Fara í efni

Fræðslu- og skólanefnd 2014-2018

111. fundur 18. september 2014 kl. 17:00 - 18:30 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Hjördís Stefánsdóttir formaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson varaformaður
  • Eyrún Jóna Reynisdóttir ritari
  • Björn Páll Fálki Valsson aðalmaður
  • Guðmundur Ólafsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Hjördís Stefánsdóttir formaður fræðslu- og skólanefndar
Dagskrá

1.Beiðni um þátttöku í kostnaði vegna leikskóladvalar barns utan sveitarfélagsins.

1408011

Farið yfir upplýsingar. Beiðnin rædd. Samþykkt er að verða við beiðni umsækjanda frá því að nám hefst í október og til áramóta. Samtals 3 mánuðir. Nefndin hefur aflað sér upplýsingar um það að um staðbundið lotunám er að ræða og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Endurmenntunar HÍ hefst námið í október 2014.
Nefndin telur rétt að samþykkja ekki beiðni umsækjanda til lengri tíma þar sem ætlunin er að semja reglur vegna leikskóladvalar barna utan lögheimilis sveitarfélagsins. Er stefnt að því að þeirri vinnu verði lokið í desember næstkomandi. Nefndin tekur fram að það að verða við beiðni umsækjanda að hluta feli ekki sér neinar skuldbindingar að hálfu sveitarfélagsins varðandi kostnaðarþátttöku árið 2015.

2.Beiðni um þáttöku í kostnaði vegna leikskóladvalar barns utan sveitarfélags

1409026

Beiðnin rædd. Á grundvelli þess að um viðkvæmar upplýsingar er að ræða er sú ákvörðun tekin að bóka um ákvörðun þess máls í trúnaðarbók.

3.Afreksstyrkir Hvalfjarðarsveitar

1409027

Lögð fram drög til umræðu.
Drög um afreksstyrktarsjóð Hvalfjarðarsveitar rædd. Formanni og ritara er falið að skoða afreksstyrktarsjóði annarra sveitarfélaga og setja fram önnur drög.

4.Almenn umræða um stefnu í tómstunda- og æskulýðsmálum

1409025

Samþykkt er að Birni Fálka sé falið að fara í grunnvinnu og taka fyrsta skref til að afla gagna varðandi stefnumótun í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsmálum. Nefndin fagnar því framtaki hjá UMSB að koma á stofnun íþrótta- og tómstundastarfi í Heiðarskóla.

Fundi slitið - kl. 18:30.

Efni síðunnar