Fara í efni

Sveitarstjórn

156. fundur 24. september 2013 kl. 16:00 - 18:00

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Ása Helgadóttir varaoddviti, Sævar Ari Finnbogason ritari, Arnheiður Hjörleifsdóttir vararitari, Stefán Ármannsson aðalmaður, Halldóra Halla Jónsdóttir aðalmaður, Björgvin Helgason 1. varamaður og Laufey Jóhannsdóttir
sveitarstjóri, ritar fundargerð.


Laufey Jóhannsdóttir  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.


Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.
Að auki sat sveitarstjóri fundinn og ritaði fundargerð.
Upptökubúnaður reyndist bilaður í upphafi fundar.
Oddviti bar upp tillögu um að funda þrátt fyrir að upptaka væri ekki á fundinum. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
Hallfreður Vilhjálmsson boðaði forföll og Björgvin Helgason tók sæti í hans stað.

 


1.   1309001F - Sveitarstjórn - 155


Mál; 1308010 sveitarstjórn hefur samþykkt á milli funda að tilnefna
leitarstjóra;
Í Svarthamarsrétt Guðmundur Sigurjónsson, í Núparétt Baldvin Björnsson
og Magnús Hannesson og í Reynisrétt Jón Ottesen. Fundargerðin
framlögð


2.   1309003F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 28


Afgreiðslur verða sendar rafrænt nk. mánudag.


LJ gerði grein fyrir að á fundinum væru 2 afgreiðslumál liður 3 kynning á
tillögu að starfsleyfi fyrir Kratus mál 130804 og liður 4; Teigarás mál
1308020.
SAF fór yfir afgreiðslumálin og efnisatriði fundargerðarinnar. Ræddi lið 1
erindi frá Metanorku, umhverfisverðlaun, hugmyndir um breytingar á
gjaldskrá, starfsleyfi fyrir Kratus og Ölver 13 viðbygging.
BH ræddi lið 8 hugmyndir er varða metanorkuver í Melasveit. AH gerir
athugasemd við fundartíma nefndarinnar en fundir hennar eru ítrekað á
þeim tíma að ógerlegt er fyrir fulltrúa í nefndinni að mæta. Ræddi
starfsleyfi fyrir Kratus, umgegni á svæðinu og samantekt frá Mannviti
varðandi starfsleyfið og tillögu sem hún sendi en var ekki á dagskrá
fundarins. ÁH ræddi kynningu á metanorkuveri fyrir sveitarstjórn. LJ ræddi 
fundarboðun og umgengni á svæðinu við Kratus. SAF ræddi umgegni
Kratusar á lóð sinni á Grundartanga. Ræddi dagskrármál fundarins og
ræddi hugmyndir varðandi metanorkuver. SSJ ræddi metanorkuver og
kornakra við Mela. Fundargerðin framlögð.


2.1.  1308004 - Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir Kratus ehf. fyrir
vinnslu áls úr álgjalli.


Sveitarstjórn tekur undir bókun USN nefndar og samþykkir að
minnisblaði verði komið til Umhverfisstofnunnar áður en
athugasemdafrestur rennur út 2. okt. 2013. Enn fremur hvetur
nefndin Umhverfisstofnun til þess að fylgst sé sérstaklega með
starfseminni á meðan unnið er að útgáfu starfsleyfis. Bæði hvað
varðar losun og umgengni. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0


2.2.  1308020 - Teigarás - Stækkun lóðar


Stækkun lóðar úr lóð Áshamars 2 og sameina við Teigarás að
undangengnu samþykki beggja aðila. Tillagan samþykkt samhljóða
7-0


3.   1309023 - 37. fundur fjölskyldunefndar.


HHJ ræddi efnisatriði fundargerðarinnar. SSJ ræddi fundargerðina. ÁH
ræddi sundleikfimi eldri borgara. SÁ ræddi sundleikfimi. AH ræddi
opnunartíma sundlaugarinnar. Fundargerðin framlögð


4.   1309018 - Fjárhagsáætlun 2014-2017.

Samantekt og upplýsingar frá sveitarstjóra.


LJ fór yfir verklag og undirbúningsvinnu við fjárhagsáætlunargerðina. SAF
ræddi hugmyndir varðandi hagræðingu og að íbúum verði gefin kostur á
að koma með ábendingar um hagræðingu. Erindið framlagt


5.   1309022 - Starfshópur um framtíðarfyrirkomulag SSV.


Bréf frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, dagsett 10. september
2013.


ÁH ræddi aðalfund SSV og að boðað hefur verið til framhaldsaðalfundar
eftir 4-6 vikur. Erindið framlagt


6.   1309024 - Skjalavarsla sveitarfélaga.


Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 11. september 2013.
Erindið framlagt


7.   1308013 - Aðalfundur SSV 12. og 13. september, haldinn í Reykholti.


Frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Ályktanir aðalfundar SSV 
2013.


ÁH ræddi nefndarstarf og gerði grein fyrir umræðum í samgöngunefnd.
SAF ræddi ályktanirnar, umræður í samgöngunefnd og allsherjarnefnd.
Erindið framlagt


8.   1309027 - Ágóðahlutagreiðsla-EBÍ 2013.


Frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélagi Íslands, dagsett 6. september
2013.


Erindið framlagt


9.   1309029 - Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2013.


Ársfundurinn verður haldinn miðvikudaginn 2. október 2013, á Hilton Hótel
Nordica.


Erindið framlagt


10.   1303001 - Kröfulýsingarfrestur fjármála- og efnahagsráðherra á svæði 8 vestur framlengdur.


Erindi frá Óbyggðanefnd. Frestur til að lýsa kröfum er framlengdur til 15.
október 2013. USN nefnd fjallaði um málið 19. mars 2013.

Erindið framlagt


11.   1309030 - Útivistarstígur að skógræktarsvæði Skilmanna og að
Heiðarskóla.


Greinargerð frá Landslagi ehf. um mögulega uppbyggingu útivistar-, hjóla-, göngu- og reiðstíga við Melahverfi, Álfhólsskóg og að grunnskólasvæði
við Heiðarskóla.


LJ fór yfir greinargerðina og greindi frá kynningarfundi sem haldinn var 12.
september. Fyrirhugað er að funda með hönnuði og Vegagerðinni og með
landeigendum. Formaður skógræktarfélagsins hefur farið yfir drögin. LJ
ræddi að leggja ákveðna fjárhæð á ári til stígagerðar næstu fjögur ár. BH
ræddi erindið og ástand tengivega.

12.   1309028 - Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um leikskóla að loknu fæðingarorlofi, 37. mál.


Frá Alþingi, dagsett 19. september 2013. Þegar sent form. fræðslu- og
skólanefndar og skólastjóra.


Erindið framlagt


13.   1309021 - 98. fundur stjórnar SSV, 12. september 2013.


Fundargerðin framlögð


14.   1309025 - 808. fundur stjórna Sambands íslenskra sveitarfélaga.


Fundargerðin liggur frammi, áður send sveitarstjórn. Hægt að sjá
http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdirstjornar/DisplayMeeting.aspx?id=1307001F


Fundargerðin framlögð


15.   1309026 - 112. fundur Faxaflóahafna.


SSJ ræddi fundargerðina. Fundargerðin framlögð

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18.10 .

Efni síðunnar