Fara í efni

Menningar- og markaðsnefnd

65. fundur 06. maí 2026 kl. 16:30 - 17:25 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Birkir Snær Guðlaugsson formaður
  • Ásdís Björg Björgvinsdóttir ritari
  • Guðjón Þór Grétarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Andrea Ýr Arnarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Anna Guðrún Alexandersdóttir Verkefnastjóri Velferðar- og fræðsludeildar
Dagskrá

1.Hvalfjarðardagar 2026

2511038

Hvalfjarðardagar verða haldnir 14. - 16. ágúst 2026.
Umræður fóru fram um skipulag. Velferðar- og fræðsludeild falið að vinna málið áfram.

2.Markaðs- og kynningarátak í Hvalfjarðarsveit

1905042

Umræður um aðkomutákn og samfélagsmiðlaherferð.
Umræður fóru fram um markaðs- og kynningarátak í Hvalfjarðarsveit.

3.Afmælisár Hvalfjarðarsveitar - 20 ára þann 1. júní 2026.

2602019

Umræður um skipulag.
Í ár fagnar Hvalfjarðarsveit 20 ára afmæli. Sveitarfélagið varð til 1. júní 2006 með sameiningu fjögurra hreppa. Að því tilefni verður opið hús í stjórnsýsluhúsinu í Melahverfi þann 1. júní nk. kl. 16:30, þar sem íbúar, starfsfólk og aðrir velunnarar fagna saman þessum 20 árum. Boðið verður upp á veitingar, tónlistaratriði og fleira.

Einnig mun sveitarfélagið, í tilefni af afmælinu, færa nemendum leik- og grunnskóla merktar peysur að gjöf. Peysurnar verða afhentar á afmælisdaginn sjálfan. Nemendum verður jafnframt boðið á sérstaka afmælishátíð fyrir nemendur og starfsfólk sveitarfélagsins í stjórnsýsluhúsinu í Melahverfi fyrr um daginn, 1.júní.

Hvalfjarðardagar 2026 verða með afmælisþema í ár.

Velferðar- og fræðsludeild falið að vinna málið áfram.

4.Viðburðir í Hvalfjarðarsveit 2026.

2601038

Umræður fóru fram um viðburði í Hvalfjarðarsveit.

5.Málstefna Hvalfjarðarsveitar

2604011

Lögð eru fram drög að Málstefnu Hvalfjarðarsveitar.
Lagt fram til kynningar.

6.Leiðbeinandi verklagsreglur um barnvænt hagsmunamat

2603033

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt leiðbeinandi verklagsreglur um barnvænt hagsmunamat, þeim var vísað til kynningar hjá fastanefndum sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
Þar sem þetta er síðasti fundur Menningar- og markaðsnefndar á þessu kjörtímabili vil ég, fyrir hönd Velferðar- og fræðsludeildar, þakka ykkur innilega fyrir gott samstarf og farsæla samvinnu á liðnu tímabili (AGA).

Menningar- og markaðsnefnd vill þakka stjórnsýslunni innilega fyrir afar gott og gefandi samstarf á kjörtímabilinu.

Fundi slitið - kl. 17:25.

Efni síðunnar