Fara í efni

Sveitarstjórn

198. fundur 09. júní 2015 kl. 16:00 - 18:00

Björgvin Helgason oddviti, Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti, Hjördís Stefánsdóttir 

ritari, Ása Helgadóttir aðalmaður, Stefán Ármannsson aðalmaður, Daníel Ottesen 

aðalmaður og Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður.

 

Skúli Þórðarson  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.

 

Björgvin Helgason oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til 

fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

 

Jónella Sigurjónsdóttir boðaði forföll.

 

Oddviti óskaði eftir því að erindi Guðmundar Ólafssonar, dags. 5. júní sl. verði tekið á 

dagskrá fundarins sem 6. dagskrárliður og var það samþykkt með 7 atkvæðum.

1.   1505002F - Sveitarstjórn - 197

 

Fundargerð framlögð.

 

2.   1506001F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 55

 

Fundargerð framlögð.

AH. fór yfir og skýrði einstaka liði fundargerðarinnar.

 

2.1.  1409020 - Endurskoðun aðalskipulags.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir, að fenginni umsögn 

USN-nefndar, að ekki sé ástæða til að ráðast í heildarendurskoðun á 

Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum. SÁ var 

fjarverandi.

 

2.2.  1505027 - Másstaðir 3 - 5 "sæluhús" (gestahús)

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fresta afgreiðslu 

erindisins og óska álits Skipulagsstofnunar á atriðum sem þarfnast 

frekari skoðunar."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum. SÁ var 

fjarverandi.

 

2.3.  1506002 - Vallanes 3 - Geymsla - Flutningur geymsluskúrs á lóð

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir, að tillögu USN-nefndar, 

byggingarleyfi fyrir geymsluskúr í landi Vallaness 3, landnr. 133661"

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum. SÁ var 

fjarverandi.

 

2.4.  1506001 - Þyrill - Olíutankar N1 - Niðurrif

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir, að tillögu USN-nefndar, 

heimild til N1 hf. til að fjarlægja 4 olíugeyma við fyrrum söluskálann 

Þyril. Sveitarstjórn vekur athygli á að framkvæmdaraðili þarf að 

sækja um tímabundið starfsleyfi vegna framkvæmdarinnar til 

Heilbrigðiseftirlits Vesturlands."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum. SÁ var 

fjarverandi.

 

3.   1506008 - 28. fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.

 

Oddviti kynnti fundargerðina.

Fundargerð framlögð.

 

4.   1506015 - Kosningar skv. 7.gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp 

Hvalfjarðarsveitar nr 554 frá 29. maí 2013

 

Kjör oddvita og varaoddvita, til 1. árs í senn.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að Björgvin Helgason verði 

kjörinn oddviti og Arnheiður Hjörleifsdóttir verði kjörin varaoddviti"

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

5.   1506012 - Ósk eftir lausn frá setu sem varaformaður í fræðslu- og 

skólanefnd.

 

Erindi frá Ólafi Inga Jóhannessyni.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagða beiðni Ólafs Inga 

Jóhannessonar um lausn frá störfum í fræðslu- og skólanefnd út 

kjörtímabilið og þakkar honum fyrir vel unnin störf."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

6.   1506024 - Ósk eftir lausn frá setu sem aðalmaður í fræðslu- og 

skólanefnd.

 

Erindi frá Guðmundi Ólafssyni.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu: 

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagða beiðni Guðmundar 

Ólafssonar um lausn frá störfum í fræðslu- og skólanefnd út kjörtímabilið 

og þakkar honum fyrir vel unnin störf."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

7.   1506017 - Kjör fulltrúa í fræðslu- og skólanefnd.

 

Frestað á síðasta fundi.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að kjósa eftirtalin sem 

aðalfulltrúa í fræðslu- og skólanefnd í stað þeirra aðila sem sagt hafa sig 

úr nefndinni:

Daníel Ottesen

Dagný Hauksdóttir

Berglind Ósk Jóhannesdóttir."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

8.   1505026 - Beiðni um tilnefningu fagaðila vegna girðinga á merkjum 

jarðanna Glammastaða, Glammastaðalands, Kambshóls og 

Geitabergs.

 

Erindi frá Sýslumanninum á Vesturlandi, Búnaðarsamtökum Vesturlands 

og Land Lögmönnum.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að tilnefna Jón Valgarðsson 

sem fulltrúa Hvalfjarðarsveitar."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

9.   1502024 - Reglur um liðveislu.

 

Til samþykktar.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagðar reglur um 

félagslega liðveislu í Hvalfjarðarsveit með þeirri breytingu að kærufrestur 

verði 3 mánuðir í stað 4 vikna."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

10.   1502025 - Reglur um akstursþjónustu.

