Fara í efni

Sveitarstjórn

195. fundur 28. apríl 2015 kl. 16:00 - 18:00

Björgvin Helgason oddviti, Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti, Hjördís Stefánsdóttir 

ritari, Jónella Sigurjónsdóttir vararitari, Ása Helgadóttir aðalmaður, Stefán Ármannsson 

aðalmaður og Daníel Ottesen aðalmaður.

 

Skúli Þórðarson  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.

 

Björgvin Helgason oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til 

fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár

1.   1503007F - Sveitarstjórn - 194

 

Fundargerð framlögð.

 

2.   1504002F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 53

 

Fundargerð framlögð.

 

2.1.  1412009 - Leyfi til efnistöku í landi Kjalardals.

 

Borist hefur erindi frá Bjarka B. Magnússyni varðandi efnistöku í landi 

Kjalardals. 

Sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku allt að 30.000 rm. á rúmlega 

4000 fm. svæði við núverandi námu, til 12 mánaða.

 

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi 

fyrir efnistökunni. Ekki þarf að grenndarkynna framkvæmdarleyfið þar 

sem framkvæmdin 

er í samræmi við aðalskipulag sbr. 13. gr. skipulagslaga 123/2010. 

Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.2.  1407016 - Bjarkarás 7 - Breyta skráningu úr sumarhúsi í 

íbúðarhús

 

Sótt er um að breyta 63.7 fm. sumarhúsi í íbúðarhús. Samkvæmt gildandi 

byggingarreglugerð getur húsið talist íbúðarhús þegar byggð hefur verið 

geymsla. 

Málið var áður til umfjöllunar í USN nefnd 14. júli 2014 þar sem gerð 

var eftirfarandi bókun. "USN nefnd leggur til að fresta málinu þar til 

deiliskipulag Bjarkaráss hefur öðlast gildi. Deiliskipulag Bjarkaráss tók 

gildi 24. mars 2015." 

 

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila breytingu á 

skráningu Bjarkaráss 7 úr sumarhúsi í íbúðarhús þegar byggð hefur 

verið geymsla, enda er það í fullu samræmi við gildandi 

byggingarreglugerð.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.3.  1409023 - Breyting deiliskipulags lóða á stóriðnaðarsvæði við 

Grundartanga, Norðurál

 

Erindi hefur borist frá Norðurál hf. dags. 5. mars 2015 um skipulagsmál 

vegna aukningar framleiðslu Norðuráls á Grundartanga. Málið var 

tekið fyrir á 52. fundi USN nefndar 11. mars 2015 og gerð eftirfarandi 

bókun: "Málinu frestað og umhverfis- og 

skipulagsfulltrúa falið að afla frekari gagna"

 

USN nefnd telur fyrirhugaða framleiðsluaukningu Norðuráls á 

Grundartanga kalla á breytingu á gildandi deiliskipulagi sbr. 1 mgr. 

43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa falið að fylgja 

málinu eftir.

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur undir og staðfestir bókun 

nefndarinnar þess efnis að fyrirhuguð framleiðsluaukning kalli á 

breytingu á gildandi deiliskipulagi sbr. 1 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 

123/2010." 

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.4.  1503018 - Mýrarholtsvegur 2

 

Á 52. fundi USN nefndar var gerð eftirfarandi bókun "USN nefnd fer 

fram á að farið verði í óverulega breytingu á deiliskipulagi og að 

jafnframt fari fram grenndarkynning fyrir Faxaflóahöfnum og Elkem 

vegna þess að fyrirhuguð bygging fer út fyrir 

byggingareit. 

Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram."

 

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila óverulega breytingu 

á deiliskipulagi lóðarinnar að undangenginni grenndarkynningu fyrir 

Faxaflóahöfnum og Elkem.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.5.  1504005 - Miðsandur Kampur - Hvalstöð - Mhl.16

 

Sótt er um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu á tómstundarhúsi mhl. 16 á 

Miðsandi Kampi,LNR. 133503. Bygging er 100.22 fm. og verður eftir 

stækkun 168,1 fm. Stækkun er því 65,9 fm. og verður húsinu breytt í 

framhaldi í starfsmannahús.

