Fara í efni

Sveitarstjórn

161. fundur 10. desember 2013 kl. 16:00 - 18:00

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Ása Helgadóttir varaoddviti, Sævar Ari Finnbogason
ritari, Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður, Arnheiður Hjörleifsdóttir vararitari, Stefán
Ármannsson aðalmaður, Halldóra Halla Jónsdóttir aðalmaður og Laufey Jóhannsdóttir
sveitarstjóri, ritar fundargerð.


Laufey Jóhannsdóttir  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.


Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og
var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.
Að auki sátu fundinn sveitarstjóri og ritaði fundargerð.

 

1.   1311004F - Sveitarstjórn - 160


LJ þakkaði stjórn og framkvæmdastjóra Faxaflóahafna fyrir höfðinglega
bókargjöf; Hér heilsast skipin. Hvalfjarðarsveit sendir heillaóskir í tilefni af
100 afmæli Reykjavíkurhafnar. Fundargerðin framlögð


2.   1311003F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 32


SAF fór yfir efnisatriði fundargerðarinnar. Lagði til að við lið 7 mál
aðalskipulag á Grundartanga mál 1311026 verði bætt víð bókunina;
Skipulagsfulltrúi ásamt SAF, BH og fulltrúa frá Faxaflóahöfnum skoði
stefnumörkun í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar. LJ ræddi lið 8 og að
fyrirhugað er að funda með landeigendum ásamt fulltrúum frá Landslagi
ehf. SÁ ræddi lið 7 og hvers vegna fulltrúar Faxaflóahafna eigi að starfa
með hópnum. HV ræddi lið 2 umgengni á lóðum á Grundartanga. Ræddi
lið 7 hugmyndir varðandi breytingar á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar.
SSJ ræddi lið 7 aðalskipulag á Grundartanga ræddi hugmyndir varðandi
breytingar. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum ræddi hugmyndir um
breytingar á aðalskipulagi Grundartanga.
Fundargerðin framlögð

2.1.  1310018 - Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir GMR Endurvinnsluna ehf.


Sveitarstjórn tekur undir með USN nefnd og samþykkir að senda
framlagt minnisblað til Umhverfisstofnunar sem umsögn
Hvalfjarðarsveitar varðandi starfsleyfi fyrir GMR. Tillagan samþykkt
samhljóða 7-0.


2.2.  1308004 - Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir Kratus ehf. fyrir
vinnslu áls úr álgjalli.


Lagt fram


2.3.  1311017 - Endurnýjun á vatnslögn - beiðni um styrk.


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


2.4.  1311066 - Breyting deiliskipulags Hafnarskógar í landi Hafnar 2


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


2.5.  1311026 - Aðalskipulag á Grundartanga.


SSJ ræddi tillögu USN og gerir breytingatillögu eftirfarandi: Leggur til
að skipulagsfulltrúi SAF og BH ásamt fulltrúa Faxaflóahafna skoði
stefnumörkun í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar varðandi athafna og
iðnaðarsvæði, með það að markmiði að sú vinna geti orðið
grundvöllur að tillögu að breyttu aðalskipulagi, m.a. hliðsjón að
umhverfisúttekt Faxaflóahafna. Leggur jafnframt til að síðari setningin
"Skipulagsfulltrúi verið hópnum til ráðgjafa " detti út.
Breytingatillagan samþykkt með 5 atkvæðum, SSJ SAF HHJ ÁH HV.
SA situr hjá AH greiðir atkvæði gegn tillögunni.
Bókun USN nefndar samþykkt með áorðnum breytingum. Tillagan
samþykkt með 4 atkvæðum ÁH, HHJ, SAF og SSJ. AH greiðir
atkvæði gegn tillögunni. HV og SÁ sitja hjá við afgreiðsluna.


3.   1312014 - 105. fundur fræðslu- og skólanefndar.


ÁH fór yfir fundargerðina. AH ræddi umhverfisþing og að fulltrúi
Hvalfjarðarsveitar var með erindið á þinginu. Ræddi lið 1 og stöðuna
varðandi að sviðsstjóri leikskóla hefur hætt því starfi. Ræddi matarmál í
leik- og grunnskóla. SAF ræddi lið 5 Skólapúlsinn og spurðist fyrir um
hvort nefndin hyggist skoða nánar ástæður þess að börn eru að hreyfa sig
minna. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. ÁH svaraði varðandi lið 5,
hreyfingu barna að afloknum skólatíma. Fundargerðin framlögð.


4.   1312002 - Starf félagsmálastjóra og æskulýðsmál


Samantekt frá sveitarstjóra.


