Fara í efni

Sveitarstjórn

199. fundur 23. júní 2015 kl. 16:15 - 18:15

Björgvin Helgason oddviti, Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti, Hjördís Stefánsdóttir 

ritari, Jónella Sigurjónsdóttir vararitari, Ása Helgadóttir aðalmaður, Stefán Ármannsson 

aðalmaður og Daníel Ottesen aðalmaður.

 

Daníel Ottesen  , ritaði fundargerð.

 

Björgvin Helgason oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til 

fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

1.   1505005F - Sveitarstjórn - 198

 

Varðandi lið 2.2 í fundargerðinni mál nr. 1505027, hefur borist svar dags. 

22.06.2015 frá Skipulagsstofnun varðandi Másstaði 3, smáhýsi og 

samræmi við aðalskipulag. Oddviti leggur til að erindinu verði vísað til 

USN-nefndar. Samþykkt samhljóða með 7 greiddum atkvæðum. 

Fundargerðin að öðru leyti framlögð.

 

2.   1506002F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 56

 

AH fór yfir fundargerðina, fundargerð framlögð.

 

2.1.  1505019 - Fyrirspurn vegna lóðar sem liggur fyrir innan Sólvelli 

2.

 

Um er að ræða fyrirspurn vegna lóðar sem liggur fyrir innan Sólvelli 2 

á Innnesi og hvort hún sé laus til úthlutunar. Á fundi USN nefndar var 

skipulagsfulltrúa falið að afla gagna um svæðið. Oddviti leggur til að 

afgreiðslu erindisins sé frestað þar til þau gögn liggja fyrir jafnframt 

að skipulagsfulltrúa verði falið að ræða við bréfritara um fyrirspurnina.

 

2.2.  1505015 - Krafa um ógildingu deiliskipulags - Glammastaðir

 

Skipulagsfulltrúi hefur leitað álits lögmanns og niðurstaða hans er að 

hafna beri kröfu landeiganda um ógildingu deiliskipulags. USN leggur 

til við sveitarstjórn að hafna beri ógildingu deiliskipulags á grundvelli 

álits lögmanns.

Oddviti leggur til að erindinu verði hafnað á grundvelli álits lögmanns 

sveitarfélagsins. Í áliti lögfræðings kemur fram að ekkert bendi til að 

málsmeðferð deiliskipulagsins sé ólögmæt, eða deiliskipulagið sé af 

öðrum ástæðum ólögmætt. Einnig verði að telja að þrátt fyrir að ef 500 

svo væri, sé of langur tími liðinn frá gildistöku skipulagsins þar til slík 

krafa sé sett fram. Í þriðja lagi sýni félagið ekki fram á að beinir 

hagsmunir séu af slíkri ákvörðun.

Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

 

2.3.  1506026 - Skálatangi - Lnr.133711 - Niðurrif

 

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að veita heimild til niðurrifs á 

fyrrgreindum byggingum.

Oddviti leggur til að sveitarstjórn staðfesti bókun USN nefndar.

Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

 

2.4.  1308017 - Tillaga L og H lista: Breytingar á aðalskipulagi 

Hvalfjarðarsveitar 2008-2020.

 

Erindið var áður tekið fyrir og afgreitt af sveitarstjórn 

Hvalfjarðarsveitar í nóvember 2013, en afgreiðslan var aldrei send til 

auglýsingar. Um er að ræða breytingu á takmörkunum á fjölda 

íbúðarhúsa og frístundahúsa á skilgreindu landbúnaðarlandi í 

Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar. 

Oddvitinn lagði til að tillagan yrði samþykkt.

Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

 

3.   1506036 - 29. fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.

 

JS fór yfir fundargerðina. Fundargerð framlögð.

 

4.   1506051 - 30.fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.

 

JS fór yfir fundargerðina. Fundargerðin framlögð.

Oddviti leggur til að sveitarstjórn samþykki umsögn nefndarinnar varðandi 

1. lið í fundargerð. "Úttekt á rekstri menningarmála hjá Akraneskaupstað."

Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

 

5.   1505004F - Fjölskyldunefnd - 51

 

ÁH fór yfir fundargerðina. Fundargerð framlögð.

 

5.1.  1502023 - Reglur um fjárhagsaðstoð.

 

Oddviti lagði fram tillögu um sveitarstjórn samþykki framlagðar reglur 

um fjárhagsaðstoð.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. 

