Fara í efni

Sveitarstjórn

208. fundur 24. nóvember 2015 kl. 16:00 - 18:00

Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti, Hjördís Stefánsdóttir ritari, Jónella Sigurjónsdóttir 

vararitari, Ása Helgadóttir aðalmaður, Stefán Ármannsson aðalmaður, Daníel Ottesen 

aðalmaður og Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður.

 

Skúli Þórðarson  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.

 

Arnheiður Hjörleifsdóttir, varaoddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn 

velkomna til fundar og síðan var gengið til áður boðaðrar dagskrár.

 

Björgvin Helgason, oddviti boðaði forföll.

1.   1511002F - Sveitarstjórn - 207

 

Fundargerð framlögð.

 

2.   1511003F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 61

 

Fundargerð framlögð.

AH. fór yfir og skýrði einstaka liði fundargerðarinnar.

 

2.1.  1508026 - Kúludalsá - Endurnýjun á vatnslögn - Ósk um styrk

 

Erindi frá Ragnheiði Þorgrímsdóttur þar sem sótt er um viðbótarframlag 

vegna vatnslagnar á Kúludalsá.

 

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að greiða viðbótarframlag, 

kr. 24.194-, vegna vatnslagnar á Kúludalsá. Um er að ræða 50% 

kostnaðar v/ verkhluta sem ekki var tilgreindur í upphaflegu erindi 

umsækjanda."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.2.  1509046 - Kynning á starfsleyfi -olíubirgðastöð að Litla Sandi og 

Digralæk - Olíudreifing ehf.

 

Erindi frá Umhverfisstofnun varðandi starfsleyfi fyrir olíubirgðastöð á 

Litla Sandi og Digralæk, Olíudreifing ehf.

 

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að gera umsögn USN-

nefndar að sinni og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að senda 

umsögnina til Umhverfisstofnunar."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Umsögn sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar má sjá hér.

 

2.3.  1510022 - Deiliskipulag hafnar-, iðnaðar- og athafnasvæðis á 

Grundartanga, austursvæði - breyting á deiliskipulagi 

hafnarsvæðis, austursvæðis

 

Erindi frá Faxaflóahöfnun varðandi breytingu á deiliskipulagi hafnar-, 

iðnaðar- og athafnasvæði á Grundartanga, austusvæði.

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fela skipulags- og 

umhverfisfulltrúa að auglýsa tillöguna sbr. 1. mgr. 43. gr. 

skipulagslaga nr. 123/2010."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.4.  1509043 - Auglýsingarskilti við Hvalfjarðargöng

 

Erindi frá Knattspyrnufélagi ÍA Akranesi varðandi auglýsingarskilti við 

Hvalfjarðargöng.

 

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fela skipulags- og 

umhverfisfulltrúa að svara erindinu."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.5.  1409023 - Breyting deiliskipulags lóða á stóriðnaðarsvæði við 

Grundartanga, Norðurál

 

Erindi frá Norðuráli varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðar 

Norðuráls, Grundartanga.

 

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagðar tillögur að 

svörum við athugasemdum sem bárust við skipulagstillöguna og felur 

skipulags- og umhverfisfulltrúa að senda þær til hlutaðeigandi aðila."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Athugasemdir og svör sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar við þeim má 

sjá hér.

 

2.6.  1510035 - Breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, 

Kirkjusandur/Barónsreitur

 

Erindi frá Reykjavíkurborg varðandi breytingu á Aðalskipulagi 

Reykjavíkur 2010-2013, Kirkjusandur/Barónsreitur.

 

Varoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar gerir ekki athugasemdir við breytingu 

á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

3.   1511017 - 8. fundur mannvirkja- og framkvæmdanefndar.

 

Fundargerð framlögð.

 

4.   1511029 - 13. og 14. fundir stjórnar nýsköpunarsjóðs 

Hvalfjarðarsveitar.

 

Fundargerðir framlagðar.

SÁ fór yfir og skýrði efni fundargerðanna.

 

5.   1511030 - 34. fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.

 

Fundargerð framlögð.

 

6.   1509002 - Fjárhagsáætlun 2016-2019.

 

Álagning útsvars 2016.

 

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að álagning útsvar á tekjur 

ársins 2016 skuli vera 13,14%.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

7.   1511009 - Álagning lóðarleigu.

 

Frá fjármálastjóra.

 

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir tillögu sveitarstjóra og 

fjármálastjóra um tilhögun endurgreiðslu lóðarleigu ásamt eftirfarandi 

viðauka:

Viðauki 11 - vegna framangreindrar tillögu að fjárhæð kr. 995.000- á 

00035 (Lóðarleiga). Kostnaði verði mætt með lækkun á handbæru fé." 

Tillagan ásamt viðauka 11 borin undir atkvæði og samþykkt með 7 

atkvæðum.

 

8.   1511022 - Viðaukar.

