Fara í efni

Fjölskyldunefnd 2015-2018

48. fundur 25. mars 2015 kl. 16:30 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Ása Helgadóttir formaður
  • Helgi Pétur Ottesen varaformaður
  • Jónella Sigurjónsdóttir ritari
  • Margrét Magnúsdóttir aðalmaður
  • Ragna Kristmundsdóttir 2. varamaður
  • Arndís Halla Jóhannesdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Arndís Halla Jóhannesdóttir félagsmálastjóri
Dagskrá

1.Reglur um akstursþjónustu.

1502025

Til samþykktar
Reglur um akstursþjónustu lagðar fyrir nefndina til samþykktar. Nefnin samþykkir reglurnar. Vísað til sveitastjórnar til samþykktar.

2.Reglur um félagslega heimaþjónustu

1405006

Til samþykktar.
Reglur um félagslega heimaþjónustu lagðar fyrir nefndina til samþykktar. Nefndin samþykkir reglurnar. Vísað til sveitastjórnar til samþykktar.

3.Reglur um fjárhagsaðstoð.

1502023

Til samþykktar
Umræður um reglurnar. Félagsmálastjóra falið að kanna viðmiðunarupphæðir.

4.Reglur um liðveislu.

1502024

Til samþykktar
Reglur um félagslega liðveislu lagðar fyrir nefndina til samþykktar. Nefndin samþykkir reglurnar. Vísað til sveitastjórnar til samþykktar.

5.Opið hús eldri borgara.

1503024

Á.H og M.M viku af fundi meðan máið var tekið fyrir. Félagsmálastjóra falið að taka saman kostnað vegna opins húss eldri borgara. Málið verður tekið til afgreiðslu á næsta fundi nefndarinnar.

6.Vatnsleikfimi eldri borgara.

1502029

Samningur við starfsmann og fyrirkomulag.
Lagt er til að halda óbreyttu fyrirkomulagi í vatnsleikfimi eldri borgara út maí 2015.

7.Ester matstæki

1503005

Félagsmálastjóri kynnti Ester matstæki og námskeið sem eru fyrirhuguð hjá félagsmálastjóra vegna þess.

8.Persónuleg ráðgjöf og tilsjón.

1503033

Félagsmálastjóri kynnti hvað felst í persónulegri ráðgjöf og tilsjón.

9.Trúnaðarmál

1503004

Fært í fundargerðarbók.

10.Stefnumótun fjölskyldunefndar.

1503043

Stefnumótunarvinna - kynning.
Stefnumótunarvinna fjölskyldunefndar kynnt.

Fundi slitið.

Efni síðunnar