Fara í efni

Sveitarstjórn

179. fundur 26. ágúst 2014 kl. 16:00 - 18:00

Björgvin Helgason oddviti, Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti, Hjördís Stefánsdóttir ritari, Jónella Sigurjónsdóttir vararitari, Ása Helgadóttir aðalmaður, Stefán Ármannsson aðalmaður og Daníel Ottesen aðalmaður.


Kristjana Helga Ólafsdóttir  fjármálastjóri, ritaði fundargerð.


Björgvin Helgason oddviti, setti fundinn og bauð fólk velkomið til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

 

1.   1407004F - Sveitarstjórn - 178


Fundargerð framlögð.


2.   1408004F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 43

AH fór yfir fundargerðina.
Fundargerðin framlögð.

2.1.  1407037 - Melahverfi - Rarikstöð - Stofnun lóðar


USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna óverulega
breytingu
deiliskipulags Melahverfis sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 fyrir
lóðarhöfum Hagamels 14 og 16.
Tillagan samþykkt 7-0.


2.2.  1408006 - Stóri-Lambhagi 1 - Stóri Lambhagi 1a - Stofnun lóðar


USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila stofnun lóðar þegar
samþykki
lóðarhafa Stóra Lambahaga 2a og 1b liggur fyrir.
Tillagan samþykkt 7-0.


2.3.  1408003 - Ytri Hólmur 1 - Fjárhús - Niðurrif


USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila afskráningu
byggingar hjá Þjóðskrá Íslands.
Tillagan samþykkt 7-0.


2.4.  1408002 - Ytri Hólmur 1 - Fjárhús - Nýbygging


DO tók til máls og óskaði eftir því að víkja af fundi við afgreiðslu
þessa liðs.
DO vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna
byggingarleyfi sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lóðar- og
húseigendum Ytri Hólmi, Ytri Hólmi 2 og Býlu 1 og 2.
Tillagan samþykkt 6-0.
DO tekur aftur þátt í fundinum að afgreiðslu lokinni.


3.   1408007 - 20. fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.


AH tók til máls og lýsti yfir ánægju sinni með störf menningarmálanefndar.
Hvalfjarðardagar eru haldnir næstkomandi helgi og vakti AH athygli á
stórglæsilegri dagskrá.
BH tók undir orð AH.
Fundargerðin framlögð.


4.   1408017 - 8. fundur landbúnaðarnefndar.


BH fór yfir tillögu nefndarinnar um réttir í Hvalfjarðarsveit haustið 2014.
2) Fjallskil:
A) Leitarsvæði Núparéttar. Fyrri leit er laugardaginn 13. sept og seinni
laugardaginn 27. sept. Fyrri rétt er sunnudaginn 14. sept kl. 13 og seinni
rétt
laugardaginn 27. sept að smölun lokinni.
Leitarstjórar eru Baldvin Björnsson og Magnús Hannesson.
Réttarstjóri er Baldvin Björnsson.
Marklýsingarmenn eru Helgi Bergþórsson og Sigurður Valgeirsson
Skilamenn í Hornsrétt eru Baldvin Björnsson og Hannes Magnússon.
B) Leitarsvæði Reynisréttar. Fyrri leit laugardaginn 20. sept og seinni leit
laugardaginn 27. sept.
Réttir eru að smölun lokinni.
Leitarstjóri er Ólafur Rúnar Ólafsson
Réttarstjóri er Lilja Guðrún Eyþórsdóttir
Marklýsingarmenn eru Sigurður Hjálmarsson og Haraldur Benediktsson.
C) Leitarsvæði Svarthamarsréttar. Fyrri leit er föstud. 12 og laugard. 13.
sept. Seinni leit laugard. 27. sept og sunnudag 28. sept.
Fyrri rétt er sunnudag 14. sept kl 10 og seinni rétt sunnudag 28. sept
þegar smölun er lokið.
Leitarstjóri Guðmundur Sigurjónsson.
Réttarstjóri Arnheiður Hjörleifsdóttir.
Marklýsingarmenn Guðmundur Friðjónsson og Brynjólfur Ottesen.
Skilamenn í Oddstaðarétt Stefán Ármannson og Jón Ottesen.
Fyrsta leit í landi Efra-Skarðs, Hóls, Hlíðarfótar, Eyrar, Kambshóls,
Glammastaða auk lands Geitabergs og Dragháls sem eru vestan
skógræktargirðingar verður föstud. og laugard. 19. og 20. sept. Þeim
úrtíning sem þar kemur verður annaðhvort skilað til eigenda eða geymdur
til seinni Svarthamarsréttar.
Tillagan samþykkt 7-0.


