Fara í efni

Sveitarstjórn

194. fundur 14. apríl 2015 kl. 16:00 - 18:00

Björgvin Helgason oddviti, Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti, Hjördís Stefánsdóttir 

ritari, Jónella Sigurjónsdóttir vararitari, Ása Helgadóttir aðalmaður, Stefán Ármannsson 

aðalmaður og Daníel Ottesen aðalmaður.

Skúli Þórðarson  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.

Björgvin Helgason oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til 

fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

1.   1503005F - Sveitarstjórn - 193

 

Fundargerð framlögð.

 

2.   1502004F - Fræðslu- og skólanefnd - 116

 

Fundargerð framlögð.

HS fór yfir og skýrði einstök atriði fundargerðarinnar.

 

2.1.  1503040 - Framlag til forvarna.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita foreldrafélagi 

leik- og grunnskóla kr. 125.000 styrk til forvarnarverkefna. 

Fjármunirnir verði teknir af framlagi til forvarna af lið 02033 í 

fjárhagsáætlun ársins 2015."

Tillagan borin upp og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.2.  1502001 - Afreksmannastyrkur - erindi frá Helenu Bergström.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir tillögu fræðslu- og 

skólanefndar um að veita Loga Erni Ingavarssyni kr. 50.000-afreksmannastyrk.

Sveitarstjórn samþykkir jafnframt eftirfarandi viðauka við 

fjárhagsáætlun 2015 vegna ofangreindrar samþykktar: Fjárhæðin 

verði tekin af liðnum 21085-5971 óviss útgjöld í fjárhagsáætlun ársins 

2015."

Tillagan borin upp og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

3.   1503001F - Fjölskyldunefnd - 48

 

Fundagerð framlögð.

ÁH fór yfir og skýrði einstök atriði fundargerðarinnar.

ÁH lagði fram tillögu þess efnis að reglur um akstursþjónustu, félagslega 

heimaþjónustu og liðveislu, sbr. liði 1, 2 og 4 í fundargerðinni, verði vísað 

til áframhaldandi vinnu í nefndinni.

Tillagan borin upp og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

4.   1504001F - Fjölskyldunefnd - 49

 

Fundagerð framlögð.

ÁH fór yfir og skýrði einstök atriði fundargerðarinnar.

 

5.   1504008 - 9. fundur landbúnaðarnefndar.

 

Fundargerð framlögð.

DO fór yfir fundargerðina.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir tillögu landbúnaðarnefndar um 

að segja upp og endurskoða samninga við aðila sem annast hafa 

grenjavinnslu og minkaeyðingu í sveitarfélaginu frá og með næstu 

áramótum."

Tillagan borin upp og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

6.   1504007 - 5. fundur mannvirkja- og framkvæmdanefndar.

 

Fundargerð framlögð.

Oddviti fór yfir og skýrði einstök atriði fundargerðarinnar.

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að tillögu mannvirkja- og 

framkvæmdanefndar að hefja nú þegar hönnun gatna og veitukerfis fyrir 

Lyngmel, lóðanúmer 1-18."

Tillagan borin upp og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

7.   1410018 - Hundasamþykkt.

 

Drög að nýrri samþykkt um hundahald. Seinni umræða.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fresta afgreiðslu 

samþykktarinnar."

Tillagan borin upp og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

8.   1504010 - Framkvæmdaáætlun Barnaverndarnefndar Borgarfj. og 

Dala, og erindisbréf Barnaverndarnefndar.

 

a) Framkvæmdaáætlun til staðfestingar. b) Erindisbréfið til kynningar.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagða framkvæmdaáætlun 

Barnaverndarnefndar Borgarfjarðar og Dala og samþykkir að vísa henni 

ásamt erindisbréfi nefndarinnar til kynningar í fjölskyldunefnd." 477 

Tillagan borin upp og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

9.   1503041 - Samkomulag um grænar áherslur í starfsemi, 

uppbyggingu, gatnagerð og frágangi lóða á Grundartanga.

 

Til samþykktar.

 

AH tók til máls undir þessum dagskrárlið.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagt samkomulag 

Hvalfjarðarsveitar og Faxaflóahafna sf. og felur sveitarstjóra undirritun 

þess. Samkomulagið verði jafnframt kynnt fyrir USN-nefnd 

sveitarfélagsins"

Tillagan borin upp og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

10.   1504011 - Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. 2015.

 

Tilnefning fulltrúa á aðalfund.

 

Oddviti lagði fram eftirfrandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að Skúli Þórðarson, 

sveitarstjóri, fari með umboð Hvalfjarðarsveitar á aðalfundi Lánasjóðs 

sveitarfélaga sem haldinn verður í Reykjavík þann 17. apríl nk."

Tillagan borin upp og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

11.   1504013 - Hugmynd um svæði fyrir frístundabúskap í nálægð við 

Melahverfi.

 

Erindi frá Sigurði Arnari Sigurðssyni.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa erindinu til umfjöllunar 

í USN- nefnd Hvalfjarðarsveitar."

Tillagan borin upp og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

12.   1504012 - Rekstraryfirlit janúar - febrúar 2015.

 

Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.

 

Rekstaryfirlitið framlagt.

 

13.   1410029 - Ósk um undanþágu frá skipulagsreglugerð nr. 90/2013 um 

fjarlægð milli bygginga og vega, Glammastaðir.

 

Bréf frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, dagsett 30. mars 2015.

 

Úrskurður Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins lagður fram til kynningar.

 

14.   1412008 - Viljayfirlýsing um stofnun samstarfsvettvangs á 

Grundartanga.

 

Bæjarráð Akraness samþykkti að tilnefna bæjarfulltrúann Ólaf Adolfsson í 

starfshóp um stofnun Þróunarfélags á Grundartanga.

 

Lagt fram til kynningar. 

 

15.   1409009 - Ósk um framlag til tækjakaupa.

 

Þakkarbréf frá Ágústu Elínu Ingþórsdóttur, skólameistara Fjölbrautaskóla 

Vesturlands.

 

Lagt fram til kynningar.

 

16.   1504009 - 18. aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

17.   1504014 - 115. fundur stjórnar SSV, haldinn 11. mars 2015.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

18.   1504015 - 125. fundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

19.   1504016 - 14. aðalfundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands, 

ársreikningur, ársskýrsla og skýrsla stjórnar 2014.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

20.   1502013 - Skýrsla sveitarstjóra.

 

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri fór yfir helstu störf sín frá síðasta reglulega 

fundi sveitarstjórnar.

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:40 .

Efni síðunnar