 

Til samþykktar.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagðar reglur um 

akstursþjónustu í Hvalfjarðarsveit með þeirri breytingu að kærufrestur 

verði 3 mánuðir í stað 4 vikna."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

11.   1405006 - Reglur um félagslega heimaþjónustu

 

Til samþykktar.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagðar reglur um 

félagslega heimaþjónustu í Hvalfjarðarsveit með þeirri breytingu að 

kærufrestur verði 3 mánuðir í stað 4 vikna."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

12.   1506006 - Laun vinnuskóla 2015

 

Erindi frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að laun í vinnuskóla sumarið 

2015 verði eftirfarandi:

8. bekkur 523 kr. pr. klst.

9. bekkur 597 kr. pr. klst.

10. bekkur 719 kr. pr. klst.

Orlof er innifalið í launum.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

13.   1506009 - Óskað eftir viðbótarfjármagni vegna viðhalds hluta þaks á 

félagsheimilinu Hlöðum.

 

Erindi frá umsjónamanni fasteigna Hvalfjarðarsveitar.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita kr. 1.250.600- til 

viðhalds á hluta þaks á félagsheimilinu Hlöðum. Jafnframt samþykkir 

sveitarstjórn eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna 

þeirrar framkvæmdar.

Viðauki 8. vegna framangreindrar tillögu að fjárhæð kr. 1250.600 - á 

31020. Kostnaði verði mætt af óvissum útgjöldum 21085-5971." 

Tillagan ásamt viðauka 8 borin undir atkvæði og samþykkt með 7 

atkvæðum.

 

14.   1506011 - Menningarmál - umsögn um tillögur.

 

Erindi frá Akraneskaupstað, dagsett 28. maí 2015.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa erindinu ásamt 

meðfylgjandi skýrslu til umsagnar menningar- og atvinnuþróunarnefndar."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

15.   1506016 - Sumarleyfi sveitarstjórnar og lokun skrifstofu 

Hvalfjarðarsveitar.

 

Frá sveitarstjóra.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að sumarleyfi sveitarstjórnar 

Hvalfjarðarsveitar verði frá og með 1. júlí nk. til og með 3. ágúst nk. 

Reglulegir fundir sveitarstjórnar 14. júlí og 28. júlí nk. falla því niður. Næsti 

reglulegi fundur sveitarstjórnar að loknu sumarleyfi verður haldinn þann 497 

11. ágúst nk. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að skrifstofa 

sveitarfélagsins verði lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks frá og með 20. 

júlí nk. til og með 3. ágúst nk."

HS tók til máls. ræddi málefnið og óskaði eftir því tillögunni verði skipt upp 

þannig að annars vegar verði borin upp tillaga um sumarleyfi 

sveitarstjórnar og hins vegar tillaga um lokun skrifstofu Hvalfjarðarsveitar.

Bar þá oddviti upp tillögu um sumarleyfi sveitarstjórnar skv. ofangreindu 

og var tillagan samþykkt með 7 atkvæðum.

Þá bar oddviti upp tillögu um lokun skrifstofu sveitarfélagsins skv. 

ofangreindu og var það samþykkt með 6 atkvæðum, HS greiddi atkvæði á 

móti.

 

16.   1506018 - Húsnæðismál Skraddaralúsa.

 

Erindi frá Skraddaralúsum.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur jákvætt í erindið og samþykkir að 

fela sveitarstjóra að eiga viðræður við fulltrúa bréfritara."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

17.   1506007 - Rekstraryfirlit janúar- apríl 2015.

 

Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.

 

Rekstraryfirlit framlagt.

 

18.   1506014 - Skógræktarfélag Íslands - gróðursetning.

 

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 3. júní 2015.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna og þess að í ár eru 35 ár 

eru liðin frá kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Íslands 

samþykkir sveitarstjórn að kaupa 297 birkiplöntur til gróðursetningar. 

Birkiplönturnar eru jafnmargar kvenkyns íbúum sveitarfélagsins og er 

stefnt að því að þær verði gróðursettar þann 27. júní nk. í samvinnu við 

Skógræktarfélag Skilmannahrepps. Samþykktin rúmast innan gildandi 

fjárhagsáætlunar."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

19.   1506019 - Áskorun til bæjar- og sveitarstjórna á Vesturlandi vegna 

viðræðna skólastjórafélags Íslands og Sambands íslenskra 

sveitarfélaga.

 

Frá Skólastjórafélagi Íslands.

 

Bréf lagt fram til kynningar.

 

20.   1506021 - 51. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

21.   1505009 - Aðalfundur Faxaflóahafna sf.

 

Ársskýrsla 2014 liggur frammi.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

22.   1506022 - 827. og 828. fundir Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

 

23.   1502013 - Skýrsla sveitarstjóra.

 

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá 

síðasta reglulega fundi sveitarstjórnar.

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:45 .

Efni síðunnar