BH leggur til að sveitarstjóra sé falið að tilkynna nágrannasveitarfélögum
og óska eftir athugasemdum við þær leitir sem ekki eru í samræmi við
fjallskilareglugerð.
Samþykkt samhljóða 7-0.


5) önnur mál: Nefndin fer fram á að sveitarstjórn sjái til þess að við réttir í
sveitarfélaginu verði kaffiveitingar og salernisaðstaða að höfðu samráði
við réttarstjóra.
BH leggur til að sveitarstjóra verði falið að vinna að málinu í samráði við
réttarstjóra.
Tillagan samþykkt 7-0.

5.   1408018 - 43. fundur fjölskyldunefndar.

ÁH fór yfir fundargerðina.


3) Eineltisáætlun sveitarfélagsins. Oddviti leggur til að vísa drögum að
eineltisáætlun til fræðslu- og skólanefndar. Einnig að sveitarstjóra og
félagsmálastjóra verði falið að vinna áfram að áætluninni og kynna hana
fyrir starfsfólki sveitarfélagsins.
Tillagan samþykkt 7-0.
Fundargerðin framlögð.

6.   1408009 - Beiðni um niðurfellingu á sorphirðugjaldi.


Erindi frá Steinunni Jóhannsdóttur gjaldkera Narfastaða ehf..


BH fór yfir erindið og lagði til eftirfarandi bókun:
Sveitarstjórn samþykkir að fella niður sorphirðugjald fyrir íbúðarhúsið á
Narfastöðum fyrir árið 2014. Fjármálastjóra er falið að fara yfir málið með
bréfritara og byggingarfulltrúa varðandi sorphirðugjöld og önnur
þjónustugjöld.
Tillagan samþykkt 7-0.


7.   1408011 - Ósk um kostnaðarþátttöku vegna leikskóladvalar utan
sveitarfélagsins.


Erindi frá Birnu Maríu Antonsdóttur, dagsett 14. ágúst 2014.


BH fór yfir erindið og leggur til að vísa erindinu til fræðslu- og
skólanefndar.
Tillagan samþykkt 7-0.


8.   1408010 - Félagsheimilið Hlaðir - Rekstrarleyfi - Endurnýjun


Erindi frá Sýslumanninum í Borgarnesi.


BH fór yfir erindið. 
Framlagt erindi Sýslumannsins í Borgarnesi þar sem óskað er umsagnar
sveitarstjórnar á umsókn Guðjóns Sigmundssonar f.h. Ísípísý ehf. kt
590109-0880 um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir gisti- og veitingahús að
Hlöðum í Hvalfjarðarsveit. BH leggur til að sveitarstjórn feli sveitarstjóra
afgreiðslu erindisins í samráði við byggingarfulltrúa og slökkviliðsstjóra.
Tillagan samþykkt 7-0.


9.   1408013 - Sorphirðumál o.fl.


Erindi frá Reynir Ásgeirssyni, formanni Svarfhólsskógar, félags eignarlóða
í Svarfhólsskógi.


