Fara í efni

Sveitarstjórn

158. fundur 22. október 2013 kl. 16:00 - 18:00

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Ása Helgadóttir varaoddviti, Sævar Ari Finnbogason ritari, Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður, Arnheiður Hjörleifsdóttir vararitari, Stefán Ármannsson aðalmaður og Halldóra Halla Jónsdóttir aðalmaður.

Laufey Jóhannsdóttir  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.


Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár. Oddviti leitaði afbrigða að taka lið 8, efnahagsyfirlit fyrst á dagskrá. Samþykkt.
Að auki sátu fundinn sveitarstjóri og ritaði fundargerð, byggingarfulltrúi undir lið 2.1,2 og fjármálastjóri undir 8 lið

 


1.   1309006F - Sveitarstjórn - 157


Fundargerðin framlögð.


2.   1309005F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 29


Byggingarfulltrúi gerði grein fyrir lið 2, gjaldskrárhækkun, breytingar á
gjaldskrá. SAF fór yfir efnisatriði fundargerðarinnar. SÁ ræddi lið 2 og
óskaði eftir upplýsingum um hækkun á gámagjöldum og fleira. GE gerði
grein fyrir breytingum á gjaldskrá. SAF ræddi hugmyndir varðandi
göngubrú yfir Hafnará. LJ svaraði varðandi lið 7 hugmyndir um göngubrú
yfir Hafnará.


Fundargerðin framlögð.


2.1.  1309012 - Gjaldskráhækkun - Skipulags- og byggingarfulltrúi


Tillaga um breytingu á gjaldskrá og auglýsingu í b-deild
Stjórnartíðinda. Samþykkt 6-0. SÁ situr hjá við afgreiðsluna og gerði
grein fyrir atkvæði sínu.

2.2.  1210049 - Deiliskipulag Fornistekkur.


Deiliskipulag Fornistekkur hefur verið auglýst frá 24. júlí til 4.
september 2013 sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ein athugasemd
barst á auglýsingartíma. USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að tekið
verði tilliti til athugasemdarinnar að hluta og gerð lítilsháttar breyting á
skilmálum tillögunar.

AH óskar eftir að víkja af fundi. Samþykkt. SSJ ræddi tillöguna. HV
ræddi fyrirkomulag varðandi gróðurhús í sumarhúsahverfum og þau
áhrif sem kunna að verða á vatnsbúskap. SAF svaraði fram kominni
fyrirspurn.
Sveitarstjórn samþykkir tillögu USN nefndar að breytingu
deiliskipulags Fornastekks og skal niðurstaða sveitarstjórnar auglýst
sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Senda skal Skipulagsstofnun
deiliskipulag sem samþykkt hefur verið af sveitarstjórn og samantekt
um málsmeðferð ásamt athugasemdum og umsögnum um þær innan
átta vikna frá því að frestur til athugsemda rann út sbr. 42. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með 5-0 HV situr hjá. AH
tekur aftur þátt í fundinum.

2.3.  1204041 - Umgangur búfjár í landi Hafnarsels.


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


3.   1310022 - 11. fundur stjórnar Nýsköpunarsjóðs Hvalfjarðarsveitar.


Fundargerðin framlögð.


4.   1309011 - Styrktarsjóður Hvalfjarðarsveitar, október 2013.


Samantekt og styrkbeiðnir voru sendar sveitarstjórn rafrænt 18. október
2013.


SÁ lýsir sig vanhæfan og óskar að víkja af fundi vegna tengsla við
Sveitina milli stranda.
Eftirtalin erindi hafa borist;
Sveitin á milli stranda. Jólatónleikar 150.000. 100.000. Samþykkt
samhljóða 6-0.
SÁ tekur aftur þátt í fundinum.
Vinstri Hægri Vinstri. Umferðarfræðsla fyrir yngsta stig grunnskóla.35.000.
Samþykkt 7-0.
Karen Líndal Marteinsdóttir Íþróttaferð til Berlínar. Áður úthlutað
íþróttastyrk. Frestað.
Safnasvæðið Akranesi uppbygging bátasafns 100.000 frestað og skoða
nánar við fjárhagsáætlun.
Landsbyggðin lifi. Starfsemi 100.000. Hafnað.
Karlakórinn Söngbræður Starfsemi 100.000. Hafnað.
Jón R. Hilmarsson Bókaútgáfa ( Ljós og náttúra Norðurlands vestra).
Hafnað.
Elísa Pétursdóttir Íþróttaferð til Svíþjóðar Áður úthlutað íþróttastyrk.
Frestað.
Erlingur Hjálmarsson. Stigi yfir sjóvarnargarð í Krosslandi 250.000.
Hafnað.
Erlingur Hjálmarsson. Trjárækt 200.000. Hafnað.
Arnór Hugi Sigurðarson. Ungmennabúðir í Noregi 10.000 Áður úthlutað
íþróttastyrk. Frestað.
Alexandra Chernyshova. Vegna óperu festivals í New York. Hafnað.
Kór Saurbæjarprestakalls. Nótnakaup og undirleikarar , 200.000. 50.000
samþykkt samhljóða 7-0.
Kór Saurbæjarprestakalls. Utanför á kóramót í Póllandi, 300.000. Hafnað.
Kór Saurbæjarprestakalls. Húsaleiga í Fannahlíð 25.000. 25.000.
Samþykkt.
Grundartangakórinn. Rekstur. 30.000. Samþykkt.
Sveitarstjórn samþykkir ofangreindar styrkveitingar, samtals upphæð kr
240.000.


