Fara í efni

Fjölskyldu- og frístundanefnd

36. fundur 11. ágúst 2022 kl. 16:30 - 17:34 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Ásta Jóna Ásmundsdóttir formaður
  • Helgi Pétur Ottesen varaformaður
  • Inga María Sigurðardóttir ritari
  • Ásdís Björg Björgvinsdóttir aðalmaður
  • Sæmundur Rúnar Þorgeirsson 1. varamaður
Starfsmenn
  • Freyja Þöll Smáradóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Freyja Þöll Smáradóttir Félagsmálastjóri
Dagskrá
Marie Greve Rasmussen boðaði forföll

1.Notendaráð um málefni fatlaðs fólks

2208016

Í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga kemur fram að hafa beri samstarf við fatlað fólk um málefni og þjónustu sem skipta máli í lífi þess og hvernig best sé að skipuleggja þjónustuna.

Markmið með stofnun notendasamráðs er að virkja þátttakendur í
undirbúningi ákvörðunar um þjónustu og hvernig henni verður háttað, og eins að tryggja þátttakendum stuðning og þjálfun til virkrar þátttöku í notendasamráði.
Samkvæmt 8. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 skulu sveitarfélög hafa samráð við notendur og starfrækja sérstök notendaráð. Fjölskyldu- og frístundanefnd leggur til við sveitarstjórn að stofnað verði notendaráð um málefni fatlaðs fólks og félagsmálastjóra verði falið að vinna að stofnun ráðsins.

2.Styrkbeiðni vegna reksturs Aflsins 2022.

2208015

Styrktarbeiðni frá Aflinu.
Nefndin þakkar Aflinu fyrir erindið en getur ekki orðið við styrkveitingu.

3.Trúnaðarmál

2010017

Mál nr. 1908023
Bókun færð í trúnaðarbók.

4.Trúnaðarmál

2010017

Mál nr. 2003030, 2012024, 2012026.
Bókun færð í trúnaðarbók.

5.Trúnaðarmál

2010017

Mál nr. 2012027
Bókun færð í trúnaðarbók.

6.Trúnaðarmál

2010017

Mál nr. 2012023
Bókun færð í trúnaðarbók.

7.Viðbrögð sveitarfélaga við upplýsingaöflun nefndar við undirbúning rannsóknar á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks

2207017

Bréf frá Innviðaráðuneytinu.
Lagt fram.

8.Könnun á geðheilsu og þörf fyrir geðheilsuþjónustu meðal fólks með þroskahömlun og skyldar raskanir

2208018

Kynning á Könnun á geðheilsu og þörf fyrir geðheilsuþjónustu
meðal fólks með þroskahömlun og skyldar raskanir frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 17:34.

Efni síðunnar