Fara í efni

Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd 2011-2013

62. fundur 17. desember 2015 kl. 15:15 - 17:15

Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður, Guðjón Jónasson aðalmaður, Ása Hólmarsdóttir 

aðalmaður, Ólafur Ingi Jóhannesson aðalmaður, Ólafur Melsted embættismaður og 

Sigurður Arnar Sigurðsson Varamaður.

 

Ása Hólmarsdóttir  ritari, ritaði fundargerð.

Nefndarmál

 

1    Ljósmælingar á Grundartangahöfn   -   Mál nr. 1511016

 

Borist hefur erindi frá Faxaflóahöfnum dags. 13. nóvember 2015 varðandi ljósmælingar 

á Grundartangahöfn.

 

USN nefnd þakkar erindið og fagnar því að ljósmælingar hafi verið framkvæmdar við 

Grundartanga og að hafnarstjórn hyggist fara í aðgerðir sem dragi sem mest úr því að 

lýsing beinist frá Grundartangasvæðinu. USN nefnd óskar eftir því við stjórn 

Faxaflóahafna að fá að fylgjast með framvindu málsins.

 

2    Breyting á úrgangferli GMR endurvinnslunar ehf., Grundartanga. Beiðni um 

umsögn.   -   Mál nr. 1512016

 

Borist hefur erindi frá Skipulagsstofnun dags. 9. desember 2015 varðandi breytingar á 

úrgangsferli GMR endurvinnslunar á Grundartanga.

 

Erindið rætt og farið yfir framlögð gögn.

USN nefnd felur formanni og skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna drög að svari við 

erindinu sem send verður nefndarmönnum til yfirlestrar og samþykktar. 

Umsögn verður afgreidd á milli funda nefndar.

 

3    Stefnumótun USN nefndar   -   Mál nr. 1503014

 

Á 55. fundi USN nefndar 5. júní 2015 var gerð eftirfarandi bókun: USN nefnd hefur 

lokið við drög að stefnumótun.

Formanni falið að senda drögin til skipulags- og umhverfisfulltrúa og byggingarfulltrúa 

til yfirlestrar og óskað er eftir ábendingum og upplýsingum frá þeim.

 

Farið yfir drög að stefnumótun. 

 

Skipulagsmál

 

4    Skjólskógar við Hafnarfjall.   -   Mál nr. 1511015

 

Borist hefur erindi frá Skógræktarfélagi Borgarfjarðar dags. 13. nóvember 2015 

varðandi átak við gerð skjólskóga undir Hafnarfjalli.

 

USN nefnd leggur til við sveitarstjóra að verða við erindinu og eiga fund með 

bréfritara.

Fulltrúar USN verða skipulags- og umhverfisfulltrúi og varaformaður USN nefndar.

 

5    Slaga - ósk um stækkun skógræktarreits   -   Mál nr. 1501019

 

Borist hefur erindi frá Skógræktarfélagi Akraness dags. 23. nóvember 2015 varðandi 

land milli Slögu og moldartippa til skógræktar við norðanvert Akrafjall.

 

USN nefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa og varaformanni að óska eftir fundi 

með bréfritara og vinna málið áfram.

 

6    Breytingar á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020.   -   Mál nr. 1308017

 

Á 61. fundi USN nefndar 13. nóvember 2015 var gerð eftirfarandi bókun: 

Skipulagsfulltrúi hefur sent skipulagslýsingu aðalskipulagsbreytingar til umsagnar hjá 

Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum. Umsagnir hafa borist frá Orkusölunni dags. 29. 

september 2015, Vegagerðinni dags. 23. september 2015, Skorradalshreppi dags. 6. 

október 2015, Minjastofnun Íslands dags. 9. október 2015, Kjósarhreppi dags. 10. 

október 2015, Bændasamtökum Íslands dags. 6. október 2015, Umhverfisstofnun dags. 

18.október 2015, Skipulagsstofnun dags. 15. október 2015 og Akraneskaupstað dags. 4. 

nóvember 2015.

Í ljósi framkominna ábendinga frá umsagnaraðilum felur USN nefnd formanni og 

skipulagsfulltrúa að leita ráðgjafar varðandi flokkun landbúnaðarlands og í framhaldi 

mótun stefnu á grundvelli hennar.

 

USN nefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa og formanni að vinna málið áfram.

 

7   Áskorun til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar og USN nefndar að taka á sig 

sönnunarbyrði vegna ákvarðanatöku í umhverfismálum sveitarfélagsins.   -Mál nr. 1512004

 

Borist hefur erindi frá Ragnheiði Þorgrímsdóttur dags. 1. desember 2015 þar sem skorað 

er á sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar og USN nefnd að taka á sig sönnunarbyrði vegna 

ákvörðunartöku í umhverfismálum sveitarfélagsins

 

Lagt fram og kynnt. Skipulagsfulltrúa í samráði við lögmann sveitarfélagsins falið að 

svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

 

8   Glammastaðir - deiliskipulag milli þjóðvegar og Þórisstaðavatns   -   Mál nr. 

1506031

 

Borist hefur erindi frá FLG (félagi sumarhúsaeiganda á Glammastöðum) varðandi  

Glammastaði, deiliskipulag milli þjóðvegar og Þórisstaðarvatns.

 

Málið er í fresti til næsta fundar nefndarinnar þar sem beðið er umsagnar veiðifélags. 

FLG er því frjálst að senda athugasemdir sínar. Nauðsynlegt er að þær berist í tíma 

fyrir næsta fund nefndarinnar sem verður í lok janúar. Athugasemdir félagsins þurfa að 

berast ekki seinna en 13. janúar nk. Skipulagsfulltrúa falið að senda félaginu umbeðin 

gögn.

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:00 .

Efni síðunnar