 

USN leggur til við sveitarstjórn að gefið verði út byggingarleyfi, sbr. 3 

mgr. 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.6.  1503045 - Hvítanes 2 - Niðurrif - Fok á mannvirkjum

 

Eyðilegging á mannvirkjum á Hvítanesi 2 vegna óveðurs þann 14. mars 

s.l. Byggingar ónýtar. Óskað er eftir samþykki á niðurfellingu á 

matshlutum. Um er að ræða 

matshluta 05+06+07+08+10+11+13+14+15+16+20+21

 

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila afskráningu 

mannvirkja, lnr. 133633 Hvítanes 2, 

mhl.05,06,07,08,10,11,13,14,15,16,20 og 21. Byggingarfulltrúa falið 

að vinna málið áfram.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.7.  1504020 - Akrakot - Stofnun lóðar - Akrakot 1

 

Sótt er um að stofna íbúðarhúsalóð í landi Akrakots, lnr. 133677. 

Íbúðarhúsalóðin er undir íbúðarhúsinu sem er með mhl. 02 með fastanr. 

210-5095.

 

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun 

íbúðarhúsalóðar.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.8.  1504021 - Vallarnesland C - Gróðurhús

 

Sótt er um byggingarleyfi fyrir 30 fm. gróðurhúsi við hlið sumarhúss sem 

er á Vallarneslandi C.

 

USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að veita byggingarleyfi. sbr. 3 

mgr. 4. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan borin undir atkvæði samþykkt með 7 atkvæðum.

 

3.   1503006F - Fræðslu- og skólanefnd - 117

 

Fundargerð framlögð.

 

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu vegna 4. liðar fundargerðarinnar:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir samþykkt fræðslu- og 

skólanefndar á ósk um leikskólavist barns utan lögheimilissveitarfélags og 

samþykkir, með vísan til rökstuðnings nefndarinnar, að hafna erindinu."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

4.   1410018 - Hundasamþykkt.

 

Áður frestað.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu samþykktar um hundahald í 

Hvalfjarðarsveit og felur sveitarstjóra að gera á henni leiðréttingar í 

samræmi við framkomnar ábendingar."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

5.   1504028 - Styrktarsjóður 2015. 

 

Fyrri úthlutun 2015.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn samþykkir að veita eftirtöldum styrk úr Styrktarsjóði 

Hvalfjarðarsveitar:

Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda kr. 40.000-

Skógræktarfélagi Skilmannahrepps v/ grisjunar og stígagerðar kr. 200.000-

Nemendafélagi Heiðarskóla v/ ferðar kr. 225.000-

Félagi slökkviliðsmanna Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar v/ kynnisferðar kr. 100.000-

Alexöndru Chernyshovu v/ sögu- og tónleikadagskrár kr. 75.000-"

Úthlutun alls kr. 640.000-"

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

6.   1504029 - Beiðni um afnot af Fannahlíð án endurgjalds, vegna 

kaffisamsætis fyrir eldri borgara á Uppstigningardag.

 

Erindi frá kvenfélaginu Lilju, dagsett 21. apríl 2015.

 

HS. tók til máls og lýsti yfir vanhæfi sínu við afgreiðslu málsins þar sem 

hún gegnir formennsku í kvenfélaginu og vék Hjördís af fundi.

AH. tók til máls og benti á hún væri félagsmaður í kvenfélaginu. Áður 

hefur sveitarstjórn úrskurðað um hæfi AH í sambærilegu tilviki.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að heimila Kvenfélaginu Lilju 

afnot af Félagsheimilinu Fannahlíð án endurgjalds þann 14. maí nk., 

uppstigningardag v/ kaffisamsætis með þeim fyrirvara að húsið sé laust til 

afnota þennan dag."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

HS tók sæti á fundinum að lokinni umræðu og afgreiðslu.

 

7.   1504026 - Aðalfundarboð 2015, Hitaveitufélag Hvalfjarðar sf.

 

Tilnefning fulltrúa á aðalfundinn.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að Björgvin Helgason, oddviti 

fari með atkvæði Hvalfjarðarsveitar á fundinum og Stefán G. Ármannsson 

til vara."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

8.   1211014 - Ljósleiðari í Hvalfjarðarsveit.

 

Lokasvar við tilkynningunni til ESA um ljósleiðarann.

 

Fram lagt til kynningar bréf frá ESA, eftirlitsstofnun Evrópusambandsins, 

vegna lagningar ljósleiðara.

Engar athugasemdir eru gerðar við framkvæmdina en tiltekinna 

upplýsinga óskað.

 

9.   1504024 - 50. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis. 

 

Fundargerðin framlögð.

 

10.   1504025 - 131. fundur Faxaflóahafna.

 

Fundargerðin framlögð.

 

11.   1504032 - 39. fundur Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar sf.

 

Fundargerðin framlögð.

 

12.   1502013 - Skýrsla sveitarstjóra.

 

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá 

síðasta reglulega fundi sveitarstjórnar.

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:35

Efni síðunnar