Fara í efni

Fræðslu- og skólanefnd 2014-2018

118. fundur 18. júní 2015 kl. 20:15 - 20:15 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Eyrún Jóna Reynisdóttir ritari
  • Björn Páll Fálki Valsson aðalmaður
  • Björgvin Helgason embættismaður
  • Daníel Ottesen
  • Dagný Hauksdóttir
Fundargerð ritaði: Arndís Halla Jóhannesdóttir félagsmálastjóri
Dagskrá

1.Kosning formanns, varaformanns og ritara nefndarinnar.

1506042

Daniel Ottesen kosinn formaður, Dagný Hauksdóttir kosin varaformaður go Eyrún Jóna Reynisdóttir kosin ritari.

2.Erindisbréf fræðslu- og skólanefndar.

1506043

Erindisbréf fræðslu- og skólanefndar lagt fram til kynningar.

3.Skóladagatal Heiðarskóla

1506044

Skóladagatal Heiðarskóla lagt fram til kynningar. Nefndin frestar afgreiðslu til næsta fundar.

4.Leikskóladagatal

1506045

Leikskóladagatal lagt fram til kynningar. Nefndin frestar afgreiðslu til næsta fundar.

5.Skólanámskrá leik og grunnskóla

1506046

Skólanámskrá leik og grunnskóla lögð fram til kynningar.

6.Útleigureglur Heiðarskóla-drög

1506047

Drög að útleigureglum Heiðarskóla lögð fram til kynningar. Fræðslu - og skólanefnd gerir ekki athugasemd við drögin og samþykkir þau.

7.Útleigureglur Heiðarborg - drög

1506048

Útleigureglur Heiðarborgar lagðar fram. Fræðslu- og skólanefnd samþykkir drögin en leggur til að eftirfarandi klausa verði tekin út úr reglunum og Ungmennafélag Hvalfjarðarsveitar geri sérstakt samkomulag við sveitarstjórn um útleigu á Heiðarborg: ,,Ungmennafélag Hvalfjarðarsveitar greiðir ekki leigu fyrir afnot af Heiðarborg (Ungmennafélagið þarf að sjá til þess að nægt starfsfólk sé til að tryggja öryggi þeirra sem eru á þeirra vegurm og leiðbeinendur séu með fullgild réttindi íþrótta- og sundvarða)"".

Fundi slitið - kl. 20:15.

Efni síðunnar