Fara í efni

Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd 2011-2013

50. fundur 21. janúar 2015 kl. 15:00 - 17:00

Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður, Daníel Ottesen aðalmaður, Guðjón Jónasson 

aðalmaður, Ása Hólmarsdóttir aðalmaður, Sigurbjörg Ósk Áskellsdóttir áheyrnafulltrúi 

og Ólafur Melsted embættismaður.

 

Ása Hólmarsdóttir  nefndarmaður, ritaði fundargerð.

 

Formaður setti fundinn og bauð nýjan umhverfis- og skipulagsfulltrúa, Ólaf Melsted, 

velkominn til starfa. Einnig þakkaði hún Sigurbjörgu Ósk Áskelsdóttur, fyrrverandi 

skipulagsfulltrúa, kærlega fyrir vel unnin störf og samstarfið.

 

ÓIJ afboðaði sig með skömmum fyrirvara og var ekki boðaður varamaður í hans stað.

Nefndarmál

 

1    Endurvinnslukort   -   Mál nr. 1501011

 

Borist hefur erindi frá Náttúran er ehf. um endurvinnslukort á landsvísu og sérþjónustu 

fyrir sveitarfélög.

 

Umhverfis- og skipulagsfulltrúi kynnti erindi Náttúru ehf.

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að hafna erindinu. 

 

2    Seyra nýtist í landgræðslu   -   Mál nr. 1501004

 

Erindi barst frá Landgræðslunni 8.des.2014 varðandi seyru í landgræðslu. 

Sveitarfélagið Ölfus og Landgræðslan hafa rætt um notkun seyru úr rotþróm í 

landgræðslu.

 

Lagt fram til kynningar.

 

3    Steinsholt vatnsleiðsla   -   Mál nr. 1501010

 

Jakob Svavar Sigurðsson 3107754369 , óskar eftir styrk úr styrktarsjóði vegna 

efndurbóta á vatnsleiðslum. Heildarupphæð framkvæmdarinnar er kr. 407.329;-

 

Sótt er um styrk eftir að framkvæmdum er lokið. Nefndin samþykkir að beina því til 

sveitarstjórnar að verða við umsókn bréfritara og greiða helming kostnaðar við 

endurbæturnar, enda er verkið í fullu samræmi við reglur sjóðsins.

 

4  Umsókn Fjarðarskeljar um tilraunaleyfi fyrir kræklingarækt við Saurbæ í 

Hvalfirði.   -   Mál nr. 1501001

 

Erindi hefur borist frá Matvælastofnun dags. 18. des. 2014 er varðar umsókn 

Fjarðarskeljar um tilraunaleyfi kræklingaræktar við Saurbæ í Hvalfirði. Óskað er 

umsagnar sveitarfélagsins.Gögn lögð fram og kynnt.

 

USN nefnd felur formanni og umhverfis- og skipulagsfulltrúa að vinna umsögn fyrir 1. 

febrúar n.k. í samræmi við ábendingar nefndarmanna.

 

5    IGF - Sorp - framlenging á samning   -   Mál nr. 1501015

 

Samningur sveitarfélagsins við IGF rennur út í ágúst, í samningi er ákvæði um það að 

hægt sé að framlengja samning um tvö ár í senn. Sveitarfélögin á svæðinu er með 

sameiginlegan samning við IGS og umræða hefur skapast um það meðal 

sveitarfélagana hvort það ætti að nýta það ákvæði.

 

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að nýta ákvæði í samningnum við Íslenska 

Gámafélagið og framlengja hann um eitt ár.

 

6  Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir olíubirgðastöð Olíudreifingar ehf. í 

Hvalfirði.   -   Mál nr. 1411030

 

Ákvörðun Umhverfisstofnunar vegna útgáfu starfsleyfis fyrir olíubirgðastöð ehf. í 

Hvalfirði barst sveitarfélaginu þann 19. jan. sl.

 

USN nefnd vann að umsögn til Umhverfisstofnunar milli funda. Lagt fram og kynnt.

