Fara í efni

Sveitarstjórn

205. fundur 13. október 2015 kl. 16:00 - 18:00

Björgvin Helgason oddviti, Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti, Hjördís Stefánsdóttir 

ritari, Jónella Sigurjónsdóttir vararitari, Stefán Ármannsson aðalmaður, Daníel Ottesen 

aðalmaður og Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður.

 

Skúli Þórðarson  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.

 

Björgvin Helgason, oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til 

fundar og síðan var gengið til áður boðaðrar dagskrár.

 

Oddviti leitaði afbrigða um að taka fyrst á dagskrá fundarins 7. lið skv. útsendu 

fundarboði og var það samþykkt.

 

Ása Helgadóttir boðaði forföll.

1.   1509004F - Sveitarstjórn - 204

 

Fundargerð framlögð.

 

2.   1509005F - Fræðslu- og skólanefnd - 121

 

Fundargerð framlögð.

DO fór yfir og skýrði einstök atriði fundargerðarinnar.

 

2.1.  1508018 - Starfsáætlun Skýjaborgar 2015-2016.

 

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir framlagða Starfsáætlun 

Skýjaborgar 2015-2016."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.2.  1506046 - Skólanámskrá leik og grunnskóla

 

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir framlagða skólanámskrá 

leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

HS situr hjá við afgreiðsluna.

 

3.   1510002 - Frístundabyggð við Kjarrás 

 

Erindi frá Félagi landeigenda í Glammastaðalandi, dagsett 1. október 

2015.

 

Fram lögð tvö erindi fulltrúa sumarhúsaeigenda í Kjarrási þar sem óskað 

er eftir afstöðu sveitarstjórnar til annars vegar lagningu vegar, botnlanga 

og stíga sbr. gildandi deiliskipulag svæðisins og hins vegar til lagningar 

vatnsveitu sbr. gildandi deiliskipulag svæðisins.

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fela sveitarstjóra og 

starfsfólki tæknideildar að svara erindunum í samráði við formann USNnefndar."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

4.   1510007 - Þátttaka Hvalfjarðarsveitar í þáttaröðinni "Að vestan"

 

Erindi frá N4.

 

HS tók til máls og lýsti yfir vanhæfi sínu við afgreiðslu erindisins vegna 

fjölskyldutengsla við framkvæmdastjóra N4 og vék hún af fundinum.

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að taka þátt í verkefninu og að 

kostnaði verði mætt á árinu 2016."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

Að afgreiðslu lokinni tók HS aftur sæti á fundinum.

 

5.   1510015 - Tilboð í rannsóknarboranir, hitastigulsholur á Gröf og 

Eyri/Kambshól.

 

Frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða og Árna Hjaltasyni.

 

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að taka tilboði frá 

Ræktunarsambandi Flóa- og Skeiða í umrætt verk. Tilboðsfjárhæðin er 

alls kr. 7.991.254- með vsk. m.v. 8 rannsóknarholur."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

6.   1510018 - Beiðni um breytingu á veðleyfi.

 

Erindi frá Ólafi Þorsteinssyni.

 

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita Ólafi Þorsteinssyni 

Ósi I umbeðið veðleyfi og að lán frá fyrrum Skilmannahreppi færist á 4. 

veðrétt."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

7.   1510010 - Rekstrar- og efnahagsyfirlit janúar-ágúst 2015.

 

Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.

 

Kristjana H. Ólafsdóttir, fjármálastjóri fór yfir og kynnti helstu niðurstöður í 

framlögðu rekstrar- og efnahagsyfirliti janúar-ágúst 2015.

AH óskaði upplýsinga um stöðu hreinlætismála og hreinsunarátaks.

Fjármálastjóri tók til máls og sagðist ætla að taka saman minnisblað um 530 

stöðu málaflokksins og senda á sveitarstjórnamenn.

 

8.   1510019 - Ágóðahlutagreiðsla 2015.

 

Frá Brunabót, dagsett 6. október 2015.

 

Lagt fram til kynningar. 

Ágóðahlutdeild Hvalfjarðarsveitar er kr. 607.000.  

 

1509053 - Mál yfirfasteignamatsnefndar nr. 13/2015, Hurðarbak, lnr. 

133186.

 

Frá Yfirfasteignamatsnefnd.

 

Bréf lagt fram til kynningar.

 

10.   1509049 - 18. fundur menningar- og safnanefndar.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

11.   1510020 - 16. aðalfundur fulltrúaráðs Eignarhaldsfélagsins 

 

Brunabótafélag Íslands.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

12.   1502013 - Skýrsla sveitarstjóra.

 

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá 

síðasta reglulega fundi sveitarstjórnar.

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:45 .

Efni síðunnar