Menningar- og markaðsnefnd
Dagskrá
1.Kjör í fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að skv. 39. gr. samþykkta um stjórn Hvalfjarðarsveitar.
2605029
2.Ákvörðun um fastan fundartíma Menningar- og markaðsnefndar
1806032
Ákvörðun um fastan fundartíma nefndarinnar.
Nefndin ákvað fastan fundartíma fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði kl. 15. Fundir falla niður ef ekki er tilefni til fundarhalda.
3.Erindisbréf Hvalfjarðarsveitar.
2206005
Erindisbréf Menningar- og markaðsnefndar kynnt.
Lagt fram til kynningar.
4.Fjárhagsáætlun Menningar- og markaðsnefndar 2026
2509029
Farið yfir fjárhagsáætlun Menningar- og markaðsnefndar árið 2026.
Lagt fram til kynningar.
5.Hvalfjarðardagar 2026
2511038
Hvalfjarðardagar verða haldnir 14. - 16. ágúst 2026. Samningur hefur verið gerður við Valdimar Inga Brynjarsson og Hjörvar Gunnarsson um umsjá Hvalfjarðardaga.
Umræður fóru fram um skipulag. Valdimar Ingi Brynjarsson og Hjörvar Gunnarsson sátu undir þessum lið.
Velferðar- og fræðsludeild falið að vinna málið áfram.
Velferðar- og fræðsludeild falið að vinna málið áfram.
6.Afmælisár Hvalfjarðarsveitar - 20 ára þann 1. júní 2026.
2602019
Umræður um viðburð.
Í ár fagnaði Hvalfjarðarsveit 20 ára afmæli. Sveitarfélagið varð til 1. júní 2006 með sameiningu fjögurra hreppa. Að því tilefni var opið hús í stjórnsýsluhúsinu í Melahverfi þann 1. júní síðastliðinn kl. 16:30, þar sem íbúar, starfsfólk og aðrir velunnarar fögnuðu saman þessum 20 árum. Boðið var upp á veitingar og tónlistaratriði.
Einnig færði sveitarfélagið, í tilefni af afmælinu, nemendum leik- og grunnskóla merktar peysur að gjöf. Peysurnar voru afhentar á afmælisdaginn sjálfan. Nemendum var jafnframt boðið á sérstaka afmælishátíð fyrir nemendur og starfsfólk sveitarfélagsins í stjórnsýsluhúsinu í Melahverfi fyrr um daginn, 1.júní.
Sérstakar þakkir fá Kvenfélagið Lilja fyrir veitingar, Heiðmar Eyjólfsson fyrir tónlistaratriði og Anton Teitur Ottesen og Oddur Ottesen fyrir myndbandsgerð.

7.Bókasafnsþjónusta - samstarf sveitarfélaganna.
2502021
Samningur við bókasafn Akraness kynntur.
Lagt fram til kynningar.
8.Markaðs- og kynningarátak í Hvalfjarðarsveit
1905042
Gerður var samningur við ENNEMM auglýsingastofu árið 2024 vegna markaðs- og kynningarátaks í Hvalfjarðarsveit. Hluti af því verkefni var að setja aðkomutákn við komu inn í Hvalfjarðarsveit við Hvalfjarðargöng. Sótt hefur verið um framkvæmdarleyfi og er það í ferli.
Samfélagsmiðlaherferð fór af stað vorið 2026 samhliða úthlutun lóða í Melahverfi. Skilað verður árangurskýrslu vegna hennar.
Samfélagsmiðlaherferð fór af stað vorið 2026 samhliða úthlutun lóða í Melahverfi. Skilað verður árangurskýrslu vegna hennar.
Umræður fóru fram um markaðs- og kynningarátak í Hvalfjarðarsveit.
9.Viðburðir í Hvalfjarðarsveit 2026.
2601038
Kynntir voru fyrir menningar- og markaðsnefnd fyrirhugaðir viðburðir í Hvalfjarðarsveit árið 2026.
Umræður fóru fram um komandi viðburði í Hvalfjarðarsveit.
10.Barnamenningarhátíð
2405029
Barnamenningarhátíð Vesturlands 2026 kynnt.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 18:50.
a) Varaformaður
Lögð fram tillaga um Ásdísi Björg Björgvinsdóttur sem varaformann nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.
b) Ritari
Lögð fram tillaga um Baldur Þór Ketilsosn sem ritara nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.