Fara í efni

Landbúnaðarnefnd 2009-2021

15. fundur 20. ágúst 2019 kl. 16:00 - 17:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Baldvin Björnsson formaður
  • Magnús Már Haraldsson aðalmaður
  • Birna Sólrún Andrésdóttir varamaður
  • Eyjólfur Jónsson
Starfsmenn
  • Bogi Kristinsson Magnusen embættismaður
Fundargerð ritaði: Bogi Kristinsson Magnusen embættismaður
Dagskrá
Lilja Guðrún Eyþórsdóttir boðaði forföll.

1.Fjallskil 2019.

1908017

Göngur og réttir í Hvalfjarðarsveit 2019.
Fjallaskilaseðill Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2019


A.
Leitarsvæði Núparéttar
Núparétt: Leitarsvæðið nær yfir Leirár- og Melasveit og Svínadal norðan Laxár inn að mörkum Hlíðarfótar og Eyrar. Leitardagur er á laugardegi fyrir rétt.

Fyrri leitir:07.09.19
Fyrri rétt: 08.09.19 kl 13:00
Seinni leitir: 21.09.19
Seinni réttir: 21.09.19 Þegar smölun lýkur.

Leitarstjórar eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon.
Réttarstjóri er Baldvin Björnsson.
Marklýsingamenn eru Helgi Bergþórsson og Atli Viðar Halldórsson.
Skilamenn í Hornsrétt eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon.


B. Leitarsvæði Reynisréttar.
Leitarsvæðið nær yfir Skilmannahrepp allan, Innri-Akraneshrepp og Akraneskaupstað. Leitardagar skulu vera sömu daga og réttir eru.

Fyrri leitir: 21.09.19
Fyrri rétt: 21.09.19 þegar smölun lýkur
Seinni leitir: 28.09.19
Seinni réttir: 28.09.19 Þegar smölun lýkur

Leitarstjórar eru Bjarki Borgdal Magnússon og Ólafur Sigurgeirsson.
Réttarstjóri er Lilja Guðrún Eyþórsdóttir.
Marklýsingamenn eru Ólafur Sigurgeirsson og Haraldur Benediktsson


C. Leitarsvæði Svarthamarsréttar
Leitarsvæðið nær yfir Hvalfjarðarströnd, Svínadal allan sunnan Laxár og norðan Laxár að innanverðu allt að merkjum Eyrar og Hlíðarfótar og upprekstrarland Akraneskaupstaðar á Botnsheiði og land jarða í Skorradalshreppi sunnan Fitjaár allt að landi Litlu Drageyrar. Leitardagar eru föstudagur og laugardagur fyrir fyrri skilaréttir.

Fyrri leitir: 06 og 07.09.19
Fyrri rétt: 08.09.19 kl 10:00
Seinni leitir: 28 og 29.09.19
Seinni réttir: 29.09.19 þegar smölun lýkur

Leitarstjóri er Guðmundur Sigurjónsson.
Réttarstjóri er Arnheiður Hjörleifsdóttir.
Marklýsingamenn eru Guðmundur Sigurjónsson og Guðmundur Brynjólfur Ottesen.
Skilamenn í Oddstaðarétt eru Stefán Gunnar Ármannsson og Guðbjartur Þór Stefánsson

Nefndin leggur til að sveitarstjórn sjái til þess að við réttir í sveitarfélaginu verði kaffiveitingar og salernisaðstaða að höfðu samráði við réttarstjóra.


2.Girðingar meðfram þjóðvegi í Hvalfjarðarsveit.

1908018

Girðingarmál.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að sveitarfélagið og vegagerðin taki út girðingar meðfram þjóðvegum og þeir aðilar sem sinna viðhaldi fái greitt samkvæmt reglum vegagerðarinnar, en aðrir sem sinna ekki viðhaldi að þrýst verði á að því sé sinnt.
Nefndin leggur einnig til að þrýst verði á vegagerðina að klára ókláraðar girðingar meðfram þjóðvegum í sveitarfélaginu.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Efni síðunnar