Fara í efni

Fjölskyldu- og frístundanefnd

37. fundur 01. september 2022 kl. 16:30 - 18:45 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Ásta Jóna Ásmundsdóttir formaður
  • Helgi Pétur Ottesen varaformaður
  • Inga María Sigurðardóttir ritari
  • Ásdís Björg Björgvinsdóttir aðalmaður
  • Marie Greve Rasmussen aðalmaður
Starfsmenn
  • Elín Thelma Róbertsdóttir embættismaður
  • Ása Líndal Hinriksdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Elín Thelma Róbertsdóttir Félagsmálastjóri
Dagskrá

1.Trúnaðarmál

2010017

Mál nr. 2012027
Fært í trúnaðarbók.

2.Trúnaðarmál

2010017

Mál nr. 2012023
Fært í trúnaðarbók.

3.Trúnaðarmál

2010017

Mál nr. 2012026
Fært í trúnaðarbók.

4.Ungmennaráð Hvalfjarðarsveitar

2208055

Tilnefning í Ungmennaráð.
Fríða Sif Atladóttir óskar eftir lausn frá nefndarstörfum í Ungmennaráði Hvalfjarðarsveitar frá 31.08.22 þar sem hún er flutt úr sveitarfélaginu. Hún þakkar kærlega fyrir samstarfið.

Nefndin tilnefnir Friðmey Ásgrímsdóttur til setu í Ungmennaráði Hvalfjarðarsveitar. Nefndin þakkar Fríðu fyrir samstarfið og vísar tilnefningu Friðmeyjar til afgreiðslu hjá sveitarstjórn.

5.Vinnuskóli 2022

2202033

Starfsemi Vinnuskólans sumarið 2022.
Skýrsla Vinnuskóla Hvalfjarðarsveitar fyrir sumarið 2022 var lögð fyrir nefndina.
Yfirfara þarf öryggisbúnað, endurnýja tæki og verkfæri. Nefndin felur frístunda- og menningarfulltrúa að fylgja því eftir.
Ákveðið var að bjóða 8. bekk vinnu í allt sumar í staðinn fyrir einn mánuð áður. Það gekk mjög vel, þau voru áhugasöm og dugleg.

Nefndin þakkar starfsfólki Vinnuskóla Hvalfjarðarsveitar fyrir vel unnin störf í sumar.

6.Vor - og haustfrístund 2022

2203040

Samantekt á vor- og haustfrístund.
Skýrsla sumarfrístundar Hvalfjarðarsveitar sumarið 2022 lögð fyrir nefndina. Nefndin er ánægð með að vor- og haustfrístund gat orðið að veruleika og vill að starfið verði árviss viðburður og fest í sessi.

Nefndin þakkar starfsfólki sumarfrístundar fyrir vel unnin störf í sumar.

7.Útleigureglur íþróttamiðstöðvar Heiðarborgar

2208052

Yfirfara útleigureglur íþróttamiðstöðvar Heiðarborgar.
Farið er yfir núverandi útleigureglur Heiðarborgar. Málin rædd og nefndin samþykkir að fresta afgreiðslu málsins.


8.Íþróttamiðstöðin Heiðarborg

2110004

Starfsemi og skipulag.
Starfsemi Heiðarborgar fyrir nemendur er komin af stað. Búið er að ráða starfsmenn á skólatíma. Ekki hefur tekist að ráða starfsmann í kvöld- og helgarvinnu þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar. Nefndin felur frístunda- og menningarfulltrúa að halda áfram starfsmannaleitinni.

9.Félagsstarf eldri borgara 2022

2201062

Félagsstarf eldri borgara haustið 2022.
Frístunda- og menningarfulltrúi fór yfir fyrirhugaða dagskrá á félagsstarfi eldri borgara í vetur. Lagt er upp með að félagsstarfið, opið hús og sundleikfimin verði með svipuðu móti og verið hefur.

10.Siðareglur kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og ráðum á vegum Hvalfjarðarsveitar.

1409019

Siðareglur ræddar og undirritaðar af aðalmönnum fjölskyldu- og frístundanefndar.

11.Málefni flóttafólks.

2203028

Bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga um ramma að samkomulagi um samræmda móttöku flóttafólks.
Bréf lagt fram til kynningar.

12.Umdæmisráð barnaverndar á landsbyggðinni

2208056

Stofnun umdæmisráðs á landsvísu skv. barnaverndarlögum.
Bréf lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:45.

Efni síðunnar