BH fór yfir erindið og leggur til að vísa erindinu til USN nefndar.
AH tók til máls. Telur eðlilegt að erindið fari til USN nefndar og óskar eftir
að heyra frá sveitarstjórnarmönnum með að endurskoða hreinsunarátak
og skoða með Íslenska gámafélaginu möguleika á að bæta þjónustuna án
mikils hækkunar á kostnaði.
ÁH tók til máls. Tekur undir orð AH og er hlynnt því að skoða þetta í heild
sinni.
HS tók til mál. Er sammála síðasta ræðumanni og telur vert að skoða
þetta, enda hagsmunamál allra.
BH tekur undir orð sveitarstjórnarfólks og telur það vera til hagsbóta fyrir
sveitarfélagið að endurskoða þetta.
Tillagan samþykkt 7-0.


10.   1408019 - Opnun sundlaugarinnar að Hlöðum á Hvalfjarðardögum
2014.


Erindi frá oddvita.


BH fór yfir erindið og leggur til að sundlaugin að Hlöðum verði opin
föstudaginn 29. ágúst, laugardaginn 30. ágúst og sunnudaginn 31. ágúst
frá kl. 13 til 19. Jafnframt að gjaldfrjálst verði í sundlaugina laugardaginn
30. ágúst.
Sveitarstjórn samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun ársins að fjárhæð
160.000 kr. samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 63. gr. stjórnsýslulaga nr.
138/2011. Kostnaðarauka skal mætt með fjárveitingu af fjárhagsliðnum
óviss útgjöld 5971-21085.
Tillagan samþykkt 7-0.


11.   1404014 - Beiðni um umsögn vegna fjárfestingarverkefnis.

Ósk atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um áætlun á fasteignamati
og útreikningum vegna ívilnana á fasteignaskatti vegna Silicor Materials.


BH fór yfir erindið.
BH leggur til eftirfarandi bókun:
Fasteignamat væntanlegrar eigna félagsins liggur ekki fyrir , sveitarfélagið
hefur þar af leiðandi ekki forsendur til að áætla fasteignamat og getur því
ekki áætlað fjárhæð ívilnunar. Einu upplýsingarnar sem Hvalfjarðarsveit er
kunnugt um að liggi fyrir í þessu efni eru áætlanir fyrirtækisins sjálfs um 
að kostnaður vegna mannvirkja geti numið um 112.000.000 USD og
vegna lóðar um 8.400.000 USD, samtals um 120.400.000 USD eða
rúmum 14.000.000.000 kr. Hvalfjarðarsveit er reiðubúin til að veita
félaginu samskonar ívilnun vegna fasteignaskatta og gert var ráð fyrir í
lögum nr. 99/2010, eða allt að 50 % í allt að 10 ár.
Tillagan samþykkt 6-0. AH situr hjá.
AH tók til máls og gerði grein fyrir atkvæði sínu.


12.   1408020 - Beiðni um stuðning við söngnám í Reykjavík.


Erindi frá Hlyni Eyjólfssyni.

BH fór yfir erindið og lagði til að erindinu yrði hafnað á grundvelli þess að
Hvalfjarðarsveit er aðili að Tónlistarskóla Akraness.
Tillagan samþykkt 7-0.

13.   1408021 - Beiðni um rimlahlið ofan við Fannahlíð.


Erindi frá Skógræktarfélagi Skilmannahrepps.


BH fór yfir erindið.
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra og oddvita að
ræða við bréfritara.
Tillagan samþykkt 7-0.

14.   1408014 - Rekstraryfirlit janúar-júní 2014.


Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.


Lagt fram.

15.   1408008 - Greiddur arður frá Faxaflóahöfnum.


Frá Faxaflóahöfnum, dagsett 6. ágúst 2014.


Bréf Faxaflóahafna dags. 6.8.2014, þar sem gerður er grein fyrir arði sem
greiddur hefur verið til Hvalfjarðarsveitar að upphæð kr. 16.103.532 kr.
Lagt fram.


16.   1408022 - Framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga janúar - júní 2014.


Frá innanríkisráðuneytinu, dagsett 21. ágúst 2014.


Erindið framlagt.


17.   1408012 - 123. fundur Faxaflóahafna.


Fundargerðin framlögð.

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:58 .


Efni síðunnar