Fara í efni

Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd 2011-2013

59. fundur 15. september 2015 kl. 16:00 - 18:00

Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður, Daníel Ottesen aðalmaður, Guðjón Jónasson 

aðalmaður, Ása Hólmarsdóttir aðalmaður, Ólafur Ingi Jóhannesson aðalmaður og 

Ólafur Melsted embættismaður.

 

Ása Hólmarsdóttir  ritari, ritaði fundargerð.

 

Nemendur í landslagsgreiningu í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri ásamt 

kennara sínum, kynntu verkefni um Hvalfjarðarsveit sem þeir unnu á síðustu önn. 

Verkefnið er til sýnis í stjórnsýsluhúsinu. 

USN nefnd þakkar kærlega fyrir mjög áhugavert verkefni, kynningu og hvetur jafnframt 

íbúa Hvalfjarðarsveitar að kynna sér verkefnið.

Nefndarmál

 

1    Umsókn um styrk vegna vatnslagnar í Herdísarholti   -   Mál nr. 1508012

 

Borist hefur umsókn um styrk vegna vatnslagnar í Herdísarholti frá Gunnari H. 

Tyrfingssyni

 

USN nefnd samþykkir að beina því til sveitarstjórnar að verða við umsókn bréfritara 

og styrkja framkvæmdina um 500.000 kr í samræmi við reglur sveitarfélagsins um 

"styrktarsjóð vegna endurbóta á vatnsveitum tengdum íbúðarhúsum". 

USN nefnd felur skipulags - og umhverfisfulltrúa ásamt sveitarstjóra að fylgja málinu 

eftir.

 

2    Hléseyjarvegur - beiðni um merkingu   -   Mál nr. 1506054

 

Borist hefur erindi frá Jóhönnu Harðardóttur og Sigurði Ingólfssyni dags. 22. júní 2015 

varðandi merkingu við Hléseyjarveg. Óskað er eftir að bæjarmerking verið sett upp 

eins fjótt og auðið er. Málið var tekið fyrir á 57. fundi USN nefndar 6. júlí 2015 og 

gerð eftirfarandi bókun:"USN nefnd felur skipulagsfulltrúa að skoða málið nánar fyrir 

næsta fund."

 

Skipulagsfulltrúi hefur rætt við bréfritara og skoðað málið. Skipulagsfulltrúi leggur til 

að bæta þurfi merkingar í samræmi við ábendingar bréfritara.

USN nefnd samþykkir tillögu skipulagsfulltrúa og felur honum að ljúka málinu.

 

USN nefnd telur mikilvægt að merkingar í sveitarfélaginu séu góðar og því leggur 

USN nefnd til við sveitarstjórn að gert sé ráð fyrir fjármagni í áframhaldandi vinnu 

við verkefnið árið 2016. 

 

3    Kúludalsá - Endurnýjun á vatnslögn - Ósk um styrk   -   Mál nr. 1508026

 

Borist hefur umsókn um styrk úr styrktarsjóði vegna endurbóta á vatnsveitum tengdum 

íbúðarhúsum frá Ragnheiði Þorgrímsdóttur Kúludalsá 1.

 

Málinu frestað þar til frekari gögn berast í samræmi við reglur sveitarfélagsins um 

"styrktarsjóð vegna endurbóta á vatnsveitum tengdum íbúðarhúsum".

 

4    Akrafjall - öryggiskeðja eða kaðlar   -   Mál nr. 1509009

 

Borist hefur erindi frá Petrínu Ottesen varðandi öryggiskeðju eða kaðal á gönguleið á 

Háahnjúk á Akrafjalli.

 

USN nefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa að skoða málið.

 

5    Dagur íslenskrar náttúru 2015   -   Mál nr. 1509019

 

Dagur íslenkrar náttúru verður haldinn hátíðlegur 16. september nk. Boðið er uppá 

fjölbreytta dagskrá.

 

Í tilefni af Degi íslenskrar náttúru sem er 16. september og átaki Umhverfis- og 

auðlindaráðuneytis, hvetur USN nefnd íbúa Hvalfjarðarsveitar að deila á 

samfélagsmiðlum mynd, frásögn, tónlist, ljóði eða hverju því sem endurspeglar 

uppáhalds stað eða fyrirbæri þeirra í Hvalfjarðarsveit.

Nota má myllumerkin "#DÍN og #stadurinnminn"

 

Framkvæmdarleyfi

 

6   Samkomulag vegna göngubrúar yfir Hafnará í Hvalfjarðarsveit.   -   Mál nr. 

1409052

 

Hvalfjarðarsveit sækir um framkvæmdaleyfi fyrir byggingu göngubrúar yfir Hafnará.

