til samþykktar frá Akraneskaupstað.
Sveitarstjórn samþykkir framlagða skipulagsskrá og felur sveitarstjóra undirritun hennar.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

6.Reglur um fjárhagsáætlunarferli Hvalfjarðarsveitar.

1506041

Til samþykktar.
Sveitarstjórn samþykkir framlagðar reglur um fjárhagsáætlunarferli Hvalfjarðarsveitar.
Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að reglur þessar verði teknar til endurskoðunar innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

7.Menningarmál - umsögn um tillögur.

1506011

Svör frá Akraneskaupstað varðandi umsögn frá Hvalfjarðarsveit.
Bréf Akraneskaupstaðar lagt fram til kynningar.

8.127. fundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands.

1508003

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar