Fara í efni

Sveitarstjórn

148. fundur 14. maí 2013 kl. 16:00 - 18:00

Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Ása Helgadóttir varaoddviti, Sævar Ari Finnbogason ritari, Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður, Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður, Stefán Ármannsson aðalmaður og Halldóra Halla Jónsdóttir vararitari.


Laufey Jóhannsdóttir  sveitarstjóri, ritaði fundargerð.


Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár. Oddviti leitaði afbrigða að fá að taka lið 9, þriggja mánaða rekstraryfirlit, fyrst á dagskrá. Samþykkt samhljóða. Að auki sat KHÓ fjármálastjóri, fundinn undir lið 9 rekstraryfirlit og HHK skipulags- og byggingarfulltrúi undir lið 2.
KHÓ, vék af fundi kl 16.20 HHK vék af fundi 17.10

1.   1304002F - Sveitarstjórn - 147


LJ ræddi; lið 6 mál 1211014 ljósleiðaravæðing. Lið 10 mál 1304023,
sparkvöllur og lagði fram minnisblað varðandi stöðuna á verkinu. Lið 12
mál 1304026 endurgerð lóðar við Skýjaborg.


Liður 6. LJ fór yfir stöðuna á verkefninu lagði fram minnisblað varðandi
næstu skref og greindi frá að fyrirhugað er að halda íbúafund til þess að
kynna ljósleiðaravæðingu í Hvalfjarðarsveit og benti á að boða þurfi til
aukafundar í sveitarstjórn varðandi ýmis mál varðandi verkefnið.


Liður 10. LJ lagði fram minnisblað varðandi stöðuna og gerði grein fyrir að
fyrirhugað er að funda með verktaka til að reyna að ljúka verkefninu.


Liður 12. LJ gerði grein fyrir að tvö tilboð bárust í verkið frá;
* Halldór Sigurðsson, vélaleiga tilboð kr 17.293.900
* Þróttur ehf - tilboð kr. 12.820.000.
Kostnaðaráætlun hönnuða, Landslags ehf, hljóðar upp á kr. 15.224.999,-

Yfirferð á tilboðum stendur yfir og lagt er til að semja við lægstbjóðanda
að þeirri yfirferð lokinni.
AH spurðist fyrir varðandi ljósleiðara, gjaldskrá , dagsetningu á
kynningarfundi, tengingar sumarhúsa og fyrirtækja, lagningu á
jaðarsvæðum. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum. HV ræddi
tilnefningu í kjörstjórn ræddi kosningar. AH ræddi lið 6. LJ svaraði fram
komnum fyrirspurnum.
Fundargerðin framlögð.


2.   1304003F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 22


HHK fór yfir fundargerðina. SAF ræddi lið 3 í fundargerðinni og
stjórnsýslukæru sem barst í dag vegna leyfisveitingar Orkustofnunar til
Bugavirkjunar. LJ ræddi sama mál. Fundargerðin framlögð


2.1.  1304031 - Herdísarholt, stofnun lóðar

Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


2.2.  1305001 - Litla-Fellsöxl. Umsókn um byggingaleyfi


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


2.3.  1305002 - Bugavirkjun. Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir stíflu
og lagnagerð.


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


3.   1305001F - Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 23


SAF ræddi fundargerðina. Fundargerðin framlögð


3.1.  1304014 - Umsóknir um starf skipulags- og byggingarfulltrúa.


Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


4.   1305004 - 100. fundur fræðslu- og skólanefndar.


ÁH fór yfir efnisatriði fundargerðarinnar. AH ræddi lið 9. starfsmannamál
og spurðist fyrir varðandi lágt svarhlutfall í könnuninni. HV spurðist fyrir
varðandi samantekt sem unnin var af Haraldi Finnssyni. ÁH svaraði fram
komnum fyrirspurnum. Fundargerðin framlögð.

5.   1304014 - Umsóknir um starf skipulags- og byggingarfulltrúa.


Listi yfir umsækjendur


LJ fór yfir erindið og greindi frá ráðgjöf Skúla Lýðssonar varðandi starfið;
Lagði fram eftirfarandi tillögu; Í ljósi þessarar ráðgjafar hans þá er lagt til
að endurskipuleggja störfin og ráða tímabilsbundið í verktöku í
skipulagsvinnu og í byggingareftirlit/byggingafulltrúastarf. Ráðgjafi leggur
til að gera samkomulag við Landlínur sem hafa yfirgripsmikla þekkingu á
skipulagsmálum Hvalfjarðarsveitar og ráða tímabilsbundið í starf
byggingafulltrúa á meðan á endurskipulagningu stendur. Að reynslutíma
liðnum má búast við að komin verði reynsla á þetta fyrirkomulag og þá er
hægt að taka ákvörðun um frambúðar fyrirkomulag. Á grundvelli þessa er
lagt til að öllum umsóknum um starfið verði hafnað.
AH ræddi fram komnar hugmyndir varðandi endurskipulag á deildinni.
SSJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. SAF ræddi erindið og lagði fram 
tillögu;
Sveitarstjóra er falið að undirbúa auglýsingu varðandi stöðu
byggingarfulltrúa hjá Hvalfjarðarsveit og jafnframt að kanna möguleika og
kostnað við að ráða verktaka til að sinna skipulagsmálum og
umhverfismálum.
HV ræddi fund með sveitarstjóra varðandi starf skipulags- og
byggingarfulltrúa og endurskoðun á starfinu. AH ræddi fram komnar
hugmyndir. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum.
SSJ lagi fram tillögu að hafna öllum umsóknum, tillagan er samþykkt
samhljóða 7-0.
SSJ lagði til að samþykkja tillögu SAF. HV ræddi fram komna tillögu. SSJ
svaraði fram kominni fyrirspurn. SAF ræddi fram komna tillögu sína. AH
ræddi fram komna tillögu. Tillaga SAF samþykkt samhljóða 7-0. Tillaga
SAF gengur lengra en tillaga sveitarstjóra.


6.   1202064 - Yfirnefnd fjallskilamála.


Frá Björgu Gunnarsdóttur. Fjallskilasamþykkt.
SSJ ræddi fram komna tillögu Borgarbyggðar sem er; "Sveitarstjórn
leggur til að nefnd sem vann að gerð fjallskilasamþykktar og
framkvæmdastjórar sveitarfélaganna fundi um samþykktina" Tillagan
samþykkt samhljóða 7-0.


7.   1305005 - Krafa um efndir sbr. deiliskipulag og ákvæði þinglýstra
kaupsamninga.


Erindi frá Félagi Landeigenda í Glammastaðalandi, dagsett 30. apríl 2013.
(Þegar sent lögfræðingi sveitarfélagsins.)


LJ fór yfir erindið. Lagði til að sveitarstjóra og lögmanni sveitarfélagsins sé
falið að svara fram komnum athugasemdum. SAF ræddi erindið. SSJ
ræddi erindið. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


8.   1305011 - Kaup á handlóðum í íþróttahúsið Heiðarborg og viðhald
eldri búnaðar.


Erindi frá Ásu Hólmarsdóttur, dagsett 7. maí, 2013.


LJ fór yfir erindið. Gerði grein fyrir að skólastjóri leik- og grunnskóla
Hvalfjarðarsveitar fer með umsjón með Heiðarborg. Erindinu hefur nú
þegar verið vísað til skólastjóra til skoðunar. Í fjárhagsáætlun ársins 2013
eru 500 þúsund til áhalda og tækjakaupa. Á árunum 2011 og 2012 var
varið um 1.1 miljón til tækja og áhalda kaupa. Tillaga um að vísa erindinu
til skólastjóra. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.


9.   1305016 - Þriggja mánaðar rekstraryfirlit.


Frá fjármálastjóra.


KHÓ fór yfir rekstraryfirlitið. Erindið framlagt. SAF spurðist fyrir varðandi
spjaldtölvuvæðingu sem færist á sameiginlegan kostnað leik og
grunnskóla og hækkun á sameiginlegum kostnaði skrifstofu. KHÓ svaraði
fram komnum fyrirspurnum.


10.   1304003 - Aðalfundaboð, 26. apríl 2013 kl. 20:30.


Ársreikningur Hitaveitufélags Hvalfjarðar sf., liggur frammi.

 

Erindið framlagt


11.   1304023 - Sparkvöllur


Gögn frá VSÓ og fjármálastjóra verða send rafrænt.


LJ lagði fram minnisblað. Samþykkt samhljóða að semja við JG
vinnuvélar ehf við frágang verksins, þeir áttu næst lægsta boð í verkið. 7-0.

12.   1305010 - Úttekt á umhverfisáhrifum á Grundartanga-skýrsla.


Frá Faxaflóahöfnum, dagsett 7. maí 2013. Skýrslan liggur frammi. Þegar
sent USN nefnd.


Erindið framlagt


13.   1305015 - Ársreikningur 2012.


Frá Vesturlandsstofu ehf.. Liggur frammi.


Erindið framlagt


14.   1304029 - Fundur ABD haldinn 10. apríl 2013.


Fundargerðin framlögð


15.   1304030 - 16. aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands hf. og skýrsla
stjórnar.


Frá Sorpurðun Vesturlands. Skýrsla stjórnar liggur frammi.


Fundargerðin framlögð


16.   1304032 - 805. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.


Fundargerðin liggur frammi. Sjá nánar http://www.samband.is/umokkur/fundargerdir-stjornar/DisplayMeeting.aspx?id=1304003F


Fundargerðin framlögð


17.   1305006 - 10. aðalfundur Heilbrigðisnefndar, ársskýrsla 2012 og
ársreikningur 2012.


Frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands. Ársskýrsla 2012 og ársreikningur 2012,
liggja frammi.

Fundargerðin og ársreikningur framlögð


18.   1305007 - 75.-77. fundur Menningarráðs Vesturlands.


Fundargerðirnar framlagðar


19.   1305008 - 7. aðalfundur Menningarráðs Vesturlands 2013.


Ársskýrsla Menningarráðs Vesturlands 2012, liggur frammi.


Fundargerðin framlögð


20.   1305014 - 24. og 25. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og
dvalarheimilis.


Fundargerðirnar framlagðar


Liður; 1. mál 1304026 liður 12 í fundargerð sveitarstjórnar var tekinn til afgreiðslu í
lok fundarins. ÁH vék af fundi undir þessum lið og var eftirfarandi bókað þar um;
SSJ óskaði eftir afstöðu sveitarstjórnar varðandi að taka málið til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða 6-0. Tillaga um að semja við lægstbjóðanda í verkið
samþykkt samhljóða 6-0. ÁH tekur aftur þátt í fundinum
Fundargerðin framlögð.

 


Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18.37 .

Efni síðunnar