Fara í efni

Sveitarstjórn

154. fundur 27. ágúst 2013 kl. 16:00 - 18:00

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Ása Helgadóttir varaoddviti, Sævar Ari Finnbogason ritari, Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður, Arnheiður Hjörleifsdóttir vararitari, Stefán Ármannsson aðalmaður, Halldóra Halla Jónsdóttir aðalmaður og Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri, ritar fundargerð.

Laufey Jóhannsdóttir  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.


Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.
Að auki sat sveitarstjóri fundinn og ritaði fundargerð.

 

1.   1308001F - Sveitarstjórn - 153


Fundargerðin framlögð.

2.   1306004F - Sveitarstjórn - 152


Fundargerðin framlögð.

3.   1307003F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 27


SAF ræddi efnisatriði fundargerðarinnar. Tillaga um lið 3 mál 1308004
varðandi umsögn á starfsleyfi fyrir Kratus. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0. Fundargerðin framlögð


3.1.  1305010 - Úttekt á umhverfisáhrifum á Grundartanga-skýrsla.


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


3.2.  1305001 - Litla-Fellsöxl. Reiðskemma


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


4.   1308012 - Umsögn um skýrslu starfshóps varðandi starfsemi SSV.

Erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, dagsett 19. ágúst 2013.

Samantekt varðandi starfsemi SSV og tillögur um mögulegar úrbætur
liggja frammi.


SSJ ræddi erindið og lagði til að samþykkja það sem starfshópurinn
leggur til varðandi breytingar á stjórnun SSV. Ræddi einnig þá hugmynd
að leggja til við aðalfund að fjölga í stjórn í 9 manna stjórn. HV ræddi
erindið og fram komna samantekt. SAF ræddi erindið og fjölgun í stjórn.
LJ ræddi samantektina. HV ræddi tillögur starfshópsins varðandi td.
tvískiptan ársfund og stöðuna á málefnum fatlaðra á Vesturlandi. SAF
ræddi erindið og að sveitarstjórn gefst tími til að senda athugasemdir til
stjórnar fram til 1.september. Bókun; Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd
við tillöguna eins og hún liggur fyrir en ítrekar að Hvalfjarðarsveit leggur
áherslu á fjölgun í stjórn úr 7 í 9 manns. Bókunin samþykkt samhljóða 7-0.

5.   1308010 - Réttir í Hvalfjarðarsveit eru samkvæmt gildandi fjallskilasaþykkt.


Reynisrétt, verður 14. september 2013:
Tillaga um réttarstjóra og tvo marklýsingamenn.
Núparétt, verður 15. september 2013, kl. 13:00.
Tillaga um réttarstjóra og tvo marklýsingamenn. Svarthamarsrétt, verður
15. september 2013, kl. 10:00.
Tillaga um réttarstjóra og tvo marklýsingamenn. Skilamenn í útrétt
Hreppsrétt og í Oddstaðarétt.

SSJ fór yfir erindið og lagði til;
A) Reynisrétt, SSJ lagði fram beiðni frá Bjarna Jónssyni um að réttað
verði 21. september. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
B) Tillaga um réttarstjóra Lilja Guðrún Eyþórsdóttir.
tvo marklýsingamenn. Sigurður Hjálmarsson og Haraldur Benediktsson.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
C) Núparétt, verður 15. september 2013, kl. 13:00.
Tillaga um réttarstjóra Baldvin Björnsson tvo marklýsingamenn í Núparétt.
Helgi Bergþórsson og Sigurður Valgeirsson. Tillagan samþykkt samhljóða
7-0.
D) Svarthamarsrétt, verður 15. september 2013, kl. 10:00.Tillaga um
réttarstjóra Arnheiður Hjörleifsdóttir tvo marklýsingamenn. Guðmundur
Friðjónsson og Brynjólfur Ottesen. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
E) Skilamenn í útrétt, Hreppsrétt Baldvin Björnsson og Hannes
Magnússon
og skilamenn í Oddstaðarétt. Stefán Ármannsson og Jón Ottesen.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

6.   1308013 - Fundarboð, aðalfundur SSV 12. og 13. september, haldinn í Reykholti.


A) erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, dagsett 16. ágúst
2013. B) umboð á aðalfund, tveir aðalmenn og einn til vara.


A) sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leiti fram komnar hugmyndir sem verða
til afgreiðslu á aðalfundi SSV
B) Tillaga um að Ása Helgadóttir og Hallfreður Vilhjálmsson fari með
umboð á aðalfundi og til vara verði Sævar Ari Finnbogason.
HV ræddi erindið og að gerði grein fyrir hann mun ekki sitja fundinn seinni
fundardaginn. SAF ræddi erindið og lýsti yfir að hann getur sótt fundinn
seinni daginn. AH ræddi erindið. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


7.   1308017 - Tillaga L og H lista: Breytingar á aðalskipulagi
Hvalfjarðarsveitar 2008-2020.

Erindi frá L og H lista, 22. ágúst 2013.


SAF fór yfir erindið. Lagði til að samþykkja fram komna tillögu og vísa
fram kominni tillögu til umfjöllunar í USN nefnd. AH ræddi tillöguna og
lagði til að vísa tillögunni til USN nefndar. Tillaga um að vísa fram kominni
tillögu til USN nefndar. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


8.   1308018 - Kosning í stjórn Byggðasafnsins í Görðum, samkvæmt
skipulagsskrá 4 gr. 4.1.


Á 114. fundir sveitarstjórnar var kosið í stjórn Akranesstofu og voru
eftirfarandi kosnir: Ása Helgadóttir aðalmaður og Hannessína
Ásgeirsdóttir varamaður. Breyting hefur verið gerð á stjórn Akranesstofu.

ÁH fór yfir erindið. Lagði til að sömu aðilar verði fulltrúar í stjórn
Byggðasafnsins. Ása Helgadóttir aðalmaður og Hannessína Ásgeirsdóttir
varamaður. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

9.   1307027 - Þjónusta við hælisleitendur.

Erindi frá innanríkisráðuneytinu, dagsett 10. júlí 2013.


Lagt fram.


10.   1308022 - Úrsögn úr fræðslu- og skólanefnd.


Erindi frá Ásgeiri Erni Kristinssyni, dagsett 24. ágúst 2013. Kosning í
fræðslu- og skólanefnd.


Tillaga um breytingu fulltrúa E-lista í fræðslu og skólanefnd frá Hallfreði,
Arnheiði og Stefáni.
Við undirrituð gerum tillögu um að Dagný Hauksdóttir taki sæti í fræðslu
og skólanefnd í stað Ásgeirs Kristinssonar, og Sigurður Sigurjónsson taki
sæti sem varamaður í stað Björgvins Helgasonar. ÁH þakkaði Ásgeiri vel
unnin störf og býður nýja fulltrúa velkomna til starfa. Tillagan samþykkt
samhljóða 7-0.

11.   1308015 - Rekstraryfirlit janúar - maí 2013.


Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.


Lagt fram.


12.   1307025 - Greiddur arður frá Faxaflóahöfnum.


Frá Faxaflóahöfnum, dagsett 10. júlí 2013.


Erindið framlagt


13.   1307028 - Skógræktarsjóður Skilmannahrepps - Ársreikningur 2012.

Ársreikningurinn liggur frammi.


HV spurðist fyrir varðandi viðræður við Skógræktarfélagið. SSJ svaraði
fram kominni fyrirspurn. Erindið framlagt


14.   1307029 - Endurskoðuð fjárhagsáætlun 2013.


Frá Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili, dagsett 19. júlí 2013.
Fjárhagsáætlun 2013 og endurskoðuð áætlun júlí 2013 liggur frammi.


Erindið framlagt


15.   1210085 - Verksamningur við Hvalfjarðarsveit um Fræðslustjóra að láni.


Samantekt og gagnavinna frá Kristínu Björgu Árnadóttur. Endur- og
símenntunaráætlun 2013-2015. Gögn liggja frammi og áður send
sveitarstjórn og skólastjóra.


LJ fór yfir erindið og lagði til að vísa áætluninni til fjárlagagerðar og til
kynningar í fræðslu- og skólanefnd. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

16.   1307021 - 30. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.


Fundargerðin framlögð


17.   1308011 - 113. og 114. fundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands.


Fundargerðirnar framlagðar


18.   1308014 - 111. fundur Faxaflóahafna sf.


Fundargerðin framlögð


19.   1308019 - 97. fundur stjórnar SSV, 19. ágúst 2013.


ÁH ræddi lið 3. Almenningssamgöngur ræddi að aukinn kostnaður er á
árinu og ljóst er að tap er á fyrrihluta árs. Fundargerðin framlögð.

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17.33 .


Efni síðunnar