LJ fór yfir erindið og lagði til að fella saman starf æskulýðsfulltrúa og starf
félagsmálastjóra í eitt starf og auglýsa eftir starfsmanni í 85% starf. AH
ræddi fram komnar hugmyndir og ræddi hvort hægt væri að eiga samstarf
með öðrum sveitarfélögum. HV ræddi hugmyndir varðandi breidd
málaflokksins og hvernig best fyrirkomið. SAF ræddi fram komnar
hugmyndir, mótun starfsins og starfshlutfall. Líst vel á fram komna
hugmynd. ÁH ræddi fram komna hugmynd og starfshlutfall tekur jákvætt í
hugmyndina. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum. SÁ ræddi fram
komna hugmynd og óskaði eftir að fresta afgreiðslunni. LJ svaraði fram
komnum fyrirspurnum. SAF ræddi fram komnar tillögur. SÁ ræddi fram
komnar hugmyndir. SAF tók tók undir hugmyndir um að vísa málinu til
viðeigandi fagnefnda. HV ræddi fram komnar hugmyndir og að vísa
málinu til nefnda. AH ræddi fagleg vinnubrögð og störf nefnda. ÁH
spurðist fyrir um viðhorf sveitarstjóra.
Tillaga SÁ um að vísa erindinu til fræðslu- og skólanefndar og
fjölskyldunefndar. Tillagan samþykkt með atkvæðum SÁ, HV, AH, SAF.
HHJ, ÁH sitja hjá SSJ greiðir atkvæði gegn tillögunni.


5.   1311068 - Fundur sveitarstjórnar í desember


Frá sveitarstjóra.


Tillaga um að fella niður síðari fund í desember 2013. Tillagan samþykkt
samhljóða 7-0.


6.   1311006 - Beiðni um að íþróttamiðstöðin í Heiðarborg verði opin alla daga vikunnar nema á sunnudögum.


Frá sveitarstjóra, tillaga frá skólastjóra um breytingu á opnun, viðbótar
kostnaður og samantekt frá fjármálastjóra.


LJ fór yfir erindið og lagði til gera tilraun með aukna opnun í 3 mánuði,
janúar, febrúar og mars og að útgjöldum verði mætt af óvissum útgjöldum.
SAF ræddi fram komna hugmynd og lagði til að samþykkja fram komna
hugmynd. AH ræddi tillöguna og lagði til að hafa tilraunaopnunina út
skólaárið. SAF ræddi að miða við hugmyndir varðandi tilraunaopnun.
Tillaga um opnunartíma skv tillögu skólastjóra. Samþykkt samhljóða 7-0.
Tillaga um að miðað skuli við skólaárið til vors. Tillagan samþykkt
samhljóða 7-0. Tillaga um að auknum kostnaði verði mætt af óvissum
útgjöldum.

7.   1311031 - Skipun stýrihóps varðandi húsnæðismál leikskólans.
Erindisbréf stýrihóps.


Tillaga um að bæta við; grein 2 samþykkt sveitarstjórnar á tillögu um
skipan stýrihóps um undirbúning og endurskoðun á húsnæði leikskólans
ásamt greinargerð og að með stýrihópnum starfi skólastjóri. Tillagan
samþykkt samhljóða 7-0.


8.   1312001 - Verksamningur um reglubundna tæmingu á rotþróm í
Hvalfjarðarsveit.


Erindi frá sveitarstjóra.


LJ fór yfir erindið og lagði til að endurnýja samninga við Hreinsitækni.
Þakkaði fyrir verklag varðandi útsendingu á gögnum. SSJ benti á að bæta
við grein 1, lögbýli, íbúðarhús og sumarhús og fl. Lagði til að sameina
grein 5 og 6. Tillaga um að endurnýja samning við Hreinsitækni ehf.
samþykkt samhljóða 7-0.


9.   1211014 - Ljósleiðari í Hvalfjarðarsveit.


Aðgangskerfi og þjónustuveitur.


LJ fór yfir erindið og leggur til að þjónustuveitum verði gefin kostur á að
bjóða þjónustu frá 1. mars 2014. Bréf hefur verið sent til allra
þjónustuveitna um að ljósleiðaralagning sé nú þegar hafin í
Hvalfjarðarsveit. Vodafone hefur nú þegar sent inn bréf og lýst yfir áhuga.
SAF ræddi erindið og fagnaði framkvæmdum og lagði til að samþykkja að
byrja tengingar frá 1. mars 2014. Sveitarstjórn samþykkir að heimila
þjónustuveitum tengingar á ljósleiðara frá 1. mars 2014. Tillagan
samþykkt samhljóða 7-0.


