Fara í efni

Fræðslunefnd

45. fundur 17. nóvember 2022 kl. 16:30 - 18:15 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Dagný Hauksdóttir formaður
  • Inga María Sigurðardóttir varaformaður
  • Elín Ósk Gunnarsdóttir ritari
  • Berglind Ósk Jóhannesdóttir aðalmaður
  • Þórdís Þórisdóttir áheyrnafulltrúi
  • Sigurbjörg Friðriksdóttir áheyrnafulltrúi
  • Sigurbjörg Anna Þorleifsdóttir áheyrnafulltrúi
  • Sæmundur Rúnar Þorgeirsson varamaður
Starfsmenn
  • Sigríður Lára Guðmundsdóttir embættismaður
  • Eyrún Jóna Reynisdóttir embættismaður
  • Ása Líndal Hinriksdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Ása Líndal Hinriksdóttir Frístunda- og menningarfulltrúi
Dagskrá
Guðlaug Ásmundsdóttir, Ásdís Björg Björgvinsdóttir og Sólrún Jörgensdóttir boðuðu forföll.

1.Trúnaðarmál fræðslunefndar

2108003

Mál nr. 2210055.
Félagsmálastjóri kom inn á fundinn undir þessm lið og fór yfir málið.
Fært í trúnaðarbók.
Dagný Hauksdóttir ásamt áheyrnafulltrúum vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu málsins.

2.Erindi - ósk um aukafjárveitingu vegna sérfræðiþjónustu

2211017

Erindi frá leikskólastjóra.
Fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun 2022 að upphæð kr. 730.000,- á lið 4391 Önnur sérfræðiþjónusta.

3.Erindi frá skólastjóra Heiðarskóla

2210046

Máli frestað á síðasta fræðslunefndarfundi.
Fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn að gerður verði viðauki við þessa tvo liði, annars vegar vegna kostnaðar við þvott og hreingerningar, kr. 600.000 og hins vegar vegna sérmerkingar á húsnæði og skólalóð, kr. 510.000.

4.Vor - og haustfrístund 2022

2203040

Kostnaður við vor- og haustfrístund.
Lagt fram til kynningar. Fræðslunefnd telur mikilvægt að tekið verði mið af raunkostnaði vegna vor- og haustfrístundar 2022 við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.

5.Lógó Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar

2203037

Tillögur af nýjum kennimerkjum fyrir Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.
Hönnuður lagði fram tillögur að kennimerki fyrir Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar og mun vinna verkið áfram.

6.Niðurstöður skólapúlsinn í 6. -10. bekk

2211024

Fara yfir niðurstöður skólapúlsinn fyrir 6.-10. bekk.
Skólastjóri Heiðarskóla kynnti niðurstöður Skólapúlsins fyrir nemendur í 6.-10. bekk. Fræðslunefnd þakkar fyrir góða kynningu og óskar eftir upplýsingum um hvernig unnið verður með niðurstöðurnar.

7.Samantekt á fjölda barna í íþrótta- og tómstundastarfi

2211027

Samantekt á íþróttaiðkun barna og ungmenna.
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 18:15.

Efni síðunnar