Fara í efni

Sveitarstjórn

166. fundur 25. febrúar 2014 kl. 16:00 - 18:00

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Ása Helgadóttir varaoddviti, Sævar Ari Finnbogason ritari, Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður, Arnheiður Hjörleifsdóttir vararitari, Stefán Ármannsson aðalmaður, Halldóra Halla Jónsdóttir aðalmaður og Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri, ritar fundargerð.


Laufey Jóhannsdóttir  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.


Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.
Að auki sat fundinn sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

 


1.   1402002F - Sveitarstjórn - 165


Fundargerðin framlögð

2.   1402004F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 34


SAF fór yfir efnisatriði fundargerðarinnar. Fór yfir lið eitt; viðurkenningu til
umhverfisnefndar Heiðarskóla, fyrirhugað er að funda með nemendum í
umhverfisnefnd Skýjaborgar. Fundargerðin framlögð


2.1.  1401033 - Boð um þátttöku í samráðsvettvangi vegna mótunar
landsskipulagsstefnu 2015-2026.


Tillaga er um að AH verði fulltrúi og SAF varamaður. Tillagan
samþykkt samhljóða 7-0.


2.2.  1402020 - Aðalvík - Stofnun lóðar - Aðalvík 1


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


2.3.  1402002 - Ferstikla 1 - Stofnun lóðar - Ferstikla 3


SAF benti á að umsækjendur þurfi að fá samþykki ráðherra varðandi
landskipti áður en þetta gengur í gegn. Umsögn sveitarstjórnar á að
fylgja áður og rétt að byggingarfulltrúi áriti ekki fyrr en sveitarstjórn
hefur afgreitt umsögn um landskipti. Lagt er til að fresta afgreiðslu
þar til umsögn hefur borist. Tillaga um að fresta afgreiðslu og vísa
málinu aftur til USN nefndar. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


2.4.  1402021 - Hlíð - Smáhýsi mhl.XX

Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


2.5.  1402025 - Leynir - umsókn um byggingarleyfi


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

3.   1402028 - 1. og 2. fundur stýrihóps um leikskólamál.


SAF ræddi nafnið á stýrihópnum. SSJ mun skoða nánar á næsta fundi.
Fundargerðirnar framlagðar.


4.   1402010 - Reiðvegur við Miðgarðstjörn.

Frestað af síðasta fundi. Tillaga frá byggingarfulltrúa Hvalfjarðarsveitar.


SSJ fór yfir erindið og lagði til að veita 1,4 miljónum til framkvæmdarinnar
á árinu 2014 sem er á fjárhagsáætlun ársins og lagði til að vísa síðari
hluta erindisins til næstu fjárlagagerðar. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


5.   1402035 - Beiðni um rotþró.


Erindi frá stjórn Skógræktarfélags Skilmannahrepps, dagsett 8. febrúar
2014.


SSJ ræddi erindið og benti á kostnað við kaup á rotþróm. Lagði fram
tillögu um að fela sveitarstjóra og byggingarfulltrúa að kanna erindið
nánar og koma með tillögur á næsta fund sveitarstjórnar. Benti á að húsið
er í eigu sveitarfélagsins. SAF tók undir fram komna tillögu og erindið. SÁ
spurðist fyrir varðandi eignarhald á húsi skógræktarfélagsins. SSJ svaraði
fram komnum fyrirspurnum. ÁH lýsti yfir stuðningi við fram komna tillögu.
AH ræddi erindið og styrki til skógræktarfélagsins og uppbyggingu á
svæðinu. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


6.   1402037 - Beiðni um ljósleiðaratengingu.


Erindi frá Lögmönnum Sundagörðum, fyrir hönd Böðvars Jónssonar,
Grafardal og Grétars Sveinssonar, Draghálsi, dagsett 7. febrúar 2014.


SSJ fór yfir erindið. SAF ræddi erindið. AH ræddi erindið og benti á
afgreiðslu sveitarstjórnar frá seinasta fundi sjá mál; 1402017 er hefur áhrif
á erindi bréfritara.
Erindið er framlagt.
AH spurðist fyrir varðandi verklagsreglur og tillögu varðandi
ljósleiðaratengingar frá síðasta fundi. LJ svaraði fram komnum
fyrirspurnum.


7.   1402039 - Umsókn um styrk vegna námsferðar.

Erindi frá Söru Margréti Ólafsdóttur, dagsett 13. febrúar 2014.


SSJ ræddi erindið og lagði til að vísa erindinu til styrktarsjóðs
Hvalfjarðarsveitar. AH ræddi erindið og lýsti yfir ánægju með að
doktorsnemi í menntunarfræðum ungra barna komi úr Hvalfjarðarsveit.
ÁH svaraði fram komnum fyrirspurnum og ræddi afreksstyrki. SSJ fór yfir
erindið. Tillaga um að vísa erindinu til styrktarsjóðsins. Tillagan samþykkt
samhljóða 7-0.


8.   1402041 - Beiðni um leiðréttingu á heimilisfangi.

Erindi frá Jóni Péturssyni, Botnsskála, dagsett 10. febrúar 2014.


SSJ fór yfir erindið. Lagði til að vísa erindinu til byggingarfulltrúa til nánari
skoðunar. AH ræddi erindið. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. SAF
ræddi erindið. SSJ ræddi erindið. HV ræddi erindið. ÁH ræddi erindið og
benti á að áður hafi sveitarstjórnir hreppanna veitt umsögn um hvaða
jarðir/hús væru í eyði. Tillaga um að vísa erindinu til nánari skoðunar hjá
byggingarfulltrúa. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


9.   1402034 - Uppsetning kjörskrár og skráning kjördeilda.


Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 6. febrúar 2014.
Þegar sent form. kjörnefndar.

Erindið framlagt


10.   1402046 - Breyting á reglugerð velferðarráðuneytisins um
húsaleigubætur.


Frá innanríkisráðuneytinu (jöfnunarsjóði sveitarfélaga), dagsett 13.
febrúar 2014. Þegar sent félagsmálastjóra og fjármálastjóra
Hvalfjarðarsveitar.


Erindið framlagt


11.   1402042 - Til umsagnar frumvarp til laga um skipulags- og
mannvirkjamál á Reykjavíkurflugvelli (heildarlög, yfirstjórn og
ábyrgða Alþingis), 217. mál.


Erindi frá Alþingi, dagsett 19. febrúar 2014. Þegar sent skipulagsfulltrúa,
byggingarfulltrúa og form. USN nefndar.


Erindið framlagt


12.   1402043 - Verkfundagerðir vegna ljósleiðaraverkefnis, dags. 14. okt., 30. okt., og 18. desember 2013.


SÁ spurðist fyrir varðandi framkvæmdir. HV benti á að verktaki þurfi að
ganga frá efni og fleira sem skilið er eftir. LJ svaraði fram komnum
fyrirspurnum varðandi verkáætlun. Fundargerðirnar framlagðar.


13.   1402033 - 103. fundur stjórnar SSV, 10. febrúar 2014.


Fundargerðin framlögð

14.   1402036 - 37. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.


Fundargerðin framlögð


15.   1402040 - 117. fundur Faxaflóahafna.


Fundargerðin framlögð

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17.20 .


Efni síðunnar