10.   1312013 - Höfði-lántaka.


Erindi frá Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili, dagsett 29. nóvember 2013.

Bókun fyrir Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar;
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir hér með að veita einfalda
ábyrgð vegna lántöku HÖFÐA hjúkrunar- og dvalarheimilis hjá Lánasjóði
sveitarfélaga að fjárhæð 60.000.000 kr. til , í samræmi við samþykkta
skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Er ábyrgð þessi veitt
sbr. heimild í 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og er hún
óskipt (in solidum) gagnvart kröfuhafa, en innbyrðis skiptist hún í hlutfalli
við eignarhluti í HÖFÐA hjúkrunar- og dvalarheimilis. Til tryggingar
ábyrgðinni standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr.
sömu laga. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar
sem hlýst af vanskilum. Er lánið tekið til að fjármagna byggingu nýrrar
hjúkrunarálmu og breytingu á tvíbýlum í einbýli sem fellur undir lánshæf
verkefni, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð
sveitarfélaga nr. 150/2006.
Sveitarstjórnin skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda félagsins
að eignarhald að félaginu megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að Hvalfjarðarsveit selji eignarhlut í HÖFÐA hjúkrunar- og
dvalarheimilis til annarra opinberra aðila, skuldbindur Hvalfjarðarsveit sig
til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að
sínum hluta. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0
Jafnframt er Laufeyju Jóhannsdóttur sveitarstjóra kennitala 0603484729 ,
veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að staðfesta f.h. Hvalfjarðarsveitar
veitingu ofangreindrar ábyrgðar með áritun á lánssamninginn.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


11.   1312003 - Skýrsla starfshóps til umsagnar hjá sveitarstjórnum.


Erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, dagsett 29. nóvember
2013.


LJ fór yfir erindið. HV ræddi fram komnar tillögur og ábendingar. SAF
ræddi erindið og jákvætt að öll sveitarfélögin eigi fulltrúa í stjórn.
Sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti fram komnar hugmyndir um
stjórnskipulag SSV og tekur undir varðandi breytingar á skipulagi á
starfsemi á skrifstofu. Tillagan samþykkt samhljóða. 7-0


12.   1312008 - Áframhaldandi samstarf um menningarmál.


Erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, dagsett 29. nóvember
2013.


Lagt fram erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi um samstarf
varðandi menningarmál og framtíð menningarsamnings.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar lýsir yfir vilja til að halda áfram samstarfi
um menningarmál á Vesturlandi með svipuðum hætti og verið hefur.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


13.   1312009 - Minnt á endurskoðun verkfallslista.


Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 2. desember 2013.


LJ lagði fram verkfallslista. Sveitarstjórn samþykkir fram lagðan lista. 7-0.


14.   1312015 - Rekstraryfirlit, janúar-október 2013.


Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.


Erindið framlagt


15.   1312012 - Til umsagnar frumvarp til laga um náttúruvernd (brottfall
laganna), 167. mál.


Frá Alþingi, dagsett 25. nóvember 2013. Þegar sent skipulagsfulltrúa og
form. USN nefndar.


Erindið framlagt


16.   1312011 - Til umsagnar frumvarp til laga um barnaverndarlög
(rekstur heimila fyrir börn), 186. mál.


Frá Alþingi, dagsett 25. nóvember 2013. Þegar sent félagsmálastjóra og
form. fjölskyldunefndar.


Erindið framlagt


17.   1312016 - Til umsagnar frumvarp til laga um
húsaleigubætur(námsmenn), 147. mál.


Frá Alþingi, dagsett 6. desember 2013. Þegar sent félagsmálastjóra og
form. fjölskyldunefndar.


Erindið framlagt


18.   1312017 - Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um seinkun
klukkunnar og bjartari morgna, 197. mál.


Frá Alþingi, dagsett 6. desember 2013. Þegar sent sveitarstjórn.


Erindið framlagt


19.   1312006 - 100. og 101. fundur stjórnar Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi.


Fundargerðirnar framlagðar


20.   1312004 - 116. fundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands.


Fundargerðin framlögð

21.   1312005 - Fundur vinnuhóps um almenningssamgöngur á
Vesturlandi, dags. 15. okt.´13.


ÁH fór yfir rekstur ársins 2013 og lítur út fyrir að áætlun ársins standist.

Fundargerðin framlögð


22.   1312007 - 76. fundur Sorpurðunar Vesturlands.


Fundargerðin framlögð


23.   1312010 - 810. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.


Fundargerðin liggur frammi. Hægt að sjá

 

http://www.samband.is/umokkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx
Fundargerðin framlögð

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 19:10.

Efni síðunnar