Fara í efni

Landbúnaðarnefnd 2009-2021

16. fundur 19. ágúst 2020 kl. 14:30 - 15:30 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Baldvin Björnsson formaður
  • Lilja Guðrún Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Eyjólfur Jónsson varamaður
Starfsmenn
  • Bogi Kristinsson Magnusen embættismaður
Fundargerð ritaði: Bogi Kristinsson Magnusen embættismaður
Dagskrá
Magnús Már Haraldsson boðaði forföll.

1.Fjallskil 2020

2007007

Göngur og réttir í Hvalfjarðarsveit 2020.
Fjallaskilaseðill Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2020
A.Leitarsvæði Núparéttar Núparétt: Leitarsvæðið nær yfir Leirár- og Melasveit og Svínadal norðan Laxár inn að mörkum Hlíðarfótar og Eyrar.
Leitardagur er á laugardegi fyrir réttir.
Fyrri leitir Núparétt Sunnudaginn 13. sept kl.13 og seinni rétt laugardaginn 26.sept þegar smölun lýkur
Leitarstjórar eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon.
Réttarstjóri er Baldvin Björnsson.
Marklýsingamenn eru Helgi Bergþórsson og Atli Viðar Halldórsson.
Skilamenn í Hornsrétt eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf Magnússon.

B.Leitarsvæði Reynisréttar. Leitarsvæðið nær yfir Skilmannahrepp allan, Innri-Akraneshrepp og Akraneskaupstað. Leitardagar skulu vera sömu daga og réttir eru.
Fyrri Reynisrétt laugardaginn 19. sept þegar smölun lýkur og seinni
rétt laugardaginn 26. sept þegar smölun lýkur
Leitarstjórar eru Bjarki Borgdal Magnússon og Ólafur Sigurgeirsson.
Réttarstjóri er Lilja Guðrún Eyþórsdóttir.
Marklýsingamenn eru Ólafur Sigurgeirsson og Haraldur Benediktsson.

C.Leitarsvæði Svarthamarsréttar Leitarsvæðið nær yfir Hvalfjarðarströnd, Svínadal allan sunnan Laxár og norðan Laxár að innanverðu allt að merkjum Eyrar og Hlíðarfótar og upprekstrarland Akraneskaupstaðar á Botnsheiði og land jarða í Skorradalshreppi sunnan Fitjaár allt að landi Litlu Drageyrar. Leitardagar eru föstudagur og laugardagur fyrir fyrri skilaréttir.
Fyrri Svarthamarsrétt Sunnudaginn 20. sept kl 10 og seinni rétt
sunnudaginn 4.okt þegar smölun lýkur
Leitarstjóri er Guðmundur Sigurjónsson.
Réttarstjóri er Arnheiður Hjörleifsdóttir.
Marklýsingamenn eru Guðmundur Sigurjónsson og Guðmundur Brynjólfur Ottesen.
Skilamenn í Oddstaðarétt eru Stefán Gunnar Ármannsson og Guðbjartur Þór Stefánsson.

Vegna aðstæðna er bent á leiðbeiningar Almannavarna um göngur og réttir sem fylgja.

2.Lausaganga í Hvalfjarðarsveit

2008016

Erindi frá Sólveigu Jónsdóttur og Haraldi Jónssonar vegna lausagöngu í Hvalfjarðarsveit.
Lausaganga sauðfjár er ekki bönnuð í Hvalfjarðarsveit og á ekki við sem vitnað er í varðandi fjallskilasamþykkt nr. 683, III kafla 6 og 7 gr. um lausagöngu búfjár því enginn afréttur er á vegum sveitarfélagsins.

Fundi slitið - kl. 15:30.

Efni síðunnar