Öldungaráð
Dagskrá
1.Kjör í fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að skv. 39. gr. samþykkta um stjórn Hvalfjarðarsveitar.
2605029
Kosning varaformanns samkvæmt erindisbréfi öldungaráðs.
2.Öldungaráð
2305056
Námskeið til að veita öldungaráði innsýn í hvernig sveitastjórnarstigið virkar. Námskeiðið er til að auka skilning á sveitarstjórnarmálum og efla þekkingu á hvernig hægt er að hafa áhrif og taka þátt í lýðræðislegu ferli á vettvangi sveitarfélaga.
Öldungaráð tók þátt í námskeiði Sambands íslenskra sveitarfélaga um öldungaráð og hlutverk þeirra. Á námskeiðinu var fjallað um starfsemi sveitarstjórnarstigsins, hlutverk og ábyrgð öldungaráða og leiðir til að efla þátttöku þeirra og áhrif á ákvarðanatöku sveitarfélaga.
3.Fjárhagsáætlun 2027
2609011
Áherslur í vinnu við fjárhagsáætlun 2027.
Farið var yfir áherslur í áætlun fyrir málaflokka sem snúa að málefnum eldri borgara fyrir árið 2027 og voru umræður um málið.
Öldungaráð beinir því til sveitarstjórnar að hækka tekjumörk öryrkja og ellilífeyrisþega 67 ára og eldri vegna afsláttar fasteignagjalda. Öldungaráð beinir því einnig til sveitarstjórnar að hún hækki tekjuviðmið vegna sérstaks húsnæðisstuðnings.
Öldungaráð beinir því til sveitarstjórnar að hækka tekjumörk öryrkja og ellilífeyrisþega 67 ára og eldri vegna afsláttar fasteignagjalda. Öldungaráð beinir því einnig til sveitarstjórnar að hún hækki tekjuviðmið vegna sérstaks húsnæðisstuðnings.
4.Samfélagsmiðstöð í Heiðarborg
2509011
Farið yfir stöðu á samfélagsmiðstöðinni í Heiðarborg og næstu skref.
Kynnt var fyrir öldungaráði drög að teikningum af eldri hluta Heiðarborgar og fyrirhugaðri uppbyggingu samfélagsmiðstöðvar þar sem gert er ráð fyrir fjölbreyttri starfsemi fyrir íbúa á öllum aldri. Farið var yfir stöðu verkefnisins og næstu skref í undirbúningi og þróun samfélagsmiðstöðvarinnar.
5.Erindisbréf Hvalfjarðarsveitar.
2206005
Kynning á erindisbréfi öldungaráðs.
Umræður voru á fundi varðandi erindisbréfið og endurskoðun á því. Öldungaráð leggur til við sveitastjórn að formaður Öldungaráðs ásamt varaformanni og Velferðar- og fræðsludeild skoði endurnýjun á erindisbréfi.
6.Hvatning til sveitarstjórnar um öflugt starf Öldungaráðs.
2607021
Framlagt erindi frá Landssambandi eldri borgara.
Frestað fram að næsta fundi.
Fundi slitið - kl. 16:46.
Lögð fram tillaga um Marteinn Njálsson sem varaformann ráðsins.
Samþykkt samhljóða.