Fara í efni

Sveitarstjórn

197. fundur 26. maí 2015 kl. 16:00 - 18:00

Björgvin Helgason oddviti, Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti, Hjördís Stefánsdóttir 

ritari, Jónella Sigurjónsdóttir vararitari, Ása Helgadóttir aðalmaður, Stefán Ármannsson 

aðalmaður og Daníel Ottesen aðalmaður.

 

Skúli Þórðarson  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.

 

Björgvin Helgason oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til 

fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

1.   1505001F - Sveitarstjórn - 196

 

Fundargerð framlögð.

 

 

2.   1505003F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 54

 

Fundargerð framlögð.

AH fór yfir og skýrði einstök atriði fundargerðarinnar.

 

2.1.  1505017 - Kortlagning hávaða á Grundartanga

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir, að tillögu USN-nefndar, 

að fela sveitarstjóra, formanni USN-nefndar og skipulags- og 

umhverfisfulltrúa að hefja viðræður við Faxaflóahafnir um 

hljóðmælingar og kortlagningu hávaða frá iðnaðarsvæðinu við 

Grundartanga í samræmi við reglugerð um kortlagningu hávaða og 

aðgerðaráætlanir nr. 1000/2005."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.2.  1505002 - Samkomulag um grænar áherslur í starfsemi, 

uppbyggingu, gatnagerð og frágangi lóða á Grundartanga.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

 

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að skipa formann USNnefndar sem fulltrúa Hvalfjarðarsveitar í stefnumótunarvinnu um 

æskilega nýja starfsemi á Grundartanga sbr. ákvæði 2. gr. 

samkomulags við Faxaflóahafnir um uppbyggingu, gatnagerð og 

frágang lóða á Grundartanga. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að 

óska eftir tilnefningu frá Faxaflóahöfnum í stefnumótunarvinnuna."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.3.  1504006 - Efra-Skarðsland - Ósk um nafnabreytingu

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir, að fengnu áliti USNnefndar, ósk Ármanns Rúnars Ármannssonar um nafnabreytingu á 

landsspildunni 205665, Efra-Skarðsland þannig að eftir breytingu ber 

landsspildan nafnið Stóra-Aðalskarð.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

SGÁ vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

 

3.   1504005F - Fjölskyldunefnd - 50

 

Fundargerð framlögð.

 

3.1.  1503024 - Opið hús eldri borgara.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu ásamt viðauka:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir tillögu fjölskyldunefndar 

um opið hús fyrir eldri borgara september - desember 2015.

Viðauki 7. Oddviti lagði fram tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun 

ársins 2015 vegna framangreindrar tillögu að fjárhæð kr. 220.000 - á 

02048. Kostnaði verði mætt af óvissum útgjöldum 21085-5971." 

Tillagan ásamt viðauka 7 borin undir atkvæði og samþykkt með 6 

atkvæðum.

ÁH vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

 

4.   1505020 - 27. fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.

 

Fundargerð framlögð.

 

5.   1505021 - 5. fundur veitunefndar Hvalfjarðarsveitar.

 

Fundargerð framlögð.

SGÁ fór yfir og skýrði einstök atriði fundargerðarinnar.

 

6.   1505025 - Beiðni um lausn frá setu í fræðslu- og skólanefnd.

 

Erindi frá Hjördísi Stefánsdóttur.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagða beiðni Hjördísar 

Stefánsdóttur um lausn frá störfum í fræðslu- og skólanefnd út 

kjörtímabilið og þakkar henni fyrir vel unnin störf.

Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að fresta kosningu aðalmanns í 

nefndina til næsta fundar."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

7.   1505019 - Fyrirspurn vegna lóðar sem liggur fyrir innan Sólvelli 2. 

 

Erindi frá Gunnari S. Ragnarssyni, dagsett 10. maí 2015.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fresta afgreiðslu erindisins 

og samþykkir að vísa því til frekari umfjöllunar hjá USN-nefnd."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

8.   1505024 - Aðalfundur Höfða, fundarboð.

 

Ársreikningur 2014 og sundurliðun ársreiknings 2014 lagðir fram. 

Tilnefning fulltrúa á aðalfund.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að Margrét Magnúsdóttir verði 

fulltrúi Hvalfjarðarsveitar á fundinum og Skúli Þórðarson, sveitarstjóri til 

vara."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

9.   1505011 - Opið bréf til forsvarsmanna Faxaflóahafna sf.

 

Svar frá Faxaflóahöfnum til Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð, dagsett 

12. maí 2015.

 

Bréf lagt fram til kynningar.

 

10.   1505022 - 116. stjórnarfundur SSV, 4. maí 2015.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

11.   1505023 - 132. fundur Faxaflóahafna.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

12.   1502013 - Skýrsla sveitarstjóra.

 

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá 

síðasta reglulega fundi sveitarstjórnar.

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:33 .

Efni síðunnar