Fara í efni

Sveitarstjórn

169. fundur 08. apríl 2014 kl. 16:00 - 18:00

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Ása Helgadóttir varaoddviti, Sævar Ari Finnbogason ritari, Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður, Arnheiður Hjörleifsdóttir vararitari, Stefán Ármannsson aðalmaður og Halldóra Halla Jónsdóttir aðalmaður.


Laufey Jóhannsdóttir  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.


Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðar dagskrár.


Að auki sat fundinn sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

 


1.   1403004F - Sveitarstjórn - 168


AH óskaði eftir upplýsingum að varðandi lið 3, aðalskipulagsbreyting á
Grundartanga. Óskaði upplýsinga varðandi lið 23. kynningarfundur
varðandi umhverfisvöktun.
LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. Fundargerðin framlögð


2.   1403006F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 37


Fundargerðin framlögð


2.1.  1403049 - Hreinsun á kísilmálmi til framleiðslu á 16.000 tonnum
af sólarkísil á Grundartanga - Matsskyldufyrirspurn.


Umsögn USN nefndar.


SAF fór yfir umsögn USN nefndar. SÁ spurðist fyrir varðandi hvort
önnur gögn hafi borist varðandi erindið. AH rædd umsögnina. SAF
svaraði fram komnum fyrirspurnum.
Sveitarstjórn samþykkir umsögn USN nefndar með áorðnum
breytingum. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


3.   1311066 - Breyting deiliskipulags Hafnarskógar í landi Hafnar 2


Óveruleg breyting deiliskipulags Hafnarskógar 73 og 75 í landi Hafnar 2
var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynning fór fram 26. febrúar til 26. mars 2014. Engar
athugasemdir bárust.


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


4.   1403002 - 107. fundur fræðslu- og skólanefndar.


Afreksstyrktarsjóður Hvalfjarðarsveitar.


ÁH ræddi efnisatriði fundargerðarinnar. Fór yfir reglur um
afreksstyktkarsjóð lagði til að breyta fyrsta lið á þann veg að úthluta
150.000 kr í hvort sinn og lagði til að samþykkja reglurnar. Tillaga ÁH
samþykkt samhljóða 7-0. Reglurnar samþykktar samhljóða 7-0.
Fundargerðin framlögð


5.   1404003 - Auka fjárveiting v/viðhalds Heiðarborgar.


Erindi frá umsjónarmanni fasteigna Hvalfjarðarsveitar.


LJ fór yfir erindið og lagði til að samþykkja erindið. Lagði til við
sveitarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun ársins að fjárhæð
600.000 kr. samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 63. gr. stjórnsýslulaga nr.
138/2011. Kostnaðarauka skal mætt með fjárveitingu af fjárhagsliðnum
óviss útgjöld 5971-2185. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


6.   1404002 - Lóð heimavistar Fjölbrautaskóla Vesturlands, Vogabraut 4 á Akranesi.


Erindi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands, dagsett 18. mars 2014.


SSJ lagði til að vísa erindinu til afgreiðslu við fjárhagsáætlun 2015 og
lagði til að að tryggt verði að öll sveitarfélögin samþykki framlög til
verkefnisins. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

7.   1404004 - Hvalfjarðarsveitahlaup DHSI.


Erindi frá Draghundasporti Iceland, dagsett 28. mars 2014.

SSJ fór yfir erindið. SAF ræddi erindið. SSJ lagði eftirfarandi til;
Sveitarstjórn telur það ekki á sínu forræði að veita leyfi fyrir slíkri keppni.
AH ræddi erindið og benti á að líklegir leyfisveitendur séu Vegagerðin
lögregla og sýslumaður vegna umferðar á vegunum. SSJ lagði eftirfarandi
til; Sveitarstjórn telur það ekki á sínu forræði að veita leyfi fyrir slíkri
keppni en bendir á Vegagerðina lögreglu og sýslumann vegna
leyfisveitinga. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


8.   1404006 - Iðnaðarsvæðið á Grundartanga - hljóð- sjón- og
útblástursmengun.


Erindi frá formanni félags frístundarbyggðar í Raðahverfi á landi Háls í
Kjós.


