Fara í efni

Fræðslu- og skólanefnd 2014-2018

115. fundur 03. febrúar 2015 kl. 17:00 - 18:45 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Hjördís Stefánsdóttir formaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson varaformaður
  • Eyrún Jóna Reynisdóttir ritari
  • Björn Páll Fálki Valsson aðalmaður
  • Guðmundur Ólafsson aðalmaður
  • Helena Bergström áheyrnafulltrúi
  • Ragna Kristmundsdóttir áheyrnafulltrúi
  • Elín Ósk Gunnarsdóttir áheyrnafulltrúi
  • Jón Rúnar Hilmarsson embættismaður
  • Arndís Halla Jóhannesdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Arndís Halla Jóhannesdóttir félagsmálastjóri
Dagskrá

1.Erindi frá foreldrafélagi leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.

1501034

Stjórn foreldrafélgsins beinir þeirri tillögu til fræðslu- og skólanefndar að gera viðhorfskönnun á meðal foreldra um þörf á skóladagvist/frístundarheimili fyrir nemendur á aldrinum 6-10 ára.
Skólanefnd telur brýnt að huga að stofnun á rekstri frístundarheimilis/skóladagvistar og mun framkvæma viðhorfskönnun til þess að kanna þörf fyrir slíkan rekstur.

2.Kostnaðarþátttaka vegna leikskóladvalar barna utan sveitarfélagsins.

1501035

Drög að reglum Hvalfjarðarsveitar um kostnaðarþátttöku og leikskóladvöl barna utan lögheimilissveitarfélags
Drög að reglum samþykkt og nefndin beinir þeim tilmælum til sveitastjórnar að samþykkja reglurnar þannig að þær taki gildi í sveitarfélaginu.

3.Til umsagnar frumvarp til laga um menntamálastofnun (heildarlög), 456. mál.

1501046

Frá Alþingi.
Lagt fram til kynningar.

4.Til umsagnar frumvarp til laga um grunnskóla (kæruleiðir, einkareknir skólar o.fl.), 426.mál.

1501047

Frá Alþingi.
Lagt fram til kynningar.

5.Beiðni um þátttöku í kostnaði vegna leikskóladvalar barns utan sveitarfélagsins.

1408011

Erindi frá Birnu Maríu Antonsdóttir.
Ákveðið er að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar nefndarinnar enda er þá gert ráð fyrir að reglur um kostnaðarþátttöku og leikskóladvöl barna utan lögheimilissveitarfélags hafi tekið gildi.

6.Skólanámskrá Heiðarskóla og Skýjaborgar.

1502002

Nokkur umræða um námskrárnar. Málinu er frestað og nefndarmenn munu kynna sér námskrárnar betur.

7.Staða leik- og grunnskóla í Hvalfjarðarsveit.

1501036

Jón Rúnar Hilmarsson fer yfir stöðuna.
Jón Rúnar sagði frá starfsemi skólans.

8.Stefnumótun í íþrótta- æskulýðs og tómstundamálum.

1501037

Staða málsins - Íbúaþing.
Sagt frá vinnu sem er í gangi.

9.Breytingar á aðalnámskrá grunnskóla og stuðningur við innleiðingu námsskrár.

1501038

Frá mennta og menningarmálaráðuneytinu.
Bréf lagt fram til kynningar.

10.Hvatning til sveitarfélaga að gera átak í að hækka menntunarstig starfsmanna leikskóla.

1501039

Frá sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Bréf lagt fram til kynningar. Nefndin telur rétt að sveitarfélagið hugi að því að koma til móts við starfsfólk í leikskólum sem vill afla sér viðbótarmenntunar.

11.Fundargerð foreldrafélgs leik- og grunnskóla dgs.21.jan 2015

1501045

Fundargerð foreldrafélags leik- og grunnskóla til kynningar.

12.Afreksmannastyrkur.

1502001

Erindi frá Helenu Bergström.
Óskað verður eftir frekari gögnum frá málshefjanda.

Fundi slitið - kl. 18:45.

Efni síðunnar