 

Erindi frá fjármálastjóra.

 

Viðauki 12 - Á árinu 2015 er búið að úthluta úr styrktarsjóði fjárhæð kr. 

855.000-. Sveitarstjórn samþykkir að færa 855.000 kr af óvissum 

útgjöldum 21085 og yfir á eftirfarandi deildir: 

02089 - 40.000 kr. 04089 - 315.000 kr. 05089 - 200.000 kr. 06089 -200.000 kr. 07089 - 100.000 kr. 

Viðauki 12 borin undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum. 

Viðauki 13 - Leiðrétting á starfsmati fór fram í júní 2015. Leiðréttingin gilti 

frá 1. maí 2014. Sveitarstjórn samþykkir viðbótarfjármagn vegna 

leiðréttingarinnar 04012 - 861.000 kr. 04022 - 948.000 kr. 04027 -357.000 kr og 04030 - 330.000 kr. samtals fjárhæð 2.496.000 kr. Kostnaði 

verði mætt með lækkun á handbæru fé. 

Viðauki 13 borin undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum. 

 

9.   1511014 - Fjárhagsáætlun 2016 og fjárhagsáætlun 2017-2019.

 

Frá Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilinu, dagsett 10. nóvember 2015.

 

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun 

hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða fyrir árið 2016 og 2017-2019."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

10.   1511020 - Eigendastefna Faxaflóahafna.

 

Óskað er eftir því að Hvalfjarðarsveit tilnefni fulltrúa í eigendanefnd 

Faxaflóahafna sf.

 

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að tilnefna Björgvin Helgason í 

eigendanefnd Faxaflóahafna."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

11.   1511018 - Skipan almannavarna í umdæmi lögreglustjórans á 

Vesturlandi.

 

Erindi frá Lögreglunni á Vesturlandi.

 

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir fyrir sitt leyti að kannaðir verði 

kostir og gallar þess að skipa eina almannavarnarnefnd á Vesturlandi í 

stað þeirra þriggja sem nú eru starfandi. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar 

sér ekki ástæðu til þess að ráðinn verði starfsmaður í hlutastarf komi til 

slíkrar sameiningar."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

12.   1511023 - Beiðni um fund með kjörnum fulltrúum Hvalfjarðarsveitar.

 

Frá Skorradalshreppi, dagsett 16. nóvember 2015.

 

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að verða við erindinu og eiga 

fund með hreppsnefnd Skorradalshrepps. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra 

að finna hentugan fundartíma í samráði við oddvita Skorradalshrepps."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

13.   1511025 - Verksamningur - Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. 

og Hvalfjarðarsveitar.

 

Til samþykktar.

 

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagðan verksamning og 

felur sveitarstjóra undirritun hans."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum.

AH og HS sitja hjá við afgreiðsluna.

 

14.   1511026 - Ósk um framlag til tækjakaupa.

 

Erindi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands, dagsett 18. nóvember 2015.

 

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita Fjölbrautaskóla 

Vesturlands á Akranesi kr. 100.000- fjárframlag til tækjakaupa."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

15.   1511031 - Drög að tillögu - viðmið um akstur skólabifreiða.

 

Erindi frá sveitarstjóra.

 

Fyrir fundinum liggja drög að tillögu frá sveitarstjóra, oddvita og formanni 

fræðslu- og skólanefndar um viðmið um akstur nemenda í Heiðarskóla.

HS tók til máls og lagði fram skriflegar hugmyndir sínar um viðmið 

varðandi skólaakstur nemenda.

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa framlögðum drögum 

að tillögu ásamt framlögðum hugmyndum HS til umsagnar í fræðslu- og 

skólanefnd."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

16.   1511032 - Drög að nýrri gjaldskrá Slökkviliðs Akraness og 

Hvalfjarðarsveitar.

 

Erindi frá Akraneskaupstað.

 

Varaoddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir fyrir sitt leyti framlagða 

gjaldskrá Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

17.   1511021 - Rekstraryfirlit janúar - september 2015.

 

Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.

 

Rekstraryfirlit janúar - setptember 2015 lagt fram.

 

18.   1506031 - Glammastaðir - deiliskipulag milli þjóðvegar og 

Þórisstaðarvatns

 

Bréf til Veiðif. Laxár frá Fiskistofu, bréf til Fiskistofu frá Land Lögmönnum 

og frá Fiskistofu til VALZ ehf.

 

Bréf lögð fram til kynningar.

 

19.   1511013 - 55. og 56. fundir stjórnar Höfða hjúkrunar- og 

dvalarheimilis.

 

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

 

20.   1511019 - 138. fundur stjórnar Faxaflóahafna sf.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar. 

 

21.   1511027 - 82. fundur Sorpurðunar Vesturlands.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

22.   1502013 - Skýrsla sveitarstjóra.

 

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá 

síðasta reglulega sveitarstjórnarfundi.

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:57 .

Efni síðunnar