SSJ ræddi erindið. AH ræddi erindið og bendir á að verið er að taka upp
aðalskipulagið til þess að taka á útblæstri brennisteinstvíoxíðs og flúors
lagði til að vísa erindinu til Umhverfisstofnunar til umfjöllunar og benda
bréfritara á kynningarfund um umhverfisvöktun sem haldinn verður 9.
apríl. SAF ræddi erindið og bendir á að koma erindinu til umfjöllunar hjá
iðjuverunum og til Faxaflóahafna.
SSJ lagði til að vísa erindinu til umfjöllunar hjá Umhverfisstofnun,
iðjuverunum og hjá Faxaflóahöfnum. Tillagan samþykkt 7-0


9.   1404012 - Tillaga vegna óbundinna kosninga.


Frá Sævari Ara Finnbogasyni, dagsett 4. apríl 2014.


LJ fór yfir lögfræðiálit lögfræðinga sambands íslenskra sveitarfélaga
varðandi fram komna tillögu, ábendingar hans eru að leita til
innanríkisráðuneytisins varðandi framkvæmdina og bendir á að kynning á
frambjóðendum fari ekki fram fyrr en að framboðsfrestur er liðinn það er
10. maí nk. LJ lagði til að fara að ábendingum Guðjóns Bragasonar
lögmanns sambandsins. SAF fór yfir erindið og ábendingar Guðjóns
Bragasonar og að það staðfesti að tillagan stangist ekki á við lög. AH
ræddi fram komna tillögu og lögfræðiálit sambands sveitarfélaga. SSJ
ræddi fram komna tillögu. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum. ÁH
ræddi erindið og lagði til frestun á fram kominni tillögu og að fá álit
lögfræðinga innanríkisráðuneytisins varðandi fram komna tillögu. Tillagan
felld með atkvæðum HV, AH SÁ og SAF. Samþykkir voru SSJ HHJ og
ÁH. AH ræddi erindið. ÁH ræddi fram komna tillögu. LJ ræddi fram komna
tillögu og benti á að ekki fylgja fjármunir til verkefnisins. SAF svaraði fram
komnum fyrirspurnum og benti á fjármuni í fjárhagsáætlun við endurnýjun
á heimasíðu. HHJ benti á þá sem ekki eru tölvutengdir og ekki hafa
aðgang að neti. Benti á að gera sérstaka heimasíðu fyrir frambjóðendur.
SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum. Tillaga SAF samþykkt með 4
atkvæðum SÁ, SAF, HV og AH. SSJ, HHJ og ÁH sitja hjá við afgreiðsluna

10.   1404014 - Beiðni um umsögn vegna fjárfestingarverkefnis.


Erindi frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, dagsett 2. apríl 2014.


LJ fór yfir erindið og viðræður við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.
Lagði til við sveitarstjórn að fela sveitarstjóra að undirbúa umsögn. SAF
ræddi erindið.
Tillaga um að fela sveitarstjóra að undirbúa umsögn varðandi erindið til
sveitarstjórnar. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


11.   1403003 - Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ofh. 2014.


Frá Lánasjóði Sveitarfélaga ofh. dagsett 2. apríl 2014.


Erindið framlagt


12.   1403040 - Aðalfundarboð Menningarráðs Vesturlands.


Fjárhagsáætlun 2014. Ársskýrsla Menningarráðs Vesturlands 2013 liggur
frammi.


Fundargerðin framlögð


13.   1404009 - Aðalfundur Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands.


Ársskýrsla 2013, ársreikningur 2013 og starfsáætlun 2014 
Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi liggja frammi.


Ársskýrsla, ársreikningur og starfsáætlun framlögð.

14.   1404010 - Vesturlandsstofa aðalfundur.


Ársreikningur 2013 liggur frammi.


Erindið framlagt


15.   1404011 - Aðalfundur 2014, Heilbrigðiseftirlit Vesturlands.


Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2013 liggur frammi.

Ársskýrsla framlögð


16.   1403011 - Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, 28. mars 2014 og lög SSV.


Lög samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, liggja frammi.

ÁH gerði grein fyrir lagabreytingum en afgreiðslu þeirra er frestað til
haustfundar. Erindið framlagt


17.   1404013 - Til umsagnar frumvarp til laga um eflingu
tónlistarnáms(nám óháð búsetu), 414. mál.


Erindi frá Alþingi, dagsett 4. apríl 2014. Þegar sent form. fræðslu- og
skólanefndar og skólastjóra Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.


Erindið framlagt


18.   1404008 - 4. verkfundagerð vegna ljósleiðaraverkefnis.


Fundargerðin framlögð

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:10 .


Efni síðunnar