5.   1310030 - Samantekt frá íbúaþingi.


Frá Ildi, Sigurborgu Hannesdóttur.


LJ gerði grein fyrir að fyrirhugað er að funda með Sigurborgu
Hannesdóttur varðandi niðurstöðurnar og næstu skref. AH ræddi
samantektina og fagnaði samantektinni. Afgreiðslu frestað þar til að
afloknum fundi með Sigurborgu Hannesdóttur. Samþykkt samhljóða 7-0.


6.   1310024 - Ósk um framlag til tækjakaupa.


Erindi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands, dagsett 4. október 2013. Þegar
sent til sveitarstjóra, fjármálastjóra og vísað í fjárhagsáætlun 2014.


Tillagan samþykkt og jafnframt að vísa erindinu til fjárhagsáætlunar 2014
samþykkt samhljóða 7-0.


7.   1310028 - Ráðningarsamningur við framkvæmdastjóra Höfða
hjúkrunar- og dvalarheimili.


Erindi frá Höfða, dagsett 7. október 2013.Óskað eftir samþykkt frá
Hvalfjarðarsveit.


Sveitarstjórn samþykkir framlagðan samning 7-0.


8.   1310026 - Rekstrar- og efnahagsyfirlit 31. ágúst 2013.


Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.


KHÓ fór yfir yfirlitið. SAF ræddi erindið. ÁH þakkaði fyrir greinargóðar
upplýsingar og þakkaði starfsfólkinu vel unnin störf við uppgjörið. KHÓ
svaraði fram komnum fyrirspurnum.


9.   1310017 - Minnisblað vegna fjárhagsáætlunar fyrir 2014-2017


Minnisblað frá sveitarstjóra, dagsett 11. október 2013.

LJ fór yfir forsendur fjárhagsáætlunar en áætlunin hvílir á 8 mánaða
rekstrar og efnahagsuppgjöri sem nú liggur fyrir sem og á fjögurra ára
fjárhagsáætlun. Erindið framlagt.


10.   1309018 - Fjárhagsáætlun 2014-2017.


Samantekt frá sveitarstjóra, dagsett 11. október 2013.


LJ fór yfir yfirlit yfir þróun útsvarstekna, fasteignagjaldatekjur og framlög úr
Jöfnunarsjóði fyrir 2008-2013. SAF þakkaði kynninguna. Erindið framlagt.


11.   1310029 - Höfði árshlutareikningur.


Frá Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilinu, dagsett 16. október 2013.


LJ benti á að skv. árshlutauppgjöri þá stefnir í hallarekstur á Höfða og
lagði til að sveitarstjórn fundaði með framkvæmdastjóra og stjórn. SSJ
ræddi árshlutauppgjörið og stöðuna. Erindið framlagt.


12.   1310001 - Fjárrekstur í gegnum Hafnarsel.


Áskorun til sveitastjóra/sveitastjórnar - Fjárleitir í Hafnardal - Árekstur
hagsmunaaðila, erindi frá Herði Birgissyni, dagsett 8. október 2013.

LJ gerði grein fyrir viðræðum við eigendur Hafnarsels en fyrirhugað er að
funda með þeim í vikunni.


13.   1211014 - Ljósleiðari í Hvalfjarðarsveit.


Samantekt frá sveitarstjóra.


LJ fór yfir stöðuna á verkefninu. AH spurðist fyrir varðandi eftirlit og
ábyrgð eftirlitsaðila. HV benti á að huga þarf að ljósleiðaralagningu
samhliða vegagerð og hitaveituframkvæmdum í Svínadal. SAF ræddi
erindið. SÁ óskar eftir upplýsingum um eftirlitsaðila, hvaðan hann kemur
og hvernig ráðningu hafi verið háttað. SAF svaraði fram komnum
fyrirspurnum. HV ræddi ráðningu eftirlitsaðila. Erindið framlagt.


14.   1310025 - Kosning löggilts endurskoðanda, frestað á aðalfundi
Faxaflóahafna, 17. maí s.l..


Erindi frá Faxaflóahöfnum, dagsett 11. október 2013.


SSJ fór yfir erindið. Sveitarstjórn áréttar að Ása Helgadóttir hefur umboð
til að sitja framhalds aðalfund Faxaflóahafna 2013. Samþykkt samhljóða
7-0.


15.   1310031 - Skólastjórafélag Vesturlands vill beina þeim tilmælum til sveitarfélaga að nýta gögn af hvaða toga sem er til hagsbóta fyrir
skólasamfélagið.


Erindi frá Skólastjórafélagi Vesturlands, dagsett 8. október 2013.


Erindið framlagt.


16.   1310032 - 150 milljónir kr. greiddar í ágóðahlut til
aðildarsveitarfélaga EBÍ.


Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélag Íslands, dagsett 16. október 2013.


SSJ ræddi styrktarsjóð EBÍ, ÁH ræddi styrktarsjóðinn. Ein umsókn fór frá
Hvalfjarðarsveit í ár. Árshlutauppgjörið er framlagt.


17.   1310033 - Kjördæmavika, fundur með þingmönnum kjördæmisins
23. október nk. kl. 13.


Erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, dagsett 17. október
2013.


LJ benti á fund með þingmönnum 23. október. Erindið framlagt.


18.   1310020 - 78. fundur Menningarráðs Vesturlands.


Fundargerðin framlögð.

 

19.   1310021 - 113. fundur stjórnar Faxaflóahafna.


Fundargerðin framlögð.


20.   1310034 - 115. fundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands.


Fundargerðin framlögð.

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:20 .

Efni síðunnar