Fara í efni

Sveitarstjórn

193. fundur 24. mars 2015 kl. 17:00 - 19:00

Björgvin Helgason oddviti, Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti, Hjördís Stefánsdóttir 

ritari, Jónella Sigurjónsdóttir vararitari, Stefán Ármannsson aðalmaður, Daníel Ottesen 

aðalmaður og Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður.

 

Skúli Þórðarson  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.

 

Björgvin Helgason oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til 

fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

 

Ása Helgadóttir boðaði forföll.

1.   1503002F - Sveitarstjórn - 192

 

Fundargerðin framlögð.

 

2.   1503003F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 52

 

Fundagerðin framlögð.

AH. fór yfir einstök atriði fundargerðarinnar

.

2.1.  1502019 - Óveruleg breyting á deiliskipulagi vestursvæðis við 

Grundatanga, lóð Kratus hf.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fenginni tillögu USNnefndar að heimila óverulega breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar að 

undangenginni grenndarkynningu fyrir Klafastaðavegi 1, 2, 2a og 6 

og Tangavegi 1 og 3 en áréttar jafnframt við umsækjanda, að fylgja í 

einu og öllu þeim skilmálum sem nú þegar hafa verið samþykktir fyrir 

svæðið. Sveitarstjórn bendir sérstaklega á almenna skilmála er 

varðar mengunarvarnarbúnað og loftræsikerfi en hvoru tveggja skal 

vera af bestu gerð. Þá er þess krafist að sérstaklega sé hugað að 

meðferð úrgangs, honum haldið í lágmarki og hann fluttur jöfnum 

höndum úr landi. Þá skal frágangur lóða vera í samræmi við 

aðaluppdrætti og öllum framkvæmdum við hús og á lóð, þar með 

talið frágangur lóðar með bundnu slitlagi gróðri og umhverfi, skal 

lokið innan fjögurra ára frá úthlutun lóðar."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.2.  1503002 - Litli Sandur - Olíustöð - Lnr. 192332 - Stofnun lóða 1 3 4

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að heimila Olíudreifingu 

ehf. stofnun lóða nr. 1, 3 og 4 á Litla-Sandi."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

3.   1303047 - Glammastaðir ehf. kt: 480113-0470.

 

Áður tekið fyrir á 191. fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fresta afgreiðslu málsins til 

næsta fundar. Skipulagsfulltrúa falið að afla frekari gagna / upplýsinga."

Tillagan samþykkt með 7 atkvæðum.

 

4.   1410018 - Hundasamþykkt.

 

Drög að nýrri samþykkt um hundahald.

Fyrri umræða.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa endurskoðaðri 

samþykkt um hundahald ásamt áorðnum breytingum til síðari umræðu í 

sveitarstjórn.

Tillagan samþykkt með 7 atkvæðum.

 

5.   1503034 - Reglur um útleigu í Heiðarskóla.

 

Drög að reglum.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa drögum að reglum um 

útleigu í Heiðarskóla til umsagnar fræðslu- og skólanefndar."

Tillagan samþykkt með 7 atkvæðum.

 

6.   1503035 - Erindisbréf fyrir mannvirkja- og framkvæmdanefnd.

 

Drög að erindisbréfi.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir vísa framlögðum drögum að 

erindisbréfi fyrir mannvirkja- og framkvæmdanefnd til skoðunar nefndar 

um endurskoðun samþykkta og stjórnskipulags sveitarfélagsins. Auk þess 

verði drög að erindisbréfinu sent mannvirkja-og framkvæmdanefnd. 

Tillagan samþykkt með 7 atkvæðum.

 

7.   1412008 - Viljayfirlýsing um stofnun samstarfsvettvangs á 

Grundartanga.

 

Tilnefning fulltrúa í starfshóp.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu: 

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að tilnefna Björgvin Helgason, 

oddvita sem fulltrúa Hvalfjarðarsveitar í starfshóp sem ætlað er að vinna 

drög að samþykktum félags um stofnun Þróunarfélags á Grundartanga. 

Auk Hvalfjarðarsveitar skipa Akraneskaupstaður og Borgarbyggð fulltrúa í 

starfshópinn."

Tillagan samþykkt með 7 atkvæðum.

 

8.   1503044 - Óskað eftir að skipulögð frístundabyggð í landi Beitistaða 

(sunnan þjóðvegar) verði breytt í íbúðarbyggð.

 

Erindi frá eigendum Beitistaðalands sunnan þjóðvegar.

 

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vísa erindinu til USNnefndar."

Tillagan samþykkt með 7 atkvæðum.

 

9.   1503032 - Aðalfundarboð - dagskrá, grænt bókhald 2014 og áritun 

stjórnar.

 

Frá Sorpurðun Vesturlands, dagsett 13. mars 2015.

 

Aðalfundarboð Sorpurðunar Vesturlands lagt fram til kynningar.

 

10.   1503041 - Samkomulag um grænar áherslur í starfsemi, 

uppbyggingu, gatnagerð og frágang lóða á Grundartanga.

 

Drög að samningi.

 

Til kynningar lögð fram drög að samkomulagi milli Hvalfjarðarsveitar og 

Faxaflóahafna um grænar áherslur í starfsemi, uppbyggingu, gatnagerð 

og frágangi lóða á Grundartanga.

AH. lýsti ánægju með samningsdrögin og kynnti hugleiðingar sínar um 

viðbót við a. lið 2. gr. samkomulagsins.

 

11.   1503030 - 80. fundur Sorpurðunar Vesturlands hf., 9. mars 2015.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

12.   1503037 - 130. fundur Faxaflóahafna.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

13.   1503042 - 49. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

14.   1502013 - Skýrsla sveitarstjóra.

 

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá 

síðasta reglulega fundi sveitarstjórnar.

 

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:33 

Efni síðunnar