Fara í efni

Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd 2011-2013

58. fundur 20. ágúst 2015 kl. 16:00 - 18:00

Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður, Daníel Ottesen aðalmaður, Guðjón Jónasson 

aðalmaður, Ása Hólmarsdóttir aðalmaður, Ólafur Ingi Jóhannesson aðalmaður og 

Ólafur Melsted embættismaður.

 

Ása Hólmarsdóttir  ritari, ritaði fundargerð.

 

1.  Grundartangahöfn - Tangabakki 3. áfangi - Framkvæmdaleyfi   -   Mál nr. 

1508011

 

Borist hefur erindi frá Faxaflóahöfnum dags. 28. júlí 2015 þar sem sótt er um 

framkvæmdaleyfi fyrir Grundartangahöfn, Tangabakka, 3. áfanga, baksvæði 

hafnarbakka og fyllingar í lóð Klafastaðavegur 3, Grundartanga.

 

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir 

framkvæmdinni samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa falið 

að vinna málið áfram.

 

2 Breyting á rekstri Kratusar, Grundartanga. Beiðni um umsögn.   -   Mál nr. 

1508001

 

Borist hefur erindi frá Skipulagsstofnun þar sem óskað er eftir umsögn vegna breytingar 

á rekstri Kratusar ehf. Grundartanga. Málið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar þann 

11. ágúst 2015 og gerð var eftirfarandi bókun: "Sveitarstjórn samþykkir að vísa erindinu 

til umsagnar USN nefndar."

 

USN-nefnd óskar eftir nánari upplýsingum um fyrirhugaða færslu skolgryfju á 

Grundartanga en skv. kafla 3.2 stefnir framkvæmdaraðili að því að fá leyfi fyrir færslu 

skolgryfju frá Helguvík og yfir á Grundartanga. USN-nefnd óskar eftir ítarlegri 

upplýsingum um hvað sú tilfærsla kemur til með að hafa í för með sér. Einnig bendir 

USN-nefnd á áminningar og kröfur um úrbætur frá Umhverfisstofnun vegna núverandi 

starfsemi og umgengni hjá Kratus, sjá heimasíðu Umhverfisstofnunar. USN-nefnd 

treystir sér ekki til að meta hvort eða á hvaða forsendum fyrirhuguð framkvæmd skuli 

háð mati á umhverfisáhrifum en telur eðlilegt að fyrirtækið bæti úr þeim frávikum sem 

Umhverfisstofnun hefur gert athugasemdir við, áður en leyfi eru veitt til breytingar á 

rekstri Kratusar ehf. 

 

3    Faxaflóahafnir - Framkvæmdaleyfi Grundartangi   -   Mál nr. 1507033

 

Borist hefur erindi frá Faxaflóahöfnum dags. 14. júlí 2015 þar sem sótt er um 

framkvæmdaleyfi fyrir lóðargerð að Leynisvegi 6, Grundartanga.

 

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir 

lóðargerðinni samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa falið að 

vinna málið áfram. Framkvæmdaleyfi verður ekki gefið út fyrr en breyting á 

deiliskipulagi lóðarinnar hefur tekið gildi.

 

Skipulagsmál

 

4 Skorradalshreppur - Breyting aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022   -Mál nr. 1507032

 

Borist hefur erindi frá Skorradalshreppi dags. 13. júli 2015 þar sem kynnt er breyting á 

Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 

123/2010. Breytingin sem um er að ræða varðar frístundalóðir Hvammsskóga 18 og 20 í 

landi Hvamms sem breytt er í eina íbúðarlóð.

 

USN gerir ekki athugasemd við breytingu Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 

og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrir sitt leyti breytinguna.

 

5 Tillaga L og H lista: Breytingar á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020.   -Mál nr. 1308017

 

Á 56. fundi USN nefndar 16. júní 2015 var gerð eftirfarandi bókun: "USN nefnd leggur 

til við sveitarstjórn að áður samþykkt tillaga frá 20. janúar 2014 (liður 15) um breytingu 

Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 er varðar landbúnaðarsvæði fari í sinn 

lögformlega feril." Samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal 

sveitarstjórn senda lýsingu á verkefninu til umsagnar Skipulagsstofnunar og 

umsagnaraðila og kynna hana fyrir almenningi.

 

USN nefnd samþykkir fyrir sitt leyti lýsinguna og leggur til við sveitarstjórn að fela 

skipulagsfulltrúa að senda lýsingu á verkefninu til umsagnar hjá Skipulagsstofnun og 

umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi sbr. 30.gr. skipulagslaga nr. 

123/2010.

 

6    Deiliskipulag fyrir olíubirgðastöð, Litli-Sandur   -   Mál nr. 1401020

 

Á 56. fundi USN nefndar 16. júni 2015 var gerð eftirfarandi bókun: "USN nefnd frestar 

afgreiðslu. Gögnin þarfnast lagfæringar. Skipulagsfulltrúa falið að koma ábendingum til 

höfundar skipulags"

 

Skipulagsfulltrúi hefur átt fund með höfundum skipulags og fullnægjandi gögn hafa 

borist. USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að fela skipulagsfulltrúa að auglýsa 

deiliskipulag fyrir olíubirgðastöðina á Litla Sandi í Hvalfirði sbr. 1. mgr. 41. gr. 

skipulagslaga nr. 123/2010.

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:00 .

Efni síðunnar