 

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir 

framkvæmdinni samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsmál

 

7   Greinargerð-skipulagsskilmálar, frá lóðarleiguhöfum í Svarfhólsskógi.   -   Mál 

nr. 1408005

 

Sveitarfélagið hefur móttekið óskir 18 lóðarhafa í Svarfhólsskógi um breytingar á 

skilmálum deiliskipulags frístundarbyggðar. Málið var tekið fyrir á fundi USN nefndar 

21. ágúst 2014 og eftirfarandi bókun gerð "USN nefnd leggur til að formaður og 

skipulagsfulltrúi kalli formann félags frístundalóðarhafa í Svarfhólsskógi og 

landeiganda á sinn fund." Málið var tekið fyrir að nýju á fundi USN nefndar 20. maí 

2015 og eftirfarandi bókun gerð: "Skipulagsfulltrúi gerði tilraun til að boða formann 

félagsins og landeigenda á sinn fund en náði ekki í landeiganda þrátt fyrir ítrekaðar 

tilraunir. USN leggur til að skipulags- og umhverfisfulltrúi hafi samband við 

hlutaðeigandi." 

 

Málinu frestað vegna fyrirhugaðs fundar með landeiganda.

 

8    Breyting á deiliskipulagi - Ölver - Narfastaðir - fyrirspurn   -   Mál nr. 1508022

 

Borist hefur erindi frá Gunnari Vali Gíslasyni og Hervöru Poulsen dags. 25. ágúst 

2015 þar sem óskað er eftir því að eigendur lóðanna og ræktunarsvæðis fái að vinna á 

eigin kostnað og leggja fram til efnislegrar umfjöllunar hjá skipulagsyfirvöldum 

Hvalfjarðarsveitar tillögu að breytingu á deilskipulagi Ölvers og Narfastaða.

 

USN nefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna 

málið áfram.

 

9   Breyting deiliskipulags lóða á stóriðnaðarsvæði við Grundartanga, Norðurál    -Mál nr. 1409023

 

Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 15. júlí 2015 að auglýsa tillögu að 

breytingu deiliskipulags lóðar Norðuráls hf. á Grundartanga sbr. 1. mgr. 43. gr. 

skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst frá 17. júlí til og með 3. september 

2015. Athugasemdir bárust frá Umhverfisvaktinni við Hvalfjörð (dags. 2. september 

2015), Gunnari Þór Gunnarssyni (vantar dags.) og Ragnheiði Þorgrímsdóttur, 

Kúludalsá (dags. 2. sept. 2015) við auglýstri tillögu.

 

USN nefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna drög að svörum við 

athugsemdum og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.

 

 

Afgreiðslur byggingarfulltrúa

 

10   Stóri-Lambhagi 2/Kringlumelur - Ósk um nafnabreytingu - Stóri-Lambhagi 5   -Mál nr. 1509011

 

Sótt er um nafnabreytingu á íbúðarhúsalóðinni Stóri-Lambhagi 2 Kringlumelur, 

lnr.133636. Óskað er eftir að íbúðarhúsalóðin heiti Stóri-Lambhagi 5.

 

USN nefnd telur að nafnabreyting þessi sé í samræmi við lög um örnefni nr. 22/2015 

og gerir því ekki athugsemdir við breytinguna.

 

11    Stóri-Lambhagi 5 - Íbúðarhús - Lnr.133636   -   Mál nr. 1509010

 

Sótt er um að byggja 200 fm íbúðarhús á íbúðarhúsalóðinni Stóri-Lambhagi 2 

Kringlumelur, lnr.133636. Á lóðinni var áður íbúðarhús sem var rifið og afskráð 2009. 

Á lóðinni er fasteignaréttur.

 

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna byggingarleyfi skv. 3. mgr. 

44. gr skipulaga nr.123/2010 fyrir eigendum: 

Litli Lambhagi (lnr 133639), Lambhagi 2 (lnr 192687), Stóri Lambhagi 4 (lnr 

133659), Stóri Lambhagi 2 (21) (lnr 219307), Stóri Lambhagi 2 (lnr 133657), Stóri 

Lambhagi 2b (lnr 175751), Stóri Lambhagi 1a (lnr 222783), Stóri Lambhagi 1b (lnr 

175641), Stóri Lambhagi 1 (lnr 133653), Stóri Lambhagi 2 Hlaðbúð (lnr 133631), 

Stóri Lambhagi vélaverkstæði (lnr 176024), Stóri Lambhagi 1d vélaverkstæði (lnr 

133654)

Litli Melur (lnr 133643), Stóri Lambhagi 3 (lnr 133658). 

 

12    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 35   -   Mál nr. 1509002F

 

Lagt fram og kynnt.

 

12.1   1507035 - Hlaðir - Fjölskylduhátíð - Tækifærisleyfi

12.2   1506053 - Hæðarbyggð 4 - Sumarhús

12.3   1507031 - Innri Hólmur - Stofnun lóðar - Hólabrú 1

12.4   1507034 - Kambshólsland - Brennuleyfi - 2015

12.5   1506052 - NA - Mhl.57 - Steypuskáli

12.6   1507027 - Neðra-Skarð - Stofnun lóðar - Neðra-Skarð 1

12.7   1507036 - Vatnaskógur - Fjölskylduhátíð - Tækifærisleyfi

 

 

Daníel og Ólafur véku af fundi eftir afgreiðslu 9. liðar.

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 19:00 

Efni síðunnar