Fara í efni

Sveitarstjórn

160. fundur 26. nóvember 2013 kl. 16:00 - 18:00

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Sævar Ari Finnbogason ritari, Hallfreður Vilhjálmsson
aðalmaður, Arnheiður Hjörleifsdóttir vararitari, Stefán Ármannsson aðalmaður, Halldóra Halla Jónsdóttir aðalmaður, Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri, ritar
fundargerð. og Anna Leif Elídóttir 1. varamaður.

Laufey Jóhannsdóttir  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.


Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár. Oddviti óskaði eftir að taka mál 1211026, svarbréf frá Einingu til umfjöllunar á fundinum. SAF óskaði eftir að ræða erindið.
Samþykkt að taka málið á dagskrá.
Að auki sátu fundinn sveitarstjóri og ritaði fundargerð og fjármálastjóri undir lið 3 og lið 4.

 

1.   1310002F - Sveitarstjórn - 159


LJ færði fram bestu þakkir til Akraneskaupstaðar fyrir höfðinglegar
móttökur Akurnesinga í boði þann 22. nóvember. AH tók undir þakkir til
Akurnesinga fyrir móttökurnar. Benti á að á fundinum kom fram áhugi á
að sveitarfélögin komi af stað samstarfi og samvinnu milli starfsfólks
sveitarfélaganna. Nefndi gæðastjórnunarkerfi byggingarfulltrúa sem dæmi
um samstarf. Fundargerðin framlögð.


2.   1311002F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 31


SAF fór yfir efnisatriði fundargerðarinnar. AH ræddi lið 6 matslýsingar
kerfisáætlunar varðandi háspennulínur, ræddi lið 8 deiliskipulag við Glym.
LJ ræddi lið 6 og lið 8 SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum. HV ræddi
lið 8.


2.1.  1308006 - Eyrarskógur 101


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


2.2.  1310023 - Fyrirhuguð niðurfelling Héraðsvega af vegaskrá.


Sveitarstjórn tekur undir bókun USN nefndar og leggst gegn erindi
Vegagerðarinnar varðandi niðurfellingar héraðsvegar af vegaskrá.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


2.3.  1310045 - Matslýsing-Kerfisáætlun 2014-2023


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


2.4.  1310043 - Mótel Venus - Stækkun lóðar


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


2.5.  1310001 - Fjárrekstur í gegnum Hafnarsel.


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


3.   1309018 - Fjárhagsáætlun 2014-2017.


Síðari umræða og afgreiðsla.


Sveitarstjóri og fjármálastjóri fóru yfir breytingartillögurnar sem áður voru
fram komnar. Sveitarstjóri lagði til að samþykkja fram komnar
breytingartillögur.


A) Breytingar á milli umræðna eru eftirfarandi og koma fram í einu skjali;


                           Var        Verður     Mismunur
00 Skatttekjur -560.992.900 -560.992.900 -
02 Félagsþjónusta 67.033.800 67.600.600 566.800
04 Fræðslu,uppemál 352.672.800 352.672.800 -
05 Menningarmál 28.466.800 28.466.800 -
06 Æskul.íþrótt 22.511.400 23.843.000 1.331.600
07 Brunam almannav 11.636.000 11.636.000 -
08 Hreinlætismál 4.013.300 4.013.300 -
09 Skipulags,bym 20.015.600 20.015.600 -
10 Umferðar,samg. 9.459.000 9.459.000 -
11 Umhverfismál 5.224.800 5.224.800 -
13 Atvinnumál 7.208.800 19.208.800 12.000.000


20 Framlög til reksturs B.Hluta - - -
21 Same.kostn 94.151.600 91.061.600 -3.090.000
28 Fjármunat.gj-66.981.300 -79.519.700-12.538.400
Samtals aðalsjó -5.580.300 -7.310.300 -1.730.000

31 Eignasjóður -39.372.500 -32.150.500 7.222.000
51 B-hlutaft 17.367.000 5.765.000 -11.602.000

Rekstrarn,jákv-27.585.800 -33.695.800 -6.110.000

HV ræddi fjárhagsáætlun og ljósleiðara.
SÁ spurðist fyrir varðandi stofnun ljósleiðarafélags og spurðist fyrir
varðandi samninga um hitaveituboranir í áætluninni.
SAF ræddi áskrift að ljósleiðara og skuldbindingu til tveggja ára. Spurðist
fyrir varðandi að bókhaldsfæra ljósleiðara undir liðnum atvinnumál eða
samgöngumál. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. KHÓ svaraði fram
komnum fyrirspurnum.
Breytingatillaga samþykkt samhljóða 7-0.


B) Fjárhagsáætlun með áorðnum breytingum samþykkt samhljóða 7-0.


4.   1311033 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2013.


Breytingar vegna bókhalds, áður samþykktar millifærslur og fleira frá
fjármálastjóra.


