Fara í efni

Menningar- og markaðsnefnd

69. fundur 06. október 2026 kl. 15:00 - 16:45 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Brynhildur Stefánsdóttir formaður
  • Ásdís Björg Björgvinsdóttir aðalmaður
  • Baldur Þór Ketilsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Andrea Ýr Arnarsdóttir Verkefnastjóri Velferðar- og fræðsludeildar
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2027 - Menningar- og markaðsnefnd

2609038

Áherslur í vinnu við fjárhagsáætlun 2027.
Farið var yfir áætlun fyrir rekstur málaflokka menningar- og markaðsmála 2027 og voru umræður um málið.

Lagt fram til kynningar.

2.Samfélagsmiðlar.

2609003

Á fundi sveitarstjórnar þann 29. september sl. mættu fulltrúar Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar þau Anton Teitur Ottesen formaður, Hrafn Sölvi Vignisson, Valgarður Orri Egilsson, Díana Ingileif Ottesen og Veronika Jara Heimisdóttir. Þar var meðal annars kynnt að ungmennaráð Hvalfjarðarsveitar hefur stofnað samfélagasmiðlaaðganga.
Menningar- og markaðsnefnd fagnar framtaki Ungmennráðs. Umræður fóru fram um hvernig hægt væri að nýta vettvang Ungmennráðs til kynningar á menningarmálum sveitarfélagsins.

3.Viðburðir í Hvalfjarðarsveit 2026.

2601038

Viðburðir og hátíðarhöld 2026.
Umræða fór fram um þá viðburði sem fram undan eru á árinu.

4.Hvalfjarðardagar 2027.

2610002

Hvalfjarðardagar eru haldnir árlega þriðju helgina í ágúst.



Á fundi sveitarstjórnar þann 29. september sl. mættu fulltrúar Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar þau Anton Teitur Ottesen formaður, Hrafn Sölvi Vignisson, Valgarður Orri Egilsson, Díana Ingileif Ottesen og Veronika Jara Heimisdóttir.

Kynntar voru og framlagðar áherslur Ungmennaráðs, þar á meðal kom fram ósk ungmennráðs um að gert verði ráð fyrir fjármagni í fjárhagsáætlun 2027 til viðburða ungmennaráðs á Hvalfjarðardögum 2027.



Umræða fór fram um Hvalfjarðardaga 2027. Menningar- og markaðsnefnd telur mikilvægt að gert verði ráð fyrir fjármagni í fjárhagsáætlun 2027 til viðburðahalds á vegum Ungmennráðs á Hvalfjarðardögum 2027. Nefndin telur mikilvægt að haft verði samráð við ungmennráð snemma á skipulagsferli Hvalfjarðardaga.

Fundi slitið - kl. 16:45.

Efni síðunnar