 

Framkvæmdarleyfi

 

7    Skipanes, framkvæmdaleyfi sjóvörn   -   Mál nr. 1409054

 

Niðurstaða Skipulagsstofnunar liggur fyrir dags. 22.12.2014 er varðar það hvort að 

framkvæmd sé líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Niðurstaðan 

er að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Niðurstaða Skipulagsstofnunar lögð fram og kynnt. USN nefnd leggur til við 

sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt að undangenginni grenndarkynningu fyrir 

landeiganda Skipaness og Skipaness 2, sbr. 5. mgr. 13. gr. og 44.gr. skipulagslaga nr. 

123/2010.

 

Skipulagsmál

 

8    Leirutröð 3 - Ósk um lögbýli   -   Mál nr. 1412024

 

Erindi barst frá Sigurbirni Inga Sigurðssyni dags. 13.12.2014, er varðar Leirutröð 3 í 

frístundabyggðasvæði í land Beitistaða, þar sem óskað er eftir að landspildu verði 

breytt úr frístundabyggð í landbúnaðarsvæði og kjölfarið gert að lögbýli. Umrædd 

frístundabyggð er 20.8 ha að stærð með 20 frístundalóðum. Samkvæmt skipulagi er 

ekki gert ráð fyrir heilsársbúsetu.

 

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila ekki breytingu aðalskipulags á þeim 

forsendum að í deiliskipulagi kemur skýrt fram að ekki sé gert ráð fyrir heilsársbúsetu. 159 

Einnig er kveðið á um það í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 gr.6.2 lið h, er fjallar um 

frístundabyggð, að föst búseta er óheimil í frístundabyggð.

 

9    Skipulagsdagurinn 2014   -   Mál nr. 1406036

 

Farið yfir breytingar sem gerðar voru á skipulagslögum í maí 2014.

 

10    Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040.   -   Mál nr. 1306002

 

Auglýsing um tillögu að nýju svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins 2040, sbr. 24. gr. 

skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. 

Athugasemdafrestur er 2. febrúar 2015. Gögnin eru aðgengileg á heimasíðu 

ssh.is/2040.

 

Málin rædd. USN nefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna að umsögn í samvinnu við 

nefndarmenn fyrir 2. febrúar n.k.

 

11    Tillaga að Landskipulagsstefnu 2015-2026 til kynningar.   -   Mál nr. 1501002

 

Borist hefur erindi frá Skipulagsstofnun dags. 19. des. 2014 er varðar tillögu að 

Landsskipulagsstefnu 2015-2026. Skipulagsstofnun óskar umsagnar sveitarfélagsins, 

frestur til athugasemdar er til 13. feb. 2015.

 

Málin rædd. USN nefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna að umsögn í samvinnu við 

nefndarmenn fyrir 13. febrúar n.k.

 

12    Ölver 9 - Viðbygging   -   Mál nr. 1401018

 

Óveruleg breyting á deiliskipulagi. Um er að ræða stækkun á sumarhúsi um 25 fm.

Núverandi sumarhús er 55 fm. Engir skilmálar fylgja gildandi deiliskipulagi og gildir 

reglugerð frá 1992 er heimilar 60 fm. hús á frístundalóð.

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila grenndarkynningu á óverulegri 

breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Ölveri 5, 

6, 17 og 26. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

 

Afgreiðslur byggingarfulltrúa

 

13    Stofnun lóða úr Gröf - Akur - Melhagi 2 - Jaðar   -   Mál nr. 1405047

 

Á 40. fundi USN nefndar þann 26. maí 2014 var lagt til að fresta afgreiðslu málsins 

þar til fyrir lægju samþykki eigenda aðliggjandi lands. Þau gögn hafa nú borist.

USN nefnd leggur við sveitastjórn að heimila stofnun 3 lóða úr landi Grafar lnr. 

133629, Melhagi 2, stærð 1.4 ha og mun sameinast Melhaga lnr. 200319, Jaðar, stærð 

2.3 ha, skilgreind sem íbúðarhúsalóð, Akur, stærð 0.7 ha, skilgreind sem annað land. 

Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.

 

14    Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 31    -   Mál nr. 1501003F 

 

Lagt fram og samþykkt

 

14.1   1411043 - Efstiás 12 - Gestahús

14.2   1407038 - ELKEM - Mhl.31

14.3   1405026 - Eystra Súlunes 2

14.4   1411002 - Heynes - Niðurrif

14.5   1411018 - Tangavegur 1 - Viðbygging

14.6   1110075 - Tangavegur 7 - GMR

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:00 

Efni síðunnar