KHÓ fór yfir breytingarnar og lagði til að samþykkja framkomnar
millifærslur með viðauka.


Endanleg áætlun
Upprunaleg áætl. Breytingar samkv.2013 endanleg áætlun samþ.af sv.stj
viðauka 26.nóv.13
00 Skatttekjur -550.127.000 -550.127.000
02 Félagsþjónusta 68.516.500 125.000 68.641.500
04 Fræðslu uppel 337.953.800 550.000 338.503.800
05 Menningarmál 28.384.000 455.000 28.839.000
06 Æskulýðs íþm 23.893.800 155.000 24.048.800
07 Brunam almav 12.235.600 12.235.600
08 Hreinlætism 4.525.100 4.525.100
09 Skipu/byggmál 16.953.000 16.953.000
10 Umf /samgm 9.028.300 9.028.300
11 Umhverfismál 5.655.700 45.000 5.700.700
13 Atvinnumál 8.791.900 8.791.900
21 Sam kostn. 94.404.500 -4.014.400 90.390.100
28 Fjárt og gj -64.565.400 -64.565.400
Samtals aðalsj -4.350.200 -2.684.400 -7.034.600


31 Eignasj. -56.409.600 2.684.400 -53.725.200
51 B-hluta fyrt 6.990.500 6.990.500

Rekstrarniðurs jákvæð -53.769.300 -53.769.300
Áætlað handbært fé 35.914.000 -15.000.000 20.914.000


Tillaga um viðauka eins og að ofan greinir samþykktur samhljóða 7-0


5.   1311031 - Skipun stýrihóps varðandi húsnæðismál leikskólans.


Erindi frá sveitarstjórn.


Tillaga sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að skoða heildstætt núverandi
húsnæði leikskólans. Skipaður verður þriggja manna stýrihópur sem
kosinn verður af sveitarstjórn. Stýrihópnum verður falið að annast
undirbúning og endurskoðun á húsnæðisþörf skólans. Lagt er til að með
stýrihópnum starfi skólastjóri . Stýrihópurinn skal gæta þess að
starfsmenn skólans og foreldrar fái tækifæri til að koma skoðunum sínum
á framfæri við endurskoðunina á húsnæðinu. Miðað er við að
stýrihópurinn ljúki störfum eigi síðar en 1. ágúst 2014.


SSJ fór yrir erindið. SÁ ræddi erindið og fagnaði fram kominni tillögu og
lagði til að samþykkja tillöguna. SAF ræddi erindið og tók undir að fagna
fram kominni tillögu og lagði til að samþykkja tillöguna. Lagði til að
Sigurður Sverrir taki sæti i stýrihópnum. HV ræddi tillöguna og er tilbúinn
með fulltrúa í stýrihóp.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Tillaga um að í stýrihópnum sitji Sigurður Sverrir Jónsson L, Björgvin
Helgason E og Ása Helgadóttir H, samþykkt samhljóða 7-0.


6.   1311022 - Starf byggingarfulltrúa og samningur við skipulagsfulltrúa.


Erindi frá sveitarstjóra, dagsett 20. nóvember 2013.


LJ fór yfir erindið og lagði til að samþykkja aukið starfshlutfall
byggingarfulltrúa í 87.9% og að framlengja samninga við Landlínur ehf. til
1. ágúst 2014. SÁ ræddi hugmyndir um sameiginlegan skipulags- og
byggingarfulltrúa td. með Skorradalshreppi. Tillaga um að framlengja
samninga við Landlínur ehf. til 1. ágúst. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
Tillaga um að auka við starfshlutfall byggingarfulltrúa í 87,9. Tillagan
samþykkt samhljóða 7-0.


7.   1311026 - Aðalskipulag á Grundartanga.

Óskir um endurskoðun á aðalskipulagi á Grundartanga. Erindi frá
Faxaflóahöfnum, dagsett 21. nóvember 2013.


SSJ fór yfir erindið. SAF fór yfir kynningarfund með fulltrúum frá
Íslandsstofu og VSÓ sem fjallaði um möguleika varðandi nýja starfsemi á
Grundartanga og skipulagsmál. Ræddi landnýtingarflokka í aðalskipulagi
Hvalfjarðarsveitar sem snýr að starfsemi á Grundartanga. Lagði til að vísa
erindinu til USN nefndar til umfjöllunar. Lagði til að fá fulltrúa
Faxaflóahafnar á fund nefndarinnar. Tillaga um að vísa erindinu til USN
nefndar samþykkt samljóða 7-0.


8.   1311018 - Fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og
fráveitumál.


Frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, dagsett 7. nóvember 2013. Reglugerð
um fráveitur og skólp, liggur frammi, og sent rafrænt til sveitarstjórnar.

