Fara í efni

Fræðslu- og skólanefnd 2014-2018

117. fundur 20. apríl 2015 kl. 17:00 - 18:30 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Hjördís Stefánsdóttir formaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson varaformaður
  • Eyrún Jóna Reynisdóttir ritari
  • Björn Páll Fálki Valsson aðalmaður
  • Guðmundur Ólafsson aðalmaður
  • Helena Bergström áheyrnafulltrúi
  • Jón Rúnar Hilmarsson embættismaður
  • Arndís Halla Jóhannesdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Arndís Halla Jóhannesdóttir félagsmálastjóri
Dagskrá
Elín Ósk og Ragna eru forfallaðar.

1.Reglur um útleigu í Heiðarskóla og Heiðarborg.

1503034

Drög að reglum lagðar fram um útlegu í Heiðarskóla og Heiðarborg. Áframhaldandi vinna fyrirhuguð.

2.Stefnumótun í íþrótta- og æskulýðsmálum.

1503028

Farið yfir stöðuna.
Farið yfir stöðuna og hvað er framundan.

3.Fundargerð foreldrafélags leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar

1410063

Fundargerð foreldrafélags leik- og grunnskóla lögð fram til kynningar.

4.Beiðni um þátttöku í kostnaði vegna leikskóladvalar barns utan sveitarfélagsins.

1408011

Fræðslu- og skólanefnd hefur farið yfir umsókn BMA þar sem þess er óskað að Hvalfjarðarsveit komi að kostnaðarþátttöku vega dvalar barns hennar á leikskóla utan lögheimilissveitarfélags. Í málinu liggur fyrir umsókn, dags. 20. mars 2015, staðfesting frá Endurmenntun Háskóla Íslands, dags. 1. apríl 2015 og minnispunktar félagsmálafulltrúa.
Í reglum Hvalfjarðarsveitar um kostnaðarþátttöku og leikskóladvöl barna utan lögheimilissveitarfélags sem samþykktar voru í sveitarstjórn þann 10. febrúar 2015 kemur fram að meginreglan sé sú að sveitarfélagið bjóði börnum með lögheimili í sveitarfélaginu leikskóladvöl í sveitarfélaginu, í samræmi við reglur og gjaldskrá. Í undantekningartilvikum er unnt að óska eftir að Hvalfjarðarsveit greiði tímabundna leikskóladvöl fyrir barn með lögheimili í Hvalfjarðarsveit í öðru sveitarfélagi. Jafnframt segi í 1. gr. reglanna að hver og ein umsókn skuli metin sérstaklega með hagsmuni viðkomandi barns að leiðarljósi og afstaða tekin á málefnalegan hátt. Hafa skal í huga að um undantekningu er að ræða frá þeirri meginreglu að barn sæki leikskóla í því sveitarfélagi sem lögheimili þess er.
Verður ekki annað sé en að ástæða þess að sótt eru um kostnaðarþátttöku Hvaljfarðarsveitar sé sú að umsækjandi (móðir barnsins) stundar meistarnám í jákvæðri sálfræði við Endurmenntun Háskóla Íslands og því sé hentugra að barnið sæki leikskóla í Reykjavík heldur en í lögheimilissveitarfélaginu sem er Hvalfjarðarsveit. Um er að ræða svokalla lotunám, sem samanstendur af þremur 5 daga lotum á hvorri önn.
Fræðslu- og skólanefnd telur ljóst að félagsleg sjónarmið eigi ekki í máli þessu, einungis sé um það að ræða að fjölskyldan dvelji í Reykjavík vegna lotunáms umsækjanda. Nefndin telur það eitt og sér ekki vera þess eðlis að víkja eigi frá þeirri meginreglu sem fram kemur í 1. gr. reglanna, að barn sæki leikskóla í löghemilissveitarfélagi sínu. Sveitarfélagið er staðsett í nálægð við Reykjavík og er það all nokkuð tíðkað að íbúar sæki vinnu daglega á höfðuðborgarsvæðið. Á grundvelli framangreinds er beiðninni hafnað.

5.Trúnaðarmál.

1502028

Fært í sérstaka trúnaðarbók.

Fundi slitið - kl. 18:30.

Efni síðunnar