Fara í efni

Fjölskyldu- og frístundanefnd

49. fundur 05. október 2023 kl. 17:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Ásta Jóna Ásmundsdóttir formaður
  • Helgi Pétur Ottesen varaformaður
  • Inga María Sigurðardóttir ritari
  • Ásdís Björg Björgvinsdóttir aðalmaður
  • Marie Greve Rasmussen aðalmaður
Starfsmenn
  • Freyja Þöll Smáradóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Freyja Þöll Smáradóttir Félagsmálastjóri
Dagskrá
Formaður óskar eftir, með vísan til c.liðar 16. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar, að bæta með afbrigðum eftirfarandi máli á dagskrá: Mál nr. 2010017 - Trúnaðarmál. Málið verður nr. 5 á dagskrá verður það samþykkt.

Helgi Pétur Ottesen var í fjarfundabúnaði.

1.Trúnaðarmál

2010017

Málsnr. 2303002
Fært í trúnaðarbók.

2.Trúnaðarmál

2010017

Málsnr. 2012023
Fært í trúnaðarbók.

3.Trúnaðarmál

2010017

Málsnr. 2310008
Fært í trúnaðarbók.

4.Trúnaðarmál

2010017

Málsnr. 220616
Fært í trúnaðarbók.

5.Trúnaðarmál

2010017

Málsnr. 2310019
Fært í trúnaðarbók.

6.Frístundastarf og þjónusta við eldri borgara

2309037

Á 2. fundi Öldungaráðs voru eftirfarandi bókanir gerðar:



1.Öldungaráð leggur til við sveitarfélagið að gera könnun á meðal eldri borgara í Hvalfjarðarsveit. Tilgangur könnunarinnar er að kortleggja áhugasvið, væntingar og þarfir eldri borgara er við kemur frístund, félagslífi, þjónustustigi sveitarfélagsins og fleiri tengdum þáttum. Þessi könnun yrði í takt við nýútgefna frístundarstefnu sveitarfélagsins. Öldungaráð lýsir sig reiðubúið að vinna að undirbúningi og eftirvinnslu í samstarfi við félagsmálastjóra og frístunda- og menningarfulltrúa.



2. Öldungaráð leggur til að endurgera upplýsingabækling Hvalfjarðarsveitar um frístundastarf, þjónustu við eldri borgara og almenn málefni eldri borgara í Hvalfjarðarsveit sem sendur verður póstleiðis á öll heimili í Hvalfjarðarsveit og rafræn lifandi útgáfa verði sett á heimasíðuna. Öldungaráð lýsir sig reiðbúið til að koma að útgáfu bæklingsins í samráði við embættismenn og viðeigandi nefndir sveitarfélagsins.



3. Öldungaráð leggur til að upplýsingar um málefni eldri borgara verði sýnilegra á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar, m.a. með flýtihnapp á heimasíðu.
Fjölskyldu- og frístundanefnd þakkar öldungaráði fyrir sýndan áhuga.

1. Nefndin tekur jákvætt í framlagða tillögu. Í aðgerðaráætlun frístundastefnu Hvalfjarðarsveitar 2023 -2026 er markmið að bjóða upp á fjölbreytt starf sem hentar fjölbreyttum hópi og hvetur til virkni og þátttöku. Ein af aðgerðum áætlunarinnar er að vera í samtali við eldri borgara og væri könnun liður í því að kortleggja áhugasvið, væntingar og þarfir eldri borgara er við kemur frístund, félagslífi, þjónustustigi sveitarfélagsins og fleiri tengdum þáttum. Nefndin felur félagsmálastjóra og frístunda- og menningarfulltrúa að kostnaðargreina verkefnið og útfæra tillöguna í samráði við fulltrúa öldungaráðs.

2. Hvalfjarðarsveit gaf út bækling árið 2015 um þjónustu fyrir eldri borgara í Hvalfjarðarsveit og tekur nefndin undir að tími sé komin á að uppfæra bæklinginn. Nefndin felur félagsmálastjóra að vinna málið áfram.

3. Fjölskyldu- og frístundanefnd leggur til að skoða heimasíðu Hvalfjarðarsveitar með upplýsingum um þjónustu við eldri borgara. Félagsmálastjóra falið að vinna málið áfram.

7.Rekstur sundlaugar að Hlöðum

2310002

Sundlaugin að Hlöðum - Ákvörðun fyrir sumarið 2024.
Lagt fram til kynningar. Frístunda- og menningarfulltrúi falið að vinna málið áfram útfrá umræðum á fundi.

8.Fjárhagsáætlun Fjölskyldu- og frístundanefndar 2024

2310006

Fjárhagsáætun 2024.
Lagt til kynningar. Félagsmálastjóri og Frístunda- og menningarfulltrúi vinna áfram að fjárhagsáætlunargerð út frá umræðum á fundi.

9.Fundargerð Ungmennaráðs

2310003

13. fundargerð Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar.
Lagt fram til kynningar.

10.Öldungaráð

2305056

Lögð fram fundargerð 2. fundar Öldungaráðs sem fram fór þann 27.09.2023.
Lagt fram til kynningar.

11.Málefni flóttafólks.

2203028

Tilmæli félags- og vinnumarkaðsráðherra til félagsþjónustu sveitarfélaga vegna aðstoðar við útlendinga sem fengið hafa endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd hér á landi og eiga ekki rétt á þjónustu á grundvelli 33. gr. laga um útlendinga.
Lagt fram til kynningar.
Ása Líndal sat undir liðum nr. 2309037, 2310002, 2310003 og 2310006.

Fundi slitið.

Efni síðunnar