LJ fór yfir erindið
A) Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við fjárhagsáætlun
Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0
B) Sveitarstjórn samþykkir að fela byggingarfulltrúa að taka saman áætlun
varðandi fráveitur og að skila til Heilbrigðiseftirlits fyrir 1. janúar 2014.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


9.   1311020 - Afskrift á þing- og sveitasjóðsgjöldum.


Erindi frá Sýslumanninum í Borgarnesi, dagsett 11. nóvember 2013.


LJ ræddi erindið og lagði til að samþykkja erindi frá sýslumanni í
Borgarnesi. Afskrifuð þing- og sveitarsjóðsgjöld kr. 88.311 og samtals
með áföllnum vöxtum kr 184.263.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


10.   1311030 - Rekstur Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar.


Erindi Vatnsveitufélagi Hvalfjarðarsveitar, dagsett 21. nóvember 2013.
Rekstraráætlun og forsendur hennar.


SSJ fór yfir erindið og lagði til að samþykkja erindið. SAF ræddi erindið og
benti á ósamræmi í fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar og
Vatnsveitufélagsins varðandi fjárþörf félagsins frá eigendum. LJ svaraði
fram komnum fyrirspurnum og óskar eftir framkvæmdayfirliti frá félaginu.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


11.   1202064 - Yfirnefnd fjallskilamála.


Ný fjallskilasamþykkt fyrir Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit,
Skorradalshrepps og Borgarbyggðar. Erindi frá Skorradalshreppi.


SSJ fór yfir erindið. Erindið framlagt


12.   1311032 - Rekstraryfirlit jan.-sept. 2013.


Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.


LJ fór yfir yfirlitið. Erindið framlagt.


13.   1311019 - Niðurstöður úr æskulýðsrannsókninni Ungt fólk 2013 í 5.,
6. og 7. bekk..


Frá menningarmálaráðuneytinu, dagsett 14. nóvember 2013. Niðurstöður
rannsóknarinnar liggja frammi og einnig hægt að finna á vef ráðuneytisins
www.menntamalaraduneyti.is


Erindið framlagt


14.   1309033 - Tillaga um sameiningu sveitarfélaga.


Svar frá Skorradalshreppi.


Erindið framlagt


15.   1311025 - Stöndum saman gegn verðbólgu en með stöðugleika og auknum kaupmætti launafólks.


Frá Stéttarfélagi Vesturlands, dagsett 15. nóvember 2013.


Erindið framlagt


16.   1311027 - Minnisblað í kjölfar þjóðhagsspár nóv. 2013.


Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 18. nóvember 2013.


Erindið framlagt


17.   1311028 - Afgreiðsla frá 48. sambandsþingi Ungmennafélags
Íslands.


Ungmennafélag Íslands hvetur ungmenna- og íþróttafélög og sveitarfélög
um land allt til að hvetja iðkendur og foreldra og forráðamenn til að ganga,
hjóla eða taka strætó til að frá skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

Erindið framlagt


18.   1311029 - Til umsagnar frumvarp til laga um sveitastjórnarlög
(eignarhlutir í orkufyrirtækjum), 152. mál.

Frá Alþingi, dagsett 18. nóvember 2013. Þegar sent sveitarstjórn.


Erindið framlagt


19.   1311023 - Til umsagnar frumvarp til laga um lífsýnasöfn ( söfn
heilbrigðisupplýsinga og leitargrunnar), 160. mál.


Frá Alþingi, dagsett 19. nóvember 2013. Þegar sent félagsmálastjóra og
form. fjölskyldunefndar.


Erindið framlagt


20.   1311024 - Til umsagnar frumvarp til laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði(heildarlög), 159. mál.


Frá Alþingi, dagsett 19. nóvember 2013. Þegar sent félagsmálastjóra og
form. fjölskyldunefndar.


Erindið framlagt


21.   1211026 - Áskorun til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.


Svar við erindi frá Birni Páli Fálka, (kostir og gallar við óhlutbundnar
kosninga). Frá E-lista.


SAF ræddi erindið og framkvæmd við óhlutbundnar kosningar og
kosningar samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Lagði til að haldinn verði
sameiginlegur fundur framboðanna um erindið. Ræddi að eina aðkoma
sveitarfélagsins gæti hugsanlega verið að kanna vilja íbúa með
skoðanakönnun. HV fór yfir erindið og svaraði að Eining hafi haldið fund til
þess að fara yfir erindið. SSJ ræddi erindið. SAF ræddi erindð og fór yfir
viðhorf L lista til óhlutbundinna kosninga. SSJ ræddi erindið. AH ræddi
erindið og vilja E lista til óhlutbundinna kosninga. Erindið framlagt.
SÁ spurðist fyrir varðandi erindi frá Baldvin Björnssyni varðandi þorrablót.
ALE svaraði fram komnum fyrirspurn.


22.   1311015 - 114. fundur Faxaflóahafna.


Fundargerðirnar framlagðar.

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:30 .

Efni síðunnar