Fara í efni

Öldungaráð

7. fundur 12. mars 2026 kl. 12:30 - 14:07 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Helgi Pétur Ottesen formaður
  • Andrea Ýr Arnarsdóttir aðalmaður
  • Helga Jóna Björgvinsdóttir aðalmaður
  • Ragnheiður Helgadóttir aðalmaður
  • Aðalheiður Arnóra Oddsdóttir aðalmaður
  • Hannessína Ásgeirsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Kristín Rafnsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Freyja Þöll Smáradóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Freyja Þöll Smáradóttir deildarstjóri Velferðar- og fræðsludeildar
Dagskrá

1.Samfélagsmiðstöð í Heiðarborg

2509011

Í september 2025 samþykkti sveitarstjórn að semja við Guðmundu Ólafsdóttur um verkefnastjórn um mótun heildarsýnar fyrir Heiðarborg sem Samfélagsmiðstöð. Ráðgjafi hefur nú skilað inn samantekt og tillögum að nýtingu mannvirkja Heiðarborgar, sem er byggð á minnisblöðum og gögnum sem aflað var í ferlinu. Gögnum var aflað með íbúakönnun, fundum með hagsmunaðilum, nefndum, ráðum og sveitarstjórn. Skýr rauður þráður er að Heiðarborg verði miðja samfélagsins í Hvalfjarðarsveit, samkomustaður fyrir unga sem aldna.



Sveitastjórn vísaði málinu til kynningar til Velferðar- og fræðslunefnd.



Á 9. fundi Velferðar- og fræðslunefndar var eftirfarandi bókað: "Velferðar- og fræðslunefnd tekur undir og leggur áherslu á að Heiðarborg verði miðja samfélagsins í Hvalfjarðarsveit og að þar verði byggður upp íþrótta-/hreyfisalur með fjölbreyttri notkun og gildi fyrir ólíka aldurshópa. Í samantektinni er hreyfing og lýðheilsa skilgreind sem kjarnaþjónusta og lagt til að efla aðstöðu með skipulögðum tímum og betri nýtingu rýma".



Velferðar- og fræðslunefnd vísaði kynningu á niðurstöðum ráðgjafa til öldungaráðs.
Öldungaráð tekur undir með Velferðar- og fræðslunefnd að Heiðarborg verði miðja samfélagsins í Hvalfjarðarsveit og að þar verði byggður upp íþrótta-/hreyfisalur með fjölbreyttri notkun og gildi fyrir ólíka aldurshópa.

2.Gott að eldast - samþætt þjónusta

2306006

Erindisbréf um sameiginlegt móttöku- og matsteymi Hvalfjarðarsveitar, Hjúkrunarheimilisins Höfða og HVE til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

3.Önnur mál-Öldungaráð

2305050

Umræða skapaðist um önnur mál. Öldungaráð hefur lagt fram að frístundastyrkur yrði skoðaður fyrir eldri borgara í Hvalfjarðarsveit.

Fundi slitið - kl. 14:07.

Efni síðunnar