 

5.2.  1506030 - Forvarnarstefna Hvalfjarðarsveitar

 

Oddviti lagði fram tillögu um að sveitarstjórn feli fræðslu og 

skólanefnd og fjölskyldunefnd að fara yfir forvarnarstefnu 

Hvalfjarðarsveitar. Félagsmálafulltrúi haldi utan um verkefnið.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

6.   1506037 - 6. og 7. fundargerðir mannvirkja- og framkvæmdanefndar.

 

Fundargerðir framlagðar. 

 

Oddviti lagði til að samþykkt verði tillaga nefndarinnar um að farið verði í 

framkvæmdir á götunni Háamel í stað Lyngmels. Ástæður breytingarinnar 

eru að rafmagn, ljósleiðari og hitaveita liggja nær Háamel, jafnframt er 

auðveldara að tengjast núverandi fráveitu hverfisins. Að öllum líkindum er 

gatan því ódýrari í framkvæmd. 

Tillagan samþykkt 7-0

 

7.   1506004F - Fræðslu- og skólanefnd - 118

 

Fundargerð framlögð.

 

7.1.  1506047 - Útleigureglur Heiðarskóla-drög

 

Oddviti leggur til að fræðslu- og skólanefnd endurskoði drögin í ljósi 

athugasemda.

Samþykkt samhljóða 7-0.

 

7.2.  1506048 - Útleigureglur Heiðarborg - drög

 

Oddviti leggur til að fræðslu- og skólanefnd endurskoði drögin í ljósi 

athugasemda.

Samþykkt samhljóða 7-0.

 

8.   1506039 - Áskorun til Matvælastofnunar vegna varnagirðingar frá 

Hvalfjarðarbotni að Þórsjökli.

 

Erindi frá oddvita.

 

Oddviti lagði til að sveitarstjórn samþykki eftirfarandi bókun og sendi til 

MAST með afriti á ráðherra og sveitarfélög sem málið varðar.

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar lýsir yfir áhyggjum sínum á ástandi 

varnargirðinga milli Vesturlandshólfs, Landnámshólfs og Grímsnes og 

Laugardalshólfs. Þess ber að geta að Landnámshólfið er skilgreint sýkt 

svæði að hluta. Girðingin sem um ræðir liggur frá Hvalfjarðarbotni við 

Múlafjall um Hvalvatn að Kvígindisfelli að Brunnum við Uxarhryggi í 502 

Hrúðurkarla við Þórisjökul. Ástand girðingarinnar er með öllu óviðunandi, 

sökum langvarandi skorts á viðhaldi. Girðingar sem er illa haldið við 

skapa mikla hættu fyrir og dýr og því óforsvaranlegt að þessir hlutir séu í 

ólagi árum saman. 

Óskar sveitarstjórn skýrra svara hvernig Matvælastofnun hyggst sinna 

sínu lögbundna hlutverki á viðhaldi áður nefndrar girðingar. Jafnframt 

hvort fram hafi farið mat á viðhaldsþörf áður nefndrar girðingar innan 

Mast.

Bókun samþykkt samhljóða 7-0

 

9.   1506040 - Samningur á milli Hvalfjarðarsveitar og Kambshólsland 

ehf. og Eyrarbyggðar ehf. um jarðhitaleit og jarðhitarannsóknir.

 

Til samþykktar.

 

Oddviti lagði til að sveitarstjórn samþykki framlagðan samning. 

Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

 

10.   1410018 - Hundasamþykkt.

 

Síðari umræða.

 

Oddviti lagði til að sveitarstjórn samþykki hundasamþykktina.

Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

 

11.   1506041 - Reglur um fjárhagsáætlunarferli Hvalfjarðarsveitar - Drög.

 

Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.

 

Oddviti lagði til að fjármálastjóra og sveitarstjóra verði falið að vinna áfram 

að reglunum, þannig að þær geti verið klárar til afgreiðslu í ágúst.

Tillagan samþykkt samhljóða 7-0

 

12.   1505005 - Aðalfundur í Vatnsveitufélagi Hvalfjarðarsveitar sf.

 

Ársreikningur 2014 lagður fram.

 

Fundargerðin framlögð

 

13.   1506033 - 41. stjórnarfundur Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar.

 

Fundargerðin framlögð

 

14.   1506034 - 133. fundur Faxaflóahafna.

 

Fundargerðin framlögð

 

15.   1506035 - 81. fundur Sorpurðunar Vesturlands. 

 

Fundargerðin framlögð

